FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Kílómetrakvarði

by Ágúst Úlfar Sigurðsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Kílómetrakvarði

This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Ágúst Úlfar Sigurðsson Ágúst Úlfar Sigurðsson 19 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 21.02.2006 at 19:40 #197379
    Profile photo of Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Participant

    Til að kanna nákvæmni á kílómetramælinum hef ég fengið frá Vegagerðinni glænýjar vegalengdir á leiðinni Reykjavík – Selfoss.

    1. Frá hringtorgi við Rauðavatn til hringtorgs við Hveragerði eru 34,27 km.
    2. Frá hringtorgi við Hveragerði til hringtorgs við Selfoss eru 12,28 km. Ég geri ráð fyrir að það sé fyrsta torgið á Selfossi sem miðað er við, en gleymdi að spyrja. Það væri ágætt ef einhver getur staðfesta það.

    Þessar tölur eru miðaðar við þjóðveg 1 eins og hann er í febrúar 2006 (eftir breytingar í Svínahrauni).

    Kv.

    Ágúst

  • Creator
    Topic
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)
  • Author
    Replies
  • 21.02.2006 at 21:54 #543900
    Profile photo of Elías Þorsteinsson
    Elías Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 53
    • Svör: 1158

    eru mældar á milli aðalpósthúsa staðanna.
    Oft er þegar menn mæla hraða eða meðalhraða í tímaeiningu þá er jafnan tekinn tími á milli uppgefinnar fjarlægðar frá bæjarmörkum sem gefnar eru upp á skiltum við bæjarmörk.

    Mitt mat er að viðmiðun sem nú er viðhöfð sé bara nokkuð góð og gefur þeim sem ferðast um lengri leið góð viðmið.

    Kveðja
    Elli.





    22.02.2006 at 08:30 #543902
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Þegar ég mæli nákvæmni hraðamælisins eða vegalengdina sem hann mælir nota ég GPS-tækið mitt, það er valla hægt að fá það nákvæmara,

    kv. vals.





    22.02.2006 at 10:45 #543904
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Er það ekki rétt hjá mér að GPS tækið mæli miðað við láréttan flöt þannig að yfir fjallvegi sýni tækið aðeins lægri tölu .Fyrirgefið fáviskuna. Kveðja Olgeir





    22.02.2006 at 11:04 #543906
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Það er hæðarmælir í mínu tæki og held ég í flest öllum GPS-tækjum. Ég er ekki klár á hvort tekið er tillit til hæðabreytinga en lenging á vegalengdinni milli Selfoss og Reykjavíkur vegna Hellisheiðarinnar er óveruleg. Þykktinn á vísirnum í hraðamælinum gefur örugglega meiri skekkju. Ef menn vilja vera alveg öruggir þá fara menn bara á suðurlandið, það er marflatt og engar hæðir sem trufla mælitölur.

    kv. vals.





    22.02.2006 at 11:31 #543908
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Inni á heimasíðu Vegagerðarinnar er hægt að komast í mjög nákvæmar upplýsingar um vegalengdir milli tiltekinna punkta í vegakerfinu.





    22.02.2006 at 16:25 #543910
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Ég hef gaman af svona pælingum og langar að vita þetta nákvæmlega. Mér hefur fundist GPS tækið hjá mér sýna aðeins of lága tölu milli Landmannahellis og Lauganna enda nokkrar brekkur á þeirri leið . Fæ vonandi svar við tækifæri. Kv. Olgeir





    22.02.2006 at 19:59 #543912
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Eftir því sem ég best veit þá mæla GPS tæki hreifingu á X Y og Z ás. Þannig að ef að þú myndir hoppa út úr flugvél í 30þús fetum þá fengirðu hraðan á leiðini niður og lengdina á ferðalaginu. Sum GPS forrit í tölvum bjóða uppá að sjá hæðarlínurit af ferli.





    22.02.2006 at 21:02 #543914
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég tel fullvíst að tækin taki tillit til hæðabreytinga við lengdarmælingar.
    T.d. er í Garmin Vista göngutækjunum hægt að fá hæðarferil fyrir ákveðin track og fyrst göngutæki hefur þessar upplýsingar þá ættu bíltækin að hafa það líka.
    Og þar sem stærðfræðin á bakvið þrívíða lengdarmælingu er vel þekkt þá held ég að það sé útilokað að framleiðendurnir hafi reynt að spara sér nokkrar línur í forritun með því að mæla allar fjarlægðir í tvívídd.





    22.02.2006 at 21:53 #543916
    Profile photo of Grimur Jónsson
    Grimur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 1125

    …held ég að noti líka bara GPS tæki við sínar fjarlægðarmælingar…





    22.02.2006 at 22:38 #543918
    Profile photo of Olgeir Engilbertsson
    Olgeir Engilbertsson
    Participant
    • Umræður: 8
    • Svör: 463

    Þakka svörin .Ég er vís til að ganga á Löðmund í sumar og sannreyna þetta .Þar er hægt að ganga beint upp snarbratta hlíðina og útsýnið svíkur ekki .Kv. Olgeir





    22.02.2006 at 22:39 #543920
    Profile photo of Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Ágúst Úlfar Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 653

    GPS tækin eru mjög góð til að kvarða hraðamælinn eftir, bara að keyra á beinum vegi með jöfnum hraða í nokkrar sekúndur með hraðamælisnálina á miðju strikinu og láta farþegann lesa hraðann af GPS-inu. Nákvæmni mælinganna eykst með vaxandi hraða.

    Öðru máli gildir með vegmælingu. GPS tækið tekur staðarákvörðun með einhverra sekúndna millibili, reiknar út fjarlægðina milli þeirra sem beina línu og síðan heildarvegalengdina sem samtölu af öllum stubbunum. Ef einhver minnsta beygja er á veginum eða hæðarbreyting þá er beina línan sem tækið reiknar styttri en raunveruleg akstursleið. Eftir því sem leiðin er krókóttari eða mishæðóttari þá vex skekkjan og magnast við aukinn hraða.

    Þetta er a.m.k. svona fræðilega séð, en ekki víst að skekkjan sé svo mikil að hún skipti máli. Gaman væri að fá nokkrar GPS mælingar milli hringtorganna við Rauðavatn og Hveragerði frá þeim sem eiga leið um svæðið og sjá hvernig þeim ber saman.

    Ágúst





  • Author
    Replies
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.