Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Jólasveinar 4×4
This topic contains 42 replies, has 1 voice, and was last updated by Helena Sigurbergsdóttir 16 years, 11 months ago.
-
CreatorTopic
-
09.12.2007 at 17:33 #201350
Finnst ykkur ekki að Ferðaklúbburinn 4×4 ætti að hafa sína eigin jólasveina ?
Finnum nú nöfn á 13 jólasveina og svo byrjar fjörið að finna fólkið sem hefur unnið sér það til fræðar á árinu að hljóta jólasveinanafnbót.
til dæmis: Fararsníkir, Jöklastúfur, Öxlabrjótur, Spottaflækir, Slóðakelfir, Sófavermir……..
kveðja Lella -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
11.12.2007 at 21:00 #606140
logimar þín veika von er brostin…
ég tel mig vera einhver… og ég hef akkúrat ekkert gaman að þessu… hafið þið ekkert betra að gera í kringum jólin ;->
kv. stef… sem þolir ekki orðaleiki ;->
–
p.s. í mínum augum er Þorgeir sá almesti jeppalúði sem að ég þekki… þekki að vísu ekki marga…
11.12.2007 at 21:07 #606142Nú er bara að gefa út disk með Jéppajólalögunum og einhver veðurbitinn veðraþefur væri ekki lengi að setja saman álitlegan fjórhjólakór.
11.12.2007 at 21:30 #606144er þetta þá ekki að verða dandalafínt?
nokkuð að gera nema nefna sveinanna?
rosaleg heppni að þeir skulu allir vera karlkyns
nema Grýla og tilnefni ég Stef húmorslausu sem Grýlu 4×4 árið 2007
en hver er hver ?
Spottaflækir = Tryggvi ofurjeppamaður
Dekkjagaur
Gátustúfur = MHN
Baukasleikir = Árni Bergs
Sárasleikir
Skúraskeinir = Jenni litli
Slóðaskelfir = Jón Ofsi
Sófajarmur = Hlynur linur Snæland
Jeppakrækir
Limruskelfir = Logimar
Veðurþefur = Magnum
Tæknikrókur = Einar Eik
Fararsníkir
Jeppalúði = Þorgeir ( tilnefning frá Stef )Ha ha og hó hó
Lella
12.12.2007 at 02:23 #606146Lella…
Illur á sér ills von og hef ég breytt bak en ég átti samt ekki von á þessu og síst af öllum frá þér, Lella. Þetta kemur eins og blaut tuska í andlitið á manni og jaðrar við [url=http://www.visindavefur.hi.is/svar.asp?id=5866:3c872i0x][b:3c872i0x]ærumeiðingar[/b:3c872i0x][/url:3c872i0x] en því miður er hámarks refsing fyrir slíkt einungis tveggja ára fangelsi en eru þó sektir látnar duga sem refsing, hm týpiskt, hefði annars boðið þér á jólahlaðborð á plastbökkum frá Miðfelli.
Að halda því fram að ég sé HÚMORSLAUS er að mínu mati gjörsamlega úr lausu lofti gripið eða mesta lagi af old.f4x4.is. Ég tel mig hafa húmor en virðist samt furðu oft ein um þá skoðun en það þýðir samt ekki að ég hafi rangt fyrir mér…hm. Ég veit að hann er mjög misskilinn og er ekki allra og síst þeirra sem minnst þekkja mig og hef ég greitt mína tíund fyrir það, nokkrum sinnum ef út í það er farið. Orðið helv. þreytandi jafnvel, tekur svo á ;-> Lella, þetta er geymt en ekki gleymt, mundu það.
–
Hvað varðar [url=http://www.julli.is/jol/gryla.htm:3c872i0x][b:3c872i0x]Grýlu[/b:3c872i0x][/url:3c872i0x] þá er hún þekkt sem flagð og það er minnst á hana sem tröllkvendi ([url=http://nhlbisupport.com/bmi/:3c872i0x][b:3c872i0x]BMI[/b:3c872i0x][/url:3c872i0x] yfir 30 sjálfsagt). Orðið sjálft merkir einna helst, ógn, hótun eða hryllingur. Hún er líka alltaf svöng, endalaust hungur sem hrjáir hana. Sumar lýsingar á Grýlu eru svakalegar, jafnvel marghöfða djöflakerling og hafi marga hala (væntanlega skuldahala).Já ég get ekki neitað því að þessi lýsing passar ískyggilega við mig… spáðu í það. En ég segi samt: takk… en NEI TAKK.
–
Kv. Stef…. ekki sú skarpasta ;->
12.12.2007 at 08:24 #606148Nei takk er ekki á boðstólnum.
