FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

KÆLIR Á SKIPTINGUNA

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › KÆLIR Á SKIPTINGUNA

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Kristjón Jónsson Kristjón Jónsson 18 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 05.01.2007 at 00:42 #199293
    Profile photo of
    Anonymous

    Jæja það verður víst ekki hja því komist að setja auka kælir á skiptinguna…. um er að ræða ford f-250 2002 með 7,3 hvort er betra að setja aukakælir eða er settur stærri kælir??? og borgar sig að kaupa ser stærri pönnu undir skiptinguna???

    og annað veit einhver hvar neminn er fyrir hitamælinn?? grunar að hann se við kælinn því hitamælirinn syndi alltaf eðlilegan hita þótt allt færi af skiptingunni??? if you cant stand the heat……….

    kv mikki.

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 05.01.2007 at 12:51 #573798
    Profile photo of Hjálmtýr Guðmundsson
    Hjálmtýr Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 17

    Setja aukakæli. Mælir getur verið úttak eða inntak við skiptinguna, möguleiki að hafa ábáðum. Einnig hægt að setja mæli í pönnuna (ég er með hann þar) en passa að hann standi ekki niðurúr. Mjög mikilvægt að skiptingin hitni ekki um of.
    Fann þetta:
    Heat kills automatic transmissions. In fact, for every 20°F temperature increase above 175°F, transmission life is cut in half. Transmission life expectancy is directly related to how well the transmission fluid is able to disperse heat and withstand high temperatures.
    HG





    05.01.2007 at 13:11 #573800
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Bæta við kæli eftir að olían er búin að fara í gegnum kælinn sem er fyrir. Eins stóran og hægt er.
    Hitamælinn er best að hafa þar sem olían er að fara út úr skiptingunni.

    Finn ekki þráðinn þar sem ég fékk þessi góðu ráð en hann er hérna einhversstaðar í felum.





    05.01.2007 at 15:24 #573802
    Profile photo of Valur Sveinbjörnsson
    Valur Sveinbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 49
    • Svör: 1530

    Svona til að rifja upp þráðinn sem Tryggvi minnist á þá setti ég inn eins og ég gerði þetta hjá mér. Þegar ég byrjaði að trilla á jökla á mínum Pajero þá átti hann til að kveikja ljósið sem segir að skiptingin sé farinn að hitna, ég setti digitalmæli í hann og fölerinn þar sem vökvinn kemur út af skiptingunni. Næst þegar ég lenti í átökum kom ég mælinum í 157°C en ljósið kviknaði ekki, Eftir það náði ég mér í annan alveg eins kæli og var í honum og raðtengdi hann við þann sem var fyrir. Eftir þessa aðgerð fór hitinn aldrei upp fyrir 130°C en ég vildi samt gera betur svo ég náði mér í hágæða sjálfskiptivökva.
    Vökvinn sem seldur er á bensínstöð hefur blossamark 177°C og ef hitinn fer upp fyrir það eyðileggst vökvinn og í slæmu tilfelli rústar hann skiptingunni. Sá sem ég keypti er með blossamark 235°C og er þrisvar til fjórum sinnum dýrari, það kostar um 15-16.000kr. að skipta um á sjálfskiptingunni. Blossamarkið er ekki aðalatriðið en gefur vísbendingu um gæðin en þetta er full syntetiskur, hágæða sjálfskiptivökvi og eftir að ég var búinn að vera með hann á í tvö ár tók ég hitamælinn úr sambandi og notaði hann í annað, því ég hef ekki lengur áhyggjur af sjálfskiptingunni.
    Það er annað, menn skildu ekki vera of graðir í að kæla vökvann mikið, því sjálfskiptivökvi vinnur best á 100-120°C, of kaldur vökvi er bara til óþurftar.

    Kv. vals.





    05.01.2007 at 15:35 #573804
    Profile photo of Arnór Magnússon
    Arnór Magnússon
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 640

    Sælir

    Ég er að fara að setja auka kælir á skiptinguna hjá mér. Ég kem til með að setja auka kælirinn á undan núverandi kælir.
    Ástæðan fyrir því er að ég vil ekki láta kæla of mikið. Núverandi kælir er í vatnskassanum og hugsunin er sú að vökvin hiti sig aðeins upp aftur þegar hann rennur þar í gegn.

    En bæði þessi aðferð og sú sem Tryggvi minntist á hafa sjálfsagt báðar sína kosti og galla. Það að setja risastóran aukakælir á eftir núverandi tryggir sennilega frekar að skiptingin ofhitni aldrei sama hverjar aðstæður eru.
    Það bara hentar mér ekki, því í augnablikinu nota ég bílinn það mikið bara í dags daglegum akstri og þá yrði hún sennilega alltaf of köld.

    Kveðja
    Arnór





    05.01.2007 at 18:16 #573806
    Profile photo of Hjálmtýr Guðmundsson
    Hjálmtýr Guðmundsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 17

    Tek það fram að ég er ekki sérfærðingur í þessu en finnst þetta góð athugasemd hjá Izeman að hafa aukakælinn undan vatnskassakælinum ef hann er fyrir hendi. Hins vegar finnst mér 100°C ansi mikið miðað við þær tölur sem ég hef séð en eins og segir hér framar ætti ekki að fara uppfyrir 175°F sem eru um 80°C og þar segir líka að hverjar 20°F eða 11°C sem hitinn hækkar, helmingi líftíma skiptingarinna. Það er líka hárrétt að góð olía er mjög mikilvæg og getur ráðið úrslitum við mikið álag. Hér er grein um þetta og einmitt talað um F350 og einnig að ofkæla ekki. Það er þá gert með hitanema og framhjáhlaupi. Sjá nánar á:
    http://www.roscommonequipmentcenter.com … s/nn15.pdf





    05.01.2007 at 22:05 #573808
    Profile photo of Kristjón Jónsson
    Kristjón Jónsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 193

    Ég ætla byrja á að taka fram að ég hef ekki hundsvit á sjálfskiftingum, en fyrts menn eru að tala um að ekki sé gott að kæla of mikið dettur mér í hug að hægt sé að nota olíukæli úr patrol t.d. 93 model, í þeim er framhjáhlaup sem lokast við um 100C, ef ég man rétt, svo að olían kólni ekki of mikið. Ef menn nota gamlan olíukæli ef sennilega betra að þrífa hann vel áður en hann er notaður við sjálfskiftinu. Það eru eflaust einhverjir sem vita betur en ég hvort þetta sé nothæf lausn.





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.