FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Jeppar á Fjöllum

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Jeppar á Fjöllum

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 21 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 05.01.2004 at 16:52 #193393
    Profile photo of
    Anonymous

    Mér var um daginn bent á að til væri allveg mögnuð bók um jeppa og jeppamennsku sem heitir „Jeppar á fjöllum“ og var víst gefin út 1994. Veit einhver hvar væri hægt að fá þessa bók og þá kannski smá komment um hvort þetta sé góð lesning???

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 05.01.2004 at 16:58 #483384
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Fékk mína hjá Benna (Bílabúð Benna) fyrir nokkrum árum.

    -haffi





    05.01.2004 at 17:20 #483386
    Profile photo of Jón Emil Þorsteinsson
    Jón Emil Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 15
    • Svör: 64

    Sælir.

    Bókin var til í Mál og Menningu fyrir jól. Mér fannst allavega fróðlegt að lesa hana.

    Nonni
    R-2495





    06.01.2004 at 01:01 #483388
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sælir.

    Tek heilshugar undir það að þetta er góð bók og hefur elst vel. Hún er vönduð og vel unnin og efnistökin almennt góð. Því miður finnst mér vanta aðeins uppá það í nýju bókinni okkar Farið í hjólfar Ferðaklúbbsins 4×4 í 20 ár, en því miður hef ég rekist þar á talsvert af stafsetningar-, innsláttar og staðreyndavillum. Bókin annars skemmtileg og með miklu af skemmtilegum myndum, en ég játa að þetta hefur pirrað mig aðeins.

    Ferðakveðja,

    BÞV





    06.01.2004 at 01:49 #483390
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir félagar

    Já bókin Jeppar á fjöllum er að mínu áliti næstum skyldueign, það má endalaust glugga í hana í leit að fróðleik svipað og með Ekið um óbyggðir.

    Ég hef í gegnum tíðina keypt allar þessar jeppabækur og er gaman að fletta þeim við og við þegar ferðahugur grípur mann í sófanum en ég verð að játa að þær væntingar sem ég gerði til 20 ára afmælisbókarinar okkar féllu illa.

    Eins og Björn Þorri segir þá eru þarna mikið af villum og eru sumar alveg hræðilega, í mínum augum eru það ekkert annað en léleg vinnubrögð að láta svona frá sér, þetta er nefnilega ekki einhver pési sem verður hent eftir einn lestur heldur fer þessi bók í bókahilluna með öðrum jeppabókum en því miður kemst ekki á háan stall.
    Vissulega er mikið að fínum upplýsingum og mikið af stórkostlegum myndum en mér finnst samt verið að hilla mörgum þarna óþarflega mikið án þess að myndefnið gefi tilefni til.

    Ég veit að ég talaði einhvern tímann við starfmann í sambandi við útgáfuna og hvatti hann mig að senda mynd af bílnum og þá helst með eigendum líka því það ætti að setja inn myndir af félögum ásamt bílunum og kannski smá lýsingu á þeim en það fór lítið fyrir því, maður hélt að með því að aðstoða við fjármögnun á þessari bók með fyrirfram greiðslu þá kæmi eitthvað bitastæðara útúr því.
    Ég veit um menn sem hafa hætt við að kaupa bókina eftir að hafa flett henni því að þeim finnst þetta dýr myndabók.

    Kv.
    Dóri Sveins
    R-2608





    06.01.2004 at 07:28 #483392
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Tek að mörgu leyti undir með það sem sagt hefur verið um Farið, sumar myndirnar eru skemmtilegar en alls ekki ljóst með alltof margar myndir hvaða erindi þær eiga á prent í svona bók. Fyrir nú utan óvandaðan prófarkalestur. Hinsvegar finnst mér bókin hans Ofsa alveg ágæt. Helst vildi ég fá síðurnar í henni plastaðar, svo þær þoli betur það hnjask, sem bókin verður fyrir ef maður notar hana eins og manni finnst maður þurfa, þ.e. hafa hana í bílum á ferðalögum og þá er maður ekki alltaf þurr og hreinn á fingrunum!





    06.01.2004 at 09:30 #483394
    Profile photo of Þorvarður Hjalti Magnússon
    Þorvarður Hjalti Magnússon
    Participant
    • Umræður: 23
    • Svör: 170

    Jeppar á fjöllum var gefin út af Ormstungu 1994 að mig minnir. Eftir því sem ég best veit þá er hún uppseld hjá forlaginu og ófáanleg í bókabúðum. Þó er um að gera að spyrjast fyrir um þetta ef menn kíkja í bókabúð.

    Hjalti





    06.01.2004 at 10:57 #483396
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir aftur

    Gott að vita að þetta er bók sem menn mæla með.

    Ég er búinn að grafa upp upplýsingar um bókina og komst að því að hún var gefin út af Ormstungu en bókin er uppseld hjá útgefanda og öllum bókabúðum sem ég hef athugað hjá. Ég fékk þær upplýsingar hjá útgáfunni að það sé þónokkuð spurt um þessa bók og menn þar hafi velt því fyrir sér hvort ætti að endurútgefa hana en það er nú víst talsvert mál þar sem það þarf að yfir fara og endurnýja ýmsa hluti í bókinni t.d. eins og lagaákvæði.

    DóriSvein segir að þetta sé "skyldueign" og ég veit að fleiri eru sammála honum.
    Er ekki bara málið að jeppamenn taki sig saman og setji smá pressu á útgáfuna svo þeir komi þessari vinnu í gang og við fáum endurbætta útgáfu fyrir næstu jól?

    Kv O’sceary





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.