Forsíða › Forums › Spjallið › Færð á fjöllum › Jöklagleraugu?
This topic contains 9 replies, has 1 voice, and was last updated by Jón Snæbjörnsson 19 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
20.04.2006 at 09:42 #197808
Þar sem reynsla mín af jöklaferðum er svo til engin langar mig að biðja ykkur um að fræða mig lítillega um hvernig maður ætti að búast, til þess að hlífa sjóninni við slíkar aðstæður.
Með fyrirfram þökk. -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
20.04.2006 at 10:00 #550150
Aðalatriðið er að vera með sólgleraugu sem loka vel fyrir þannig að geislar nái ekki að auganu bak við gleraugun. Þess vegna eru þessi jöklagleraugu gjarnan með hlífum til hliðanna eða eru sveigð eftir höfðinu. Það er hægt að fá góð jöklagleraugu í útivistarverslunum, en í venjulegri jeppaferð getur alveg dugað ódýrari gleraugu sem uppfylla þetta skilyrði. Ef hins vegar er gengið á jökli með sólina alltaf á sömu hlið er hins vegar talsverð hætta á sólblindu og hún er ekkert mjög þæginleg.
Kv – Skúli
20.04.2006 at 10:17 #550152Bestu jöklagleraugu sem þú færð eru frá CÉBE og fást í öllum betri gleraugnaverslunum. Þegar þú ert búinn að prófa þau villtu ekkert annað. Þeir sem eru að nota gleraugun á sjó eða í snjó eru að taka vörn 30-40.
20.04.2006 at 10:26 #550154
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hefur reyndst ágætlega að nota gul gleraugu við snjóblindu, þetta eru svona öryggisgleraugu, fást víða og kosta lítið
Kv. Bjarki snjóblindi
20.04.2006 at 11:18 #550156Takk fyrir skjót og góð svör. Og moggi, ég er að spá í að panta mér svona gleraugu og jafnvel ein handa þér líka. En ég ætla samt að bíða með að gera það þangað til að dollarinn verður aðeins hærri. Þá verðum við langflotta$tir.
Með kveðju…
20.04.2006 at 16:07 #550158það er tvennt sem skiptir máli í sambandi við sólgleraugu sem á að nota í snjó:
1. þau þurfa að loka vel að augana allan hringinn, en það er mismunandi hvað passar á fólk því við erum jú misjöfn
2. linsunar þurfa að filtera út þá geisla sem við viljum ekki fá í augun. Það er ekki nóg að þau séu bara með lituðum glerum eins og ýmislegt drasl sem er á markaðnum.Ég hef fengið bruna í augun eftir nokkra klukkutíma í snjó með gleraugu sem lokuðu vel, linsunar voru bara ekki góðar, enda gleraugun ódýr. Ég mæli með að fólk kaupi merkjavöru í sólgeraugum, cébe, okley, alpina eða eitthvað þannig.
20.04.2006 at 20:04 #550160Ég er með cebe gleraugu, sett nr 2.. Hinum var stolið frá mér
21.04.2006 at 01:08 #550162ég notast við tvenn gleraugu í jeppatúrnum annarsvegar er það Oakley í sólskininu og þau eru þau dekkstu sem má keyra með (man ekki alveg styrkinn) og svo hinsvegar þegar sólin fer og snjóblindan kemur þá er ég með Killer Loop gul aðeins út í órans lituð og þau svínvirka en það er satt það sem sagt var hér að ofan þegar kemur að því að velja gleraugu fyrir jeppaferðirnar þá ferðu ekki á esso þú kaupir merkjavöru þ,e,a,s ef þér er annt um augun í þér!!!!!
cébé eru mjög góð hef reynslu af þeim á snjóbretti og á 8 eða 9 parið af CéBé snjóbrettagleraugum. Sá sem sagði að jeppadellan væri ódýr hann laug en skemmtilegasta dellan er þetta og getum við allir verið sammála um það……
Kveðja Davíð R-2856 og nr 1 í Snjóræningjagenginu
21.04.2006 at 18:00 #550164Ég myndi nú segja að allt sem þú ferð með á fjöll og hefur bein áhrif á heilsu þína og öryggi ætti að vera vönduð og dýr merkjavara.
Það er oftast það sem þú ekki sérð sem skilur að ódýra dótið í Hagkaup og dýra dótið í 66°N/Útilíf/Skátabúðinni.
Trefjarnar í svefnpokanum, efnið í gleraugnalinsunum og filman innan í gallanum skipta máli, sama hvað einhver nískupúki segir.
Stóru nöfnin leggja mikla vinnu og ástríðu í að búa til afburða útivistarvörur sem að "SuperDuperMountainExpeditionExplorerExtravaganza" framleiðir síðan lélegar eftirlíkingar af og selur í stórmörkuðum og bensínstöðvum fyrir brot af því sem alvöru dótið kostar.
Þannig að þú ættir ekki að fara mikið niður fyrir 10 þús. kr þegar að jöklagleraugum kemur.
Haukur
21.04.2006 at 20:44 #550166vissulega meira fyrir merkja-vöru enda seld í hágæða þjónustu verzlunum eða þannig, er samt ekki svo viss um að það sé svo miklu betri vara en önnur "sambærileg" td eins og sú sem notuð er víða um heim hjá´þeim sem starfa við háfjallavirkjanir eða sambærilegar framkvæmidir til margra ára eða áratuga, vissulega leitast þeir eftir góðu verði en ávalt hámarks gæðum, svo það sem þú kaupir sem "merkjavöru" hjá sögðu þekkingavöruvezlun færðu kanski á tíund t.d hjá byggingavöruverzlun sem t.d. ofangreindir hafa sannreynt
hafið góðar stundir
js
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
