FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

jeppanum stolið

by Lúther Gestsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › jeppanum stolið

This topic contains 28 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Birkir Arnar Jónsson Birkir Arnar Jónsson 22 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 25.03.2003 at 10:02 #192400
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member

    Ég varð fyrir því í nótt sem leið að jeppanum mínum var stolið fyrir utan hús mitt heima.

    Þetta er hvítur Hilux D/C NH-439 merktur stórum stöfum Arctic Trucks bíllinn er á 38″ dekkjum og með rauðan afturhlera.

    þeir sem hafa séð bifreiðina vinsamlegast látið
    Lögregluna í RVK vita eða Lúther í síma 822-1701.
    570-5311.

    Grátkveðjur Lúther

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 28 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 25.03.2003 at 11:49 #471456
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    Rosalega er menn kaldir, þetta ætti nú ekki að vera minnst áberandi bíllinn. Ég samhryggist og vona að hann finnist heill sem fyrst. Ég er viss um að allir sem lesa þetta hafa augun opin.

    JHG





    25.03.2003 at 11:53 #471458
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Það þýðir nú líklega ekki fyrir mig að kíkja út um gluggana, en þó, aldrei að vita. En það ætti einmitt að vera vettvangurinn fyrir þá sem verða fyrir þessum andskota að koma þessu á framfæri hér á vefnum við okkur félaga sína, því við eigum að STANDA SAMAN Í SVONA MÁLUM.





    25.03.2003 at 12:54 #471460
    Profile photo of Jón Hörður Guðjónsson
    Jón Hörður Guðjónsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 680

    tttttt





    25.03.2003 at 13:28 #471462
    Profile photo of Soffía Eydís Björgvinsdóttir
    Soffía Eydís Björgvinsdóttir
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 296

    Ég vona að bíllinn komist heill og óskemmdur í leitirnar sem fyrst!! Það er ansi grátlegt að verða fyrir barðinu á svona bévítans þjófum.

    Hef augun opin!

    Skilaðu kveðju til frúarinnar!

    Kveðja,
    Soffía





    25.03.2003 at 13:53 #471464
    Profile photo of Pétur Viðar Elínarson
    Pétur Viðar Elínarson
    Member
    • Umræður: 83
    • Svör: 275

    Hvernig er þetta þjóðfélag orðið. Maður orðið heyrir af svona nánast daglega. Geta þessir menn ekki bara keypt sér faratæki eins og við hinir og látið okkar vagna vera.

    Þú átt alla mína samúð og ég mun hafa augun opin.

    Kv
    Peve





    25.03.2003 at 21:17 #471466
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég samhryggist þér og vona að þí finni bílinn þinn. Það er bara ótrúlegt hvað þessir Bevítas kallar eru frakkir að taka bíla rétt fyrir framan nefið á manni.

    Gangi þér vel vinur.
    Kobbi





    25.03.2003 at 22:39 #471468
    Profile photo of Jónas Hafsteinsson
    Jónas Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 281

    Átt þú nokkuð nýlega mynd af bílnum?

    kv. Jónas H

    [url=http://www.mmedia.is/~unimog/setur1/:2nbnuieb]Heimasíða[/url:2nbnuieb]





    26.03.2003 at 18:34 #471470
    Profile photo of Jónas Hafsteinsson
    Jónas Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 281

    Er bíllinn fundinn? Hvernig væri að félagar í 4×4 leituðu skipulega að bílnum? Það væru varla margar götur á hvern mann.

    [url=http://www.mmedia.is/~unimog/setur1/:6iolnnnw]Heimasíða[/url:6iolnnnw]





    26.03.2003 at 20:12 #471472
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    Nei jeppinn er ófundinn ennþá og er maður nú eiginlega hálfhissa á því, margir hafa hringt í mig og eiginlega stoppaði síminn ekki á tímabili og allir verið reiðubúnir
    að líta í kringum sig og láta þetta berast út,ég kann þeim öllum bestu þakkir fyrir.

    Það er kannski ekki skrítið því einmitt jeppamenn skilja vel
    hversu gríðarlegt tjón þetta er fyrir mann þó um gamlan bíl sé að ræða.
    Eiginlega leggst þetta mikið meira á sálina en ef um fólksbílinn hefði verið að ræða sem er þó eiginlega nýr.

