This topic contains 5 replies, has 1 voice, and was last updated by Hjörtur Sævar Steinason 14 years, 3 months ago.
-
Topic
-
Sælir félagar. Ég verð að koma á framfæri ánægju minni með JG Bíla á Eigilstöðum. Ég varð fyrir því að það fór framhjólalega í Fordinum rétt utan við Eigilstaði um daginn. Ég var ekki nægilega vel búinn til að skipta um þetta sjálfur, vantaði lykil og legusett. Ég komst þá í samband við JG Bíla á Eigilstöðum og þar eru alvöru kallar. „Ekkert mál, ég sendi mann til þín.“ Var svarið eftir að hafa fengið helstu upplýsingar um búnað og staðsetningu. Það er ekki flókið að segja frá því að Ingjaldur kom með legusett sem hann fann hjá kunningja sínum og skipti um þetta á svipstundu. Einnig vantaði mig milliskífuna og aðra ró sem hann reddaði líka. Allt kostaði þetta skítt og ekki neitt.
Þetta er semsagt verkstæði verkstæðanna þarna fyrir austan og kann ég þeim allra bestu þakkir fyrir. Frábær þjónusta og frábærir kallar enda allir jeppamenn.
Þessir menn fá 10 af tíu mögulegum hjá mér og ég á von á að ykkur líki þeir líka.Kveðja:
Erlingur Harðar
You must be logged in to reply to this topic.