FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Jeppaakstur í Evrópu

by Stefán Guðmundsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Jeppaakstur í Evrópu

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Eiríkur Þór Eiríksson Eiríkur Þór Eiríksson 18 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.01.2007 at 22:14 #199308
    Profile photo of Stefán Guðmundsson
    Stefán Guðmundsson
    Member

    Man einhver eftir því að hafa séð póst um það að það væri bannað að aka um á breytum bílum í einstaka landi í Evrópu t.d. þýskalandi, gaman væri að heyra í mönnum sem hafa reinsluna eða alment vita eitthvað um þetta mál

    Ég veit að maður má taka með sér fólksbíl í eitt ár en það er spurning með jeppana

    KV S

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 06.01.2007 at 22:28 #574132
    Profile photo of Bjarki Logason
    Bjarki Logason
    Participant
    • Umræður: 90
    • Svör: 775

    Nei held að það sé ekki bannað að keyra breytta jeppa í þýskalandi, en ég held að það sé bannað að keyra breytta jeppa á autobana=hraðbrautum, sel það ekki dýrara en ég keypti.
    Kv Bjarki





    06.01.2007 at 22:42 #574134
    Profile photo of Sigurlaugur Þorsteinsson
    Sigurlaugur Þorsteinsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 1915

    Ég held að eitthverjir úr Vesturlandsdeildini hafi farið túr og þurftur hellings pappírsvinnu vegna undanþáguleyfa v/breyttra bíla,og eitthver sem formaðurinn þekkir fór með Ecoliner á 38" og mátti ekki flytja hann nema á vagni.
    Sel þetta á sama verði og ég fékk á
    Klakinn





    06.01.2007 at 22:54 #574136
    Profile photo of Rúnar Sigurjónsson
    Rúnar Sigurjónsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 3028

    Fór til Noregs fyrir nokkrum árum á Talibana trukknum. Engin vandamál. Maður þarf bara að hafa með sér eitthvað tryggingareyðublað og skráningarskýrteini sem sannar að bíllinn sé skráður og löglegur í heimalandinu (eins og hann stendur í útlandinu). Til þess lét ég breyta dekkjastærðarskráningunni í skráningarskýrteininu til að vera sú sama og sumardekkinn sem bíllinn var á.

    Mér var sagt að það stæði í Genfarsáttmálanum að bíll sem skráður er löglega í einu aðildarlandi meigi ferðast um öll önnur aðildalönd (þó svo að viðkomandi gæti ekki fengið löglega skráningu í þeim). Sel það ekki dýrara en ég heyrði það.

    kv
    Rúnar

    ps. Það var töluvert mikið starað á bílinn hjá manni í útlandinu, þó eingöngu af karlmönnum. Soldið fyndið.





    06.01.2007 at 23:38 #574138
    Profile photo of Ásgeir Bjarnason
    Ásgeir Bjarnason
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 340

    Sæll Rúnar.
    Genfarsáttmálinn hefur ekkert með það að gera hvernig bílum þú mátt aka í öðrum löndum.

    Nánari upplýsingar um Genfarsáttálann er að finna [url=http://rki.is/Apps/WebObjects/RedCross.woa/wa/dp?id=1000057:1gdf7q4u][b:1gdf7q4u]hér[/b:1gdf7q4u][/url:1gdf7q4u]

    Kv.
    Ásgeir





    07.01.2007 at 10:47 #574140
    Profile photo of Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Þorvarður Ingi Þorbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 468

    Sælir,
    þetta svarