FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Jeppi brann til kaldra kola

by Agnar Benónýsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Jeppi brann til kaldra kola

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Stefán Stefánsson Stefán Stefánsson 19 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 14.11.2005 at 14:55 #196633
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant

    Vita menn hvers konar græja þetta var og hvað gæti hafa gerst (forvitnin að drepa mann) ?


    af mbl.is –
    Eldur kom upp í stórum jeppa efst í Víkurskarði um tíuleytið í gærkvöldi, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar á Akureyri. Slökkvilið fór á staðinn en engu varð bjargað og brann bíllinn til kaldra kola. Ökumaðurinn var einn á ferð og hefur lögreglan eftir honum að bíllinn hafi skyndilega misst afl og þegar hann hafi lyft vélarhlífinni hafi eldurinn blossað upp.

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 14.11.2005 at 14:58 #532374
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Ég held að við patroleigendur séum ekki í hættu:

    [b:68569ami]"bíllinn hafi skyndilega misst afl"[/b:68569ami]

    -haffi





    14.11.2005 at 15:11 #532376
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    þarna fórstu inn á hættulega braut Haffi, notaðir orðið afl og Patrol í sömu setningunni…… þetta á eftir að snúast upp í tóma vitleysu ef ég þekki menn rétt 😉
    kv
    Aggi





    14.11.2005 at 15:22 #532378
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Bara til að fyrirbyggja miskilning þá var það ekki ætlunin að gefa í skyn að Patrol hafi afl. Ég átti við að aflleysið útilokaði pattana.

    Þannig að þeir sem voru byrjaðir á langlokupóstum geta bara ýtt á "Hætta við".

    Nothing to see here, move along.

    -haffi





    14.11.2005 at 16:36 #532380
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    þetta mun hafa verið 97-98 Range Rover
    af dýrari gerðinni. þetta er sorglegt fyrir eigandan.

    kveðja dóri hauks A-714





    14.11.2005 at 16:36 #532382
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    þetta mun hafa verið 2000 Range Rover
    af dýrari gerðinni. þetta er sorglegt fyrir eigandan.

    kveðja dóri hauks A-714





    14.11.2005 at 18:13 #532384
    Profile photo of Rangur
    Rangur
    Participant
    • Umræður: 3
    • Svör: 376

    Það skýrir þetta með aflið 😉

    Veit einhver af hverju kviknaði í? Vil síður kveikja í mínum!

    kv.

    ÞÞ





    14.11.2005 at 19:01 #532386
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Það kemur fyrir að ef olía lekur á pústgrein að þá kviknar í útfrá því og allt sem kemur frá Land Rover kemur með olíuleka þótt það sé nýtt.

    En það kom líka einu sinni fyrir mig að startarinn festist inni og það kviknaði í útfrá því…en eins og á að vera í öllum breyttum bílum þá var slökkvitæki undir sætinu og það bjargaði mér frá stóru tjóni.

    kv, Ásgeir





    14.11.2005 at 19:20 #532388
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    þessi rover var algerlega óbreyttur og þar að leiðandi ekki skyldugur til að hafa tæki í bílnum





    14.11.2005 at 20:01 #532390
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    já ég vissi það nú…var bara að benda mönnum hérna á að maður tapar ekkert á því að vera með eitt slíkt í bílnum. Hins vegar veit ég um marga sem eru ekki með svona tæki í jeppanum sínum…heldur fá það lánað til að fá skoðun á bílinn.





    14.11.2005 at 20:07 #532392
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    …….aldrei skilið það afhverju menn eru að spara sér einhverja þúsundkalla á slökkvutæki og sjúkrapúða. Þetta á að vera jafn mikilvægt og að hafa bremsur á bílnum. Það að skera sig aðeins uppá fjalli og hafa ekki plástur er ömurlegt, getur kostað leiðnda vinnu í djúphreinsun á sætum.





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.