Ef einhver fær tilnefningu getur sá sami bent á einhvern annan með góðum rökum um afhverju hinn ætti frekar að fá tilnefninguna en NEI TAKK er ekki í boði GRÝLA
Hlakka til að hitta þig í réttarsal Stef Grýla
Kveðja Lella
sem semur reglurnar
12.12.2007 at 11:16 #606150Nú er ég að spöglera….
Réttarsalur…er það félagsheimili f4x4? Sá að það er boðið upp á [url=http://www.f4x4.is/new/calendar/default.aspx?file=2007-12-15:3nyiumlp][b:3nyiumlp]jólakakó og bingo [/b:3nyiumlp][/url:3nyiumlp] þar á laugardaginn (nema að það sé búið að fella það niður eins og svo margt annað). Vona að það verði eitthvað að borða líka, væri samt meira til í jólahlaðborð.
kv. stebba sísvanga…
p.s. mér finnst nú samt að þú Lella sem Grýla og Þorgeir sem Jeppalúði vera eins og skrifað upp úr gamansögum… ;->
12.12.2007 at 13:59 #606152Félagsmenn eru varaðir við því sést hefur til Jéppakrækis, en hann er gjarn á að krækja í álitlega jéppa.
Náðst hefur skuggamynd af búnaði Jéppakrækis og er hann heldur óhugnalegur. [img:w757n4cg]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/3929/46772.jpg[/img:w757n4cg]
13.12.2007 at 12:22 #606154Ég verð nú að segja ykkur frá einum skrítum jólasveini sem ég sá um daginn. Hann heitir Dekkjastaur hann er með tvö eða þrjú Mudder dekk utanum sig. Ég ætlaði að taka mynd af honum en þá rúllaði hann sér niður fjallið á ofur hraða. Ég hef ekki séð hann síðan ætli hann hafi ekki endað útí sjó.
19.12.2007 at 09:27 #606156jæja nú eru jólin alveg að koma og allir uppfullir af jólaandanum er það ekki ?
það vantar enn nokkrar tilnefningar á listann góða.
Svo er auglýst eftir jólasveini sem kallar sig SLÓÐASLEIKIR ? er það Ofsi hinn Ofsalegi sem gegnur undir mörgum jólasveinanöfnum eða er einhver að þykjast vera hann eða hvað er í gangi ?
Kveðja Lella
19.12.2007 at 09:40 #606158Ég ætlaði einmitt að fara að lýsa eftir akkúrat þessum sveini… Tilviljun? Samsæri?
19.12.2007 at 10:41 #606160Vélarfægir.
[img:2icmyci0]http://www.f4x4.is/new/files/photoalbums/5193/39248.jpg[/img:2icmyci0]
19.12.2007 at 11:50 #606162já það er spurning hvort er auðveldara að negla Ofsann eða finna svikarann ?
Kveðja Lella
19.12.2007 at 11:56 #606164Auðveldara að negla ofsann… skal taka þetta að mér.
19.12.2007 at 19:52 #606166Ég var að brimbretta á f4x4 og rakst á mynd, og þar undir rak ég augun í áhugavert heiti, nefninlega [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=oldsite/862/5273:34hpossx]slóðaskelfir![/url:34hpossx]
Tilviljun eða samsæri? Maður spyr sig…
Jólakveðja, Úlfr á Undanfara II
E-1851
19.12.2007 at 21:21 #606168hér fyrir norðan erum löngu búnir að hirða þetta nafn ásamt öllu öðru.
19.12.2007 at 21:31 #606170Enda er það bara í góðu lagi Slóðasleikir er miklu skemmtilegra,nær upprunanum og er það greinilega fyrsti jólasveinninn af þessum sauðum sem að er farinn að sinna skildum sínum… því að skórinn er búinn að vera út í glugga í nokkra daga … tómur… hm…
kv. stef…
p.s. Lella ég er ekki búin að gleyma þér og já, ég á harm að hefna ;->
19.12.2007 at 22:42 #606172Er nafn er Gísli nokkur Ólafsson gaf þessum annars öfluga Ram/Gunna fyrir einhverjum 3-4 árum ef ég man rétt.
19.12.2007 at 23:50 #606174Ég mótmæli harðlega þessu Slóðaskelfis nafni, Slóðasleikir skal það vera enda sleiki ég hvern slóða rækilega og alla sem hafa með þá að gera.
20.12.2007 at 00:03 #606176Sleikirðu þá sem hafa með slóða að gera???
Eitt augnablik var ég feginn að vera ekki landeigandi!
Kv.
Ásgeir
20.12.2007 at 00:03 #606178Úps!
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.