Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › KN loftsíur
This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Davíð Freyr Jónsson 19 years ago.
-
CreatorTopic
-
15.01.2006 at 18:13 #197068
Hafa menn prófað KN loftsíu í 3ja lítra Patrol. Ef svo, finna menn einhvern mun á vinnslu eða eyðslu?
Magnús
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
15.01.2006 at 18:28 #539118
K&N sía er of opin fyrir 3.0 Patrol. Air flow sensorinn mattast mjög fljótt ef K&N sía er í honum, og hann kostar alveg nokkra peninga. Notaðu bara orginal loftsíu.
Góðar stundir
15.01.2006 at 21:10 #539120Það má ekki nota KN í 3 l Patról , búinn að lenda sjálfur í tjóni vegna KN loftsíu , Bílabúð Benna og KN frameiðendur vita af þessu og ættu ekki að selja síurnar í Patról , þær eiðileggja loftflæðiskynjarann.
15.01.2006 at 21:26 #539122en að setja KN í patrol 2.8 l 96árg
Kv villi
15.01.2006 at 22:21 #539124þetta hef ég ekki heyrt áður, og spyr því, er í lagi að nota k&n síu í trooper 99"
15.01.2006 at 23:18 #539126Það er allt í góðu að nota KN,Green kotton og fleirri opnar síur í þá bíla sem er EKKI með gler loftflæði skynnjara. En af þessum sium stendur KN einna fremst í flokki. Gler loftflæði skynjararnir eru einnig i T.d Imprezum, og fleirri bilum. Það ætti að vera allt í lagi að setja KN i 2.8. Eg hef verið með kn i öllum jeppunum hja mer í gegnum tiðina en það er gott að taka þær úr á vorin og setja venjulega siur í yfir sumarið. Rykið á sumrin getur verið algjört overkill. Ísskápurinn var til dæmis ekki með neitt loftsiu hús. Tók það úr og setti bara Kn siu svepp í staðinn og virkaði það mjög vel. Ég ætla að panta Kn siu loft intak í tacomunia hjá mér. Þannig að ég haf fulla trú á þessum sium. Það þarf bara að passa loftflæði skynjarana. Kv Björninn
15.01.2006 at 23:49 #539128Loftsía er eins og nafnið gefur til kynna til að sía ryk úr lofti, þegar ekkert ryk er í loftinu þarf þess vegna enga loftsíu. Ef þessar lofsíur virka ekki í ryki til hvers ertu þá að setja þær í ?
Ég keyri oft lofthreinsaralaus á vetrin.
Guðmundur
16.01.2006 at 00:11 #539130Held allavega að það sé búið að svara því í eitt skipti fyrir öll af hverju K&N (og fleiri slíkar) flæða betur. Þær einfaldlega filtera minna.
kv
Rúnar.
16.01.2006 at 00:32 #539132Hvað eru menn að dreyma upp mörg hestöfl á því að setja opnari síur í ? Ég tók loftsíuna úr gömlu 1.6 touring corolluni minni um daginn og fann ekki nokkurn einasta mun og það var skítug sía.
Eini plúsinn við að nota K&N síu er sá að það þarf ekki að fara og kaupa nýja þegar hún verður skítug heldur er hún bara þrifin og sett í aftur.
16.01.2006 at 01:18 #539134Komnir heilir níu póstar, tíu með þessum, og enginn kominn út fyrir uppheflegt umræðuefni- þetta er örugglega nýtt met!!!
En varðandi sýjuna. Ég fór í fyrra vor í ÁG-Mótorsport og verslaði mér Grenn sýju sem passaði beint í orginal sýjuhúsið á Pajeronum hjá mér. Setti hana í á staðnum og fann greynilegan mun á "andadrætti" vélarinnar: það var eins og túrbínan og blásarinn ættu auðveldara um að snúast vegna minni mótstöðu. Enda ekki skrítið því pappasýjan sem ég skifti út var að hálfu hulin plasti sem var með beiniblöðum til að þyrla til loftinu (svipað og Hiclone) og var það bara til að gera illt verra. Ég finn náttúrulega engan mun lengur enda engann samanburð að hafa. Hestaflatalan eða vinnslan jókst sama sem ekki neitt enda er þetta enginn töfralausn í þeim efnum.
Svo keypti ég mér bara hreinsisett og svæ draslið reglulega, og það safnast sko ryk í sýjuna skal ég segja ykkur.Takk fyrir kaffið og góðar stundir.
Haffi H-1811
16.01.2006 at 04:07 #539136
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
maður fær nákvæmlega ekkert afl úr því að skipta bara um síu, en getur fengið smá afl með því að opna alla öndunar leiðina…bæði inn og út…s.s. með því að opna bæði loftintakið (setja opnari síu, stærra inntak) og opna pústið líka…en það er engin töfralausn þó það geti virkað eitthvað…
16.01.2006 at 10:48 #539138Ætli Hestaflalofthreinsarar séu þá bara þjóðsaga.
Guðmundur
16.01.2006 at 11:11 #539140Það væri fróðlegt að setja K/N síu fyrir *framan* orginal síú og skoða svo orginal síuna eftir nokkra mánuði, sjá hvað hefur sloppið í gegnum hestaflasíuna.
-haffi
16.01.2006 at 11:27 #539142
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
já…þessi tilraun hljómar vel 😀
16.01.2006 at 23:41 #539144k/n síur virka mjög vel ef þær eru hreinsaðar reglulega og sett olía í þær það er olían sem bindur rykið í sig, þess vegna þarf að vera með þá hluti í lagi til að sían virki, aftur á móti er hættara við að það komist auðveldar vatn í gegnum k/n síu því skal alltaf vera með ullarsokk til staðar, til að geta smeygt yfir k/n síuna ef þú er mikið að busla í ám.
Davíð Dekkjakall
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.