This topic contains 1 reply, has 1 voice, and was last updated by Skúli Haukur Skúlason 17 years, 5 months ago.
-
Topic
-
Fengið að láni á vef Vesturlandsdeildarinnar:
Vesturlandsdeild ferðaklúbbsins 4×4 fór sína árlegu jeppaferð á 19 bílum með skjólstæðinga svæðismiðlunar Vesturlands Laugardagin 9 Júni.
Farið var frá Akranesi kl. 10.00 og sameinaðist hópurin í Hyrnunni í Borgarnesi, alls 47 mans en þaðan var haldið inn Skorradal og yfir Geldingardraga um Svínadal og yfir í Hvalfjörð.
Við nutum aðstoðar staðkunnurgra einstaklinga þegar komið var að því að þekkja alla bæina, fjöllin og vötnin sem á leið okkar voru, en samskipti fóru öll fram um sameiginlega rás á talstöðvum bílana, Í Hvalfirðinum var stoppað við Hvalstöðina til að skoða þessa gömlu vinnslustöð. Eftirminnileg lygtin á svæðinu bar vitni um vinnslu þar síðasliðið haust og veður það fróðlagt að vita hvert áframhaldið verður. Veðrið var frábært 15 stiga hiti, logn en sólarlaust framan af degi. Hvalfjörðurin var spegillslettur og skartaði sínu fegursta. Úr Hvalfirðinum var ekið upp Kjósarskarð að Þingvöllum og niður Grafningin og stoppað á Nesjavöllum. Í boði Orkuveitan Reykjavíkur skoðuðum við virkjunnina og hvernig rafmagnið lýsir okkur vegin og heita vatnið kemst til neytenda.
Orkuveitan bauð svo öllum í mat í Nesbúð að skoðunarferð lokinni og eiga þeir bestu þakkir skilið. Frá Nesjavöllum ókum við svokallaðan Pípuveg niður að Hafravatni og í Mosfellsbæ. Ferðin endaði svo á upphafstað um fjögurleytið.
Eins og áður var sagt þá fóru öll samskipti fram í talstöðinni, brandarar, vísur og var gleðin þar alsráðandi.
Við þökkum öllum ferðafélögum fyrir frábæran dag í góðu veðri.
Björgunarfélagi Akranes þökkum við einnig en þeir lánuðu okkur einn af bílum sínum til fararinnar.Vonandi getið þið séð myndir frá ferðinni á næstu dögum
Sumarkveðjur,
Vesturlandsdeild ferðaklúbbsins 4×4
You must be logged in to reply to this topic.