Forsíða › Forums › Spjallið › Klúbburinn › Jólasveinar 4×4
This topic contains 42 replies, has 1 voice, and was last updated by Helena Sigurbergsdóttir 16 years, 11 months ago.
-
CreatorTopic
-
09.12.2007 at 17:33 #201350
Finnst ykkur ekki að Ferðaklúbburinn 4×4 ætti að hafa sína eigin jólasveina ?
Finnum nú nöfn á 13 jólasveina og svo byrjar fjörið að finna fólkið sem hefur unnið sér það til fræðar á árinu að hljóta jólasveinanafnbót.
til dæmis: Fararsníkir, Jöklastúfur, Öxlabrjótur, Spottaflækir, Slóðakelfir, Sófavermir……..
kveðja Lella -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
09.12.2007 at 17:44 #606100
Ég gerði auðvitað tilkall til nafnsins Spottaflækir eftir tilburðina í lok [url=http://www.trigger.is/files/holaskogarferd.wmv:2kqrhl2y]þessa myndbands[/url:2kqrhl2y].
Annars koma ýmsir hugmyndir upp í hugann…
Slóðasklefir er auðvitað Jón ‘Ofsi’ Snæland, það er bara engin samkeppni.
Fararsníkir, ég er í vafa, ef það eru svona för eins og til að keyra í þá er það öðruvísi en hún Barbara er dugleg til að sníkja sér far sem farþegi…
Öxulbrjótur gætu verið þau skötuhjú til skiptis Jenni og Ásta á GMC (aka Ameríski Draumurinn).
Bæti svo einum sveini við, [b:2kqrhl2y]Olíugleypir[/b:2kqrhl2y] en það gæti t.d. verið Benni Fordmaður.
09.12.2007 at 17:57 #606102Það má hafa fararsníki fyrir þá sem sníkja sér far og þá farasníkir fyrir þann sem alltaf er í förum eftir aðra.
Hvað með Skúraskeini fyrir þá sem endalaust eru með sína bíla inni á bílskúsgólfi alla sundurtætta? Og fyrst það er kominn Olíugleypir má þá ekki Bensíntittur elta hann?Kv.
Ásgeir
09.12.2007 at 17:58 #606104þetta er nú það skemmtilegasta sem að ég hef lesið alla helgina… en ég vil nú gera það að tillögu (ekki frá mér komið) að jólasveinarnir verði 4×4 = 16. Þarf ekki hvort sem er einhverja í varahluti/varamenn.
Kv. stef semaðeraðfarastúrleiðindum.
09.12.2007 at 18:14 #606106Þessi pistill bjargaði helginni, f4x4.is voru u.þ.b að fara að fjúka út úr favorites.
Takk Lella, mér lýst vel á að vera jólasveininn Slóðaskelfir og það er bara snilld að hafa nokkra jólasveina í varahluti/til vara. Hver verður þá Rassaskellir er það Gísli sýsli og Hlynur þá Rassskelltur.
09.12.2007 at 18:29 #606108Mér finnst nú að þessir nöfn þurfi einmitt að hafa skírskotun í gömlu nöfnin. Þar af leiðandi finnst mér slóðasleikir meira viðeigandi… og bæti hér við Bjórgámur… var að velta fyrir mér tengingu við Sólina.
Og veðurþefur… td. veðurdísin úr keflavík (magnum)
kv. stef….
09.12.2007 at 20:29 #606110Mér finnst að Litludeildar-Stúfur þyrfti að vera þarna með, og Stromp-Reykir, en það þyrfti að vera patrol eigandi.
09.12.2007 at 20:49 #606112Við meigum nú ekki gleyma Jeppalúða!
09.12.2007 at 21:51 #606114Jeppalúði er náttúrulega BARA snilld, svo eru kannski Skaflaskelfir, Dekkjagaur og Spottakrókur þarna líka. Já, og meðan ég man, er þá ekki Kertasníkir gaurinn á Rockyinum sem fékk kertin hjá Stefaníu uppí í Landmannhelli? L.
10.12.2007 at 00:12 #606116Frábært í svartasta skammdeginu. Sárasleikir er hún Stefanía, Lymruskelfir er Logimar, Gátustúfur er Mhn, Baukasleikir er Árni Bergs, Jeppakrækir er Þorgeir, Tæknikrókur er Einar (Eik), svo vantar þá bræður Legusníkir, Olíusníkir og Tappasníkir. Einnig er til felguskellir.
Kv. Magnús G.
10.12.2007 at 00:45 #606118Farar-sníkir
Fara-sníkir,
Jökla-stúfur,
Öxla-brjótur,
Spotta-flækir,
Slóða-skelfir,
Sófa-vermir,
Olíu-gleypir,
Bensín-tittur,
Skúra-skeinir,
Rassa-skellir,
Veður-þefur,
Litludeildar-stúfur,
Stromp-reykir,
Jeppa-lúði,
Skafla-skelfir,
Dekkja-gaur,
Spotta-krókur,
Kerta-sníkir,
Sára-sleikir,
Lymru-skelfir,
Gátu-stúfur,
Bauka-sleikir,
Jeppa-krækir,
Tækni-krókur,
Legu-sníkir,
Olíu-sníkir,
Tappa-sníkir,
Felgu-skellir.
10.12.2007 at 11:53 #606120Það yrði bara heiður að fá að vera jólasveinninn Öxlabrjótur. Ég skal meira að segja mæta í jólasveinabúningnum með brötnu öxlana ef þess er óskað. 😀
Kv, Jenni Öxlabrjótur
10.12.2007 at 17:30 #606122ef ég kann að telja eru hér komin nöfn á 29 jeppa-jólasveina.
leist vel á tillöguna um að hafa þá 4×4=16
en þetta er gaman samt sem áður
kveðja Lella
10.12.2007 at 18:25 #606124það er hækt að fara upp í 93 + 2 + ? sem skiftist þannig
sam er Gríla og Lepalúði + köttur svo 13 sveinar og 80 tröll
en Gríla átti 3 aðra menn sem eru gleimdir. Svo að það er hækt að bæta við fleiri nöfnum
kv,,, MHN
10.12.2007 at 18:30 #606126Nú ertu alveg að tapa þér MHN í vitleysunni…
Þetta er spurning um að koma með slatta af tillögum og velja úr bestu 13-16 nöfnin til að nota….
ekki að fara að þylja upp allt stafrófið með mismunandi samsetningu…
–
Annað sem mér finnst týpiskt hérna … ég kem með tillögu sem er ekki einu sinni runnin úr mínum ranni (veit ekki af hverju þetta kom) … og það finnst öllum hún sniðug…
Tryggvi (RM) þeim finnst hugmyndin ÞÍN sniðug…
kv. stef… sem að er ekki þessi sáratýpa…
10.12.2007 at 19:51 #606128Þetta fer að verða með skemmtilegri þráðum í góðan tíma, gott að allir eru að komast í svona gott jóla(sveina)skap, hér er smá uppsuða.
.
Bráðum koma blessuð jólin
jeppakarlar hlakka til
því þá fá þeir eitthvað fallegt
í það minnsta "jeppaspil".
.
Nema Magnús, hann Á jeppaspil, (ormurinn), kveðjur, "Limruskelfir".
10.12.2007 at 20:04 #606130Já maður er nú bara að komast í jólaskvapið 😉
Kveðja
Spottaskelfir
10.12.2007 at 21:11 #606132Lella….
er ekki útkall jólasveinar inn á borðinu hjá hjálparsveitinni…. ætlið þið ekki bara að taka bjórinn og REDDA þessu…
kv. stef…. sem á langt í land með eitthvað jólaskap… en held fast í jólaskvapið frá síðustu jólum…
10.12.2007 at 23:00 #606134Jú alveg rétt hjá þér Stef, búið er að boða neyðarjólasveinahjálparsveitafund og er ég nokkuð viss um að eftir nokkra bauka verðum við búin að leysa þetta jólasveinavandamál allt saman
Hjálp Lella
semhlakkartilþegarjólinerubúinogerbúinaðtýnaölluskvapinusíðanumsíðustujól………….