    Mér finnst vænt um allan þann hlýhug sem félagarnir hafa
    sýnt mér, bestu kveðjur til ykkar allra.

    Lúther





    26.03.2003 at 23:47 #471474
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    Sæll Lúther.

    Fari það í kolaðar kolbrúnar kálsúpur frá Kópaskeri, fær ekkert að vera í friði hérna lengur???

    Djöfulsins aumingjar eru þetta, við þurfum að finna þá og kjöldraga í hvelli með miklum kvölum frá Kvíindisdal….

    Kolbein Kafteinn…

    Þessir fáráðar brutust inn í bíl hér við bæjardyrnar í sveitinni í haust og stálu húðarjakka virðulegs gjaldkera vors. Á hverju getur maður eiginlega átt von???

    Eru engar vísbendingar, einhversstaðar er kagginn??

    Hvar á maður að leita..???

    Ferðakveðja,

    BÞV





    27.03.2003 at 11:45 #471476
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég óttast að um sömu ástæðu sé að ræða og á dögunum er Hilux var stolið og skilinn eftir upp á heiði, hálfónýtur. Því myndi ég kanna slíka staði og ef gera á út hóp manna býð ég hér með fram aðstoð. Einfaldast væri ef þú sæir um það Lúther að hafa samband við sína vini og kunningja og nefna stað og stund, eða ákvæði það hér á þessum vettvangi. Þá kæmu menn þangað.
    bv





    27.03.2003 at 11:46 #471478
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Flýtti mér aðeins of mikið við skriftirnar!





    27.03.2003 at 12:01 #471480
    Profile photo of Theodór Kristjánsson
    Theodór Kristjánsson
    Participant
    • Umræður: 67
    • Svör: 1008

    Ég skal aðstoða





    27.03.2003 at 12:44 #471482
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Fór í gær (eins og ég geri ansi oft) Sauðárkrókur-Reykjavík-Sauðárkrókur. Horfði vel í kringum mig allan tímann(þar sem eitthvað sást fyrir snjókomu og skafrenningi). Ég held bíllinn geti varla verið nærri vegi á þessari leið. Líst vel á að menn fari í þetta eins og hvert annað félagsverkefni.





    27.03.2003 at 13:32 #471484
    Profile photo of Lúther Gestsson
    Lúther Gestsson
    Member
    • Umræður: 101
    • Svör: 1860

    þakka ykkur fyrir strákar, fyrst margir tilbúnir að
    aðstoða mig við leitina ákváðum við að hittast í mörkinni
    í kvöld og setja upp eitthvert leitarplan.
    Takk til ykkar allra.

    Kveðjur Lúther





    27.03.2003 at 13:37 #471486
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ef á að fara út í skipulagða leit er ég með
    símin er 5571454 og 8538138.
    Samúðar og stuðningskveðja .
    Stefán Baldvinsson. R-266.





    27.03.2003 at 13:44 #471488
    Profile photo of Guðmundur Óli Gunnarsson
    Guðmundur Óli Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 0
    • Svör: 143

    Fer trúlega um Vestfirði um helgina – hef augun hjá mér. Svona menn þarf að hýða opinberlega á Austurvelli – eða hleypa Bóbó svarta á þá !!!

    Hvaða árgerð er drossían?





    27.03.2003 at 13:51 #471490
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég er austan fjalls og er á ferðinni alla daga, ég skal svo sannarlega hafa augu og eyru opin.

    Með baráttukveðju

    Gunnar Már





    27.03.2003 at 13:53 #471492
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Er möguleiki að henda mynd af bílnum inná netið til að maður þekki hann. T.d. undir Lúther





    27.03.2003 at 22:35 #471494
    Profile photo of Bjarki Clausen
    Bjarki Clausen
    Participant
    • Umræður: 158
    • Svör: 1709

    Sæll Lúther
    ég samhryggist þér yfir bílnum, vonandi finnst hann sem fyrst ef hann er ekki fundinn.

    Hef augun opinn, eins og áður hefur komið fram væri
    mjög gott að fá mynd af bílnum í albúmið þitt.
    ef þú átt ekki mynd í tölvutæku get ég skannað inn mynd fyrir þig og sent þér. Svo menn eigi betra með að finna gripinn…

    baráttukveðjur…
    pajeroinn

    emailið mitt er flugan@binet.is
    s: 8204133





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 28 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.