This topic contains 0 replies, has 1 voice, and was last updated by Skúli Haukur Skúlason 10 years, 4 months ago.
-
Topic
-
Gæti verið athyglisvert að skoða niðurstöður úr könninni hér á vefnum sem er væntanlega hugsuð til að sjá hversu meðvitaðir félagsmenn eru um Skeljungssamninginn. Ein spurning fannst mér þó mjög ruglingslega sett upp og það er þessi um hvað ræður því hvar menn versla. Þar er merkt við 3, 2 eða 1 en röðin í spurninginni er með öfuga númeraröð (3,2,1) en fyrir neðan þar sem merkt er við er röðin rétt (1,2,3). Auk þess er 3 það sem er mikilvægast en 1 minnst mikilvægast. Væri eðlilegra að merkja 1 við það sem er í fyrsta sæti. Það þarf semsagt að lúslesa spurninguna til að að átta sig á hvernig á að svara, en svona könnun svara menn yfirleitt á hlaupum. Efast því um að mikið verði að marka niðurstöðuna á þessari spurningu.
Kv – Skúli
You must be logged in to reply to this topic.