FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Jólaferðin á Grímsfjall 2005

by Ólafur Arnar Gunnarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Jólaferðin á Grímsfjall 2005

This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson Hlynur Snæland Lárusson 19 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 27.12.2005 at 23:01 #196939
    Profile photo of Ólafur Arnar Gunnarsson
    Ólafur Arnar Gunnarsson
    Participant

    Nú er víst í gangi árleg jeppaferð nokkurra góðra manna og kvenna á Grímsfjall. Endilega komið með upplýsingar hérna inn ef þið hafið fréttir af ferðalöngunum.

    Í ferðinni eru m.a. Hlynur Snæland, Guðni Ingimarsson og Örn Ingvi og Jón sem eru í prufutúr á tveimur 49″ Ford F-350. Ef þið vitið um hina ferðalangana þá endilega komið því hér að.

    Síðast fréttist af ferðalöngunum við Jökulheima um kvöldmatarleytið, en þá var strax komin upp bilun í öðrum Ofurfordinum. Um var að ræða orginal slöngu út úr túrbínu? sem gaf sig. Reynt var að laga slönguna, en einnig var reynt að fá nýja úr bænum. Bjuggust ferðalangar við að gista í Jökulheimum, en ekki hefur náðst samband við þá eftir það. Logn var þá í Jökulheimum og ekki rigning, en mjög blautt færi og mikill krapi.

    Endilega komið með upplýsingar hérna inn ef þið hafið fréttir af ferðalöngunum.

  • Creator
    Topic
Viewing 15 replies - 1 through 15 (of 15 total)
  • Author
    Replies
  • 27.12.2005 at 23:23 #537284
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Sindri er þarna líka – Ég vissi ekki af Guðna, er hann á eigin bíl eða Kóari ? Ég talaði við Hlyn fyrr í dag – ca um kl 17. Þá voru þeir að þræða sig á milli stöðuvatna á leið inn í jökulheima – Þá voru allir bílar í lagi og Trukkarnir að virka vel. En mér skildist að þetta væru bara 4 bílar – 2x Patrol á 44" og 2x Ford 49"

    Það síðasta sem ég heyrði þá var að Sindri kallaði eftir spotta í stöðina.

    Síðana er ég búinn að reyna öðru hverju að ná í Hlyn, en án árangurs – En sennilega eru þeir bara komnir í bauk….

    Læt vita ef ég frétti eitthvað – Pajeró er klár ef þarf að renna með varahluti til þeirra.

    Benni





    27.12.2005 at 23:35 #537286
    Profile photo of Elín Björg Ragnarsdóttir
    Elín Björg Ragnarsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 378

    Já þessu trúi ég! Sindri að biðja um spotta! Hann kemur óorði á bílinn minn…..verður bið á því að hann fái Pattann aftur lánaðann!





    27.12.2005 at 23:43 #537288
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það hversu oft menn þurfa á spotta að halda segir miklu meira um bílstjórann en bílinn. Bílstjóri sem þekkir takmarkanir bílsins þarf ekki oft á spotta að halda, jafnvel þótt hann komist ekki mikið áfram, nema þá kannske í förum.

    -Einar





    27.12.2005 at 23:55 #537290
    Profile photo of Ólafur Arnar Gunnarsson
    Ólafur Arnar Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 32
    • Svör: 544

    Hvaða stanslausu bilanir eru þetta? Er þetta ekki bara þessi eina gallaða slanga?

    Það getur vel verið að Guðni hafi hætt við að fara, þær upplýsingar sem ég hef eru greinilega ekki samkvæmt nýjustu uppfærslu.





    27.12.2005 at 23:59 #537292
    Profile photo of Kjartan Gunnsteinsson
    Kjartan Gunnsteinsson
    Participant
    • Umræður: 13
    • Svör: 312

    Benni, ætlaðir þú ekki að fara í þessa ferð og hrista slyðruorðið af pajero?
    Unnur tók eitthvað svo illa í það þegar ég bað um að fá að fara á bílnum okkar, talaði um að það færi að styttast í kvennaferð.
    Kjartan





    27.12.2005 at 23:59 #537294
    Profile photo of Ólafur A. Hallgrímsson
    Ólafur A. Hallgrímsson
    Participant
    • Umræður: 24
    • Svör: 385

    nú að sá blái hafi fyrr fengið drátt, og ekki leiðst það. En að vísu var Brúarjökullinn frekar háll.
    Að ætla sér að aka á 44 tommu í för eftir 49 tommu tröll er bara ávísun á vandræðu, enda hafa þessi tæki gengið undir nafninu Slóðaskelfir.
    Óli Hall.





    28.12.2005 at 00:07 #537296
    Profile photo of Elín Björg Ragnarsdóttir
    Elín Björg Ragnarsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 378

    Óli minn, þurftir þú nú endilega að muna eftir þessum smávægilegu vandræðum mínum þarna í vor ;)……en takk samt fyrir dráttinn.





    28.12.2005 at 00:17 #537298
    Profile photo of Ólafur Arnar Gunnarsson
    Ólafur Arnar Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 32
    • Svör: 544

    Ég man ekki betur en að menn hafi gefist upp á því að setja hummerinn á stærri dekk þar sem drifkerfið þoldi það ekki. Björgunarsveitin Ársæll losaði sig alla vegana við sinn 44" Hummer eftir að hafa gefist upp á varahlutakaupum…

    Hvernig er það annars, eitthvað að frétta af ferðamönnum? Ég held að það sé rétt, þetta eru aðeins fjórir bílar. Guðni er alla vegana ekki með í för að þessu sinni, það var smá misskilningur með það, sem nú hefur verið leiðréttur.

    Endilega komið með fréttir um leið og þær berast…





    28.12.2005 at 00:32 #537300
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    gaman að vita hvort að Hlynur sé farinn að taka gleði sína aftur eftir að ég hafði samband í kvöld….

    ég spurði hvort hann sé ekki patrol maður númer 1…..
    (þið vitið sennilega svarið við því)

    svo spurði ég hann hvort hann ætti þá ekki öll nauðsinleg verkfæri. … hann jánkaði því.

    svo spurði ég hvort hann gæti lánað mér vélar gálgan sinn.

    Og þá fór allt í flækju.

    Þetta var alveg kostulegt samtal og hefði þurft að nást á spólu. en hann lauk þessu samtali snögglega með því að segjast þurfa að bjarga einhverjum ford.





    28.12.2005 at 12:16 #537302
    Profile photo of Ólafur Arnar Gunnarsson
    Ólafur Arnar Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 32
    • Svör: 544

    Já, ég hlakka til að hitta þig á fjöllum og fá að sjá hummerinn í action. Þetta er svaka flottur bíll hjá þér. Ertu með 46"undir honum? …og ert að spá í að setja hann á 49"? Þolir skiptingin og hjólabúnaðurinn það? Hvernig hefur varahlutakostnaðurinn verið hjá þér? Hefur bíllinn ekkert verið að bila eða brjóta stýrisganginn?





    28.12.2005 at 14:08 #537304
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Ég var að spjalla við Hlyn.

    Þau voru í bíltúr í nágrenni Jökulheima – ætluðu að sulla eitthvað meira og fara jafnvel yfir á Breiðbak.

    Annars var Fordinn kominn í lag og 49" bílarnir eru að virka hrikalega vel í þessu færi.

    En það er allt á floti þarna – krapi og meiri krapi – og BARA gaman eins og Hlynur sagði.

    Þau verða aftur í Jökulheimum í nótt þannig að fjallinu verður gefið frí í þetta skiptið.

    Benni





    28.12.2005 at 22:24 #537306
    Profile photo of Björn V. Björnsson
    Björn V. Björnsson
    Participant
    • Umræður: 5
    • Svör: 200

    Alltaf gaman að fá ferskar fréttir af jeppaferðum og færð á hálendinu,verst þegar þær kafna í slagorðum milli manna(og kvenna).





    29.12.2005 at 14:20 #537308
    Profile photo of Ólafur Arnar Gunnarsson
    Ólafur Arnar Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 32
    • Svör: 544

    Var að heyra í jeppamönnum og eru þeir á heimleið frá Jökulheimum í fræbæru veðri eftir mjög leiðinlegt veður í gær. Þau eru að koma að Hraunvötnunum og gengur ferðin vel. Krapinn er farinn að frjósa og allt orðið hvítt, en stutt er niður í krapann. Patrolarnir eru að reyna að fljóta ofaná, en jarðýturnar sigla bara sinn sjó…

    Grímsfjallið var slegið af sökum lélegs skyggnis á jökli, erfiðrar færðar og bílaðrar slöngu í Ford. Það náðist að laga slönguna, en hlífa þarf bílnum til að hún haldi.

    Í gær fóru þau í smá bíltúr í kringum Jökulheima og skoðuðu m.a. Tungnána, en eftir að hafa mátað einn bíl í ána var snarlega hætt við, enda enginn tilgangur að fara yfir ána sem leit ekki vel út. Hún var öll bólgin og blá, með háum ísskörum við bakkana og óþarfi að hætta bílum og mannskap í hana.

    Búið er að festa alla bílana til skiptis í djúpum krapapollum nema bláa Ford og bíða allir spenntir eftir að það gerist… … og bíða enn… … og það verður greinilega löng bið í viðbót…

    Fordarnir virka alveg hrikalega vel í þessu færu og skilja eftir sig tvo stóra skurði sem litlu 44" Pattarnir eiga erfitt að fylgja. Þeir eru þó duglegir líka, en það er víst ekkert 38" færi þarna innfrá! 44" dekk eru algjört lágmark!

    Allir eru á heimleið í góðu veðri og er áætluð heimkoma um kvöldmatarleytið.
    Ferðalangar biðja að heilsa í bæinn.

    Kv, ÓAG.





    31.12.2005 at 11:12 #537310
    Profile photo of Örn Ingvi Jónsson
    Örn Ingvi Jónsson
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 24

    [img:35ljtng9]http://www2.propichosting.com/Images/450008105/29.jpg[/img:35ljtng9]

    Trölli kominn á fjöll..

    [img:35ljtng9]http://www2.propichosting.com/Images/450008105/30.jpg[/img:35ljtng9]

    Dæmigert.. 😛 ( Eru til nokkuð margar fleiri )

    [img:35ljtng9]http://www2.propichosting.com/Images/450008105/28.jpg[/img:35ljtng9]

    Formaður Patrolvinafélagsins í smá basli :)

    [img:35ljtng9]http://www2.propichosting.com/Images/450008105/31.jpg[/img:35ljtng9]

    Ford á fullri ferð…

    [img:35ljtng9]http://www2.propichosting.com/Images/450008105/32.jpg[/img:35ljtng9]

    Hamingjusamur Fordeigandi.. 😀

    Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla..





    31.12.2005 at 17:52 #537312
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Vil bara benda á það, til að valda ekki neinum misskilning, að ég er ekki fastur á þessum myndum. Það var bara svo gott veður að maður varð að stoppa til að njóta veðurblíðunar svona af og til. Maður setti svo bara í gír og gerði för fyrir Ford… :-)

    Áramótakveðja.

    Hlynur-Inga-Selma.





  • Author
    Replies
Viewing 15 replies - 1 through 15 (of 15 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.