11.12.2007 at 08:15 #606136var beðin um að koma eftir farandi á framfæri:
Viski þembill
Rollu vembill (pjatt rolla)
Ölkofri
Fannaþeysir
Hríðarkjabbi
Brekkubrellir
Villupúki
Krapaþvengir
Kjaftagrefill
Stjórnarhrellir
Sóffaklebbi
Ferðasníkir
Tjöruskefill (malbik)
Bigðableiðill
Jökulskeflir
Gjótusmígur
Sprunguþefur
Jöklaþveingur
Skemmileggur
Vaðhengill
HríðarslembriKveðja Lella
11.12.2007 at 20:56 #606138Samdi þessa vitleysu upp úr annarri ennþá meiri vitleysu, þessari jólasveinasögu frá MHN, https://old.f4x4.is/new/forum/default.as … rmal/10993 í þeirri veiku von að einhver hefði gaman að.
.
Skaflaskelfi fyrstan teljum
sögu hans ei dýrt við seljum
víða fór í miklum éljum
finna vildi krapa og snjó
engan slíkan fann hann þó.
.
Dekkjagaur er nokkuð hrekkinn
reyna vildi nýju dekkin
reynsla sú var nokkuð svekkin
undan bílnum hann þeim potar
gömlu dekkin áfram notar.
.
Þriðji kemur Gátustúfur
rólegur og einatt ljúfur
stundum fara út um þúfur
gáturnar hans ár og síð
ekki líkar alltaf lýð.
.
Baukasleiki, fjórða gaukinn
um má segja, ættarlaukinn
áætlanir setti í baukinn
hverja þraut hann innan tíðar
hugðist leysa fyrr en síðar.
.
Sárasleikir, fimmti, tregar
farskjótann sem utan vegar
hafnaði í hálku, þegar
aðeins tengt var afturdrif
blár og marinn, brákuð rif.
.
Sjötti, Skúraskeinir, betur
dregið alla upp hann getur
ofurdrifið í hann setur
hnýtir hnúta kruss og þvers
endar um hann þetta vers.
.
Slóðarskelfir, sjö, í röð
fundvís er á hverja tröð
hjá honum eru handtök hröð
punkta alla niður taka
svo um slóða megi aka.
.
Sófajarmur, númer átta
allt og ekkert um vill þrátta
í talstöðinni utangátta
finnast góðir þessir fundir
blessi ykkur og "góðar stundir".
.
Níundi er Jeppakrækir
heyrast ekki í honum skrækir
fjallajeppa í hann sækir
það er svo sem segin saga
hann til byggða þarf að draga.
.
Limruskelfir, hans er háttur
ljóð að semja, við það sáttur
númer tíu, sá ódráttur
yrkir þegar það á við
ef eitthvað gerist atvikið.
.
Ellefti er Veðurþefur
aldrei rólegur hann sefur
óveður öll upp hann grefur
þegar kæfir stormur vélar
við sig kann og nefið hélar.
.
Tólfti karlinn, Tæknikrókur
sagður vera nokkuð klókur
í talstöðvunum er sem hrókur
góðan eiga menn þar vin
dugmikinn við fjarskiftin.
.
Fararsníkir ók í tröðum
þrettándi í sveina röðum
um það þarf ei fletta blöðum
við Hlöðufellið festist hann
Jónas hann að sækja kann.
.
Jeppalúðar allir þessir
jákvæðir og fjallahressir
ekki er gott þú upp þá stressir
allir vilja komast hér
upp til fjalla að leika sér.
.
Með jólakveðjum og heitu kakó og piparkökum. L.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.