FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Kolrangur hugsunarháttur

by Jón Ingi Ólafsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Allt annað › Kolrangur hugsunarháttur

This topic contains 23 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Birgir Tryggvason Birgir Tryggvason 17 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 17.12.2007 at 00:20 #201398
    Profile photo of Jón Ingi Ólafsson
    Jón Ingi Ólafsson
    Member

    Það er ekki oft sem mér finnst ástæða að rífa kjaft en núna fauk virkilega í mig.

    Á visir.is var frétt um að einn virtasti vegaverkfræðingur landsins taldi það algerann óþarfa að leggja 2+2 veg á Selfoss og upp í Borgarnes. Þessi ágæti maður er nýhættur hjá Vegagerðinni eftir 40 ára starf.

    Það virðist mjög líklegt að þessi maður sé hugsuðurinn að baki byggingu einbreiðra brúa, einbreiðs malbiks og yfirhöfuð breidd á íslenskum vegum.

    Hefur þessi maður ekki keyrt á Selfoss og til Keflvíkur? Veit hann ekki að þegar komið er á tvíbreiðu kaflana verður umferðin hröð og greið en svo þegar vegurinn þrengist er allur gróðinn af breikkunninni fokinn út í buskan? Hvað er eginlega verið að spá?

    Hér er linkurinn: http://visir.is/article/20071216/FRETTIR01/71216053/-1/trailerKompas.jpg

  • Creator
    Topic
Viewing 3 replies - 21 through 23 (of 23 total)
← 1 2
  • Author
    Replies
  • 27.12.2007 at 19:31 #607110
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    Ég er nú enginn vegalagningarsérfræðingur, en fæst samt örlítið við baunatalningu og tæknimál dags daglega. Mér er eiginlega alveg fyrirmunað að skilja hvers vegna það er 3x dýrara að leggja 2+2 veg heldur en 2+1. Er það kannski vegna þess að það er alltaf troðið heljarinnar skurði á milli gagnstæðra akreina og vegurinn sem fyrir er tekinn í gegn í leiðinni?
    Hvað mælir gegn því að gera 4 veg (allar akreinar á sama plani, óslitið) veit ég ekki. Kannski eitthvert Evrópuregluverk.
    Hvað mælir líka gegn því að leggja ANNAN 2ja akreina veg, ekkert endilega utan í hinum alla leiðina ef það hentar?
    Svo er bara hleypt á gamla veginn í austur og þann nýja í vestur þegar allt er klárt.
    Það er ekkert lögmál að þurfa að sjá bíla úr gagnstæðri átt…í USA er alsiða að leggja stofnvegi á þann hátt, þá er hægt að setja alls kyns slaufur og drasl á milli akstursstefna.
    Kannski er þetta ekkert billegra, skásta vegastæðið er jú frátekið að mestu nú þegar.

    bara smá innlegg

    kv
    Grímur





    27.12.2007 at 21:49 #607112
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Mér finnst ótrúleg skammsýni að halda því fram að 2+1 vegur sé fullnægjandi yfir Hellisheiði til framtíðar. Ég fæ einhverja óþægilega tilfinningu á þessum vegarkafla í Svínahrauninu. Vegagerðin ætlaði ekki að tengja Þrengslaveginn með brú og slaufum ,en sveitarfélagið sagði stopp. minnugt allra slysanna sem hafa orðið á gömlu gatnamótunum. Þessi slaufutenging hefur ekki kostað meira en eitt alvarlegt slys. Þarna er í hnotskurn þessi seinni tíma hönnun hjá Vegagerðinni þar sem axlir eru örmjóar og ekki svigrúm ef eitthvað ber útaf. Fyrir tiltölulega fáum árum var Landvegurinn byggður upp og lagður slitlagi, en hann var víða svo mjór að stikurnar voru sumsstaðar efst í fláanum til að næg breidd næðist á akreininni. sem sagt engin vegöxl. Svo er til fyrirmyndar hvernig er búið að leggja slitlag á axlirnar í Flóanum og víðar .Það hlýtur að vera til bóta fyrir hjólreiðafólk og almennt séð. Ég hef líka haldið því fram eins og gert er hér að framan að það hlýtut að vera hægt á einhverjum hluta leiðarinnar að byrja á að leggja annan tveggja akreina veg til hliðar og nota síðan gamla veginn í hina áttina .Í umferðarspá sem ég hef séð er gert ráð fyrir um15 þúsund bíla umferð á dag við Sandskeiðið árið 2012. Svo er þróunin sú að æ fleiri bílar eru með breiða vagna í drætti eða húsbílar. Gleðilegt nýtt ár Olgeir





    28.12.2007 at 01:21 #607114
    Profile photo of Birgir Tryggvason
    Birgir Tryggvason
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 189

    Það er hæpið að draga ályktanir um aksturslag á 2+1 vegi af einum stuttum tilraunakafla. Þegar það er bara eitt tækifæri á leiðinni til þess að taka framúr mætti ætla að hamangangurinn sé meiri en á vegi sem er allur 2+1.
    Sá kafli vegarins sem er núna 2+1 er heldur ekki fullfrágenginn og endanlegur 2+1 vegur yrði talsvert breiðari en núverandi vegur.
    Kostnaðarmunur á 2+2 og 2+1 liggur aðallega í mislægum gatnamótum sem eru nauðsyn á 2+2 vegi en ekki á 2+1 vegi.





  • Author
    Replies
Viewing 3 replies - 21 through 23 (of 23 total)
← 1 2

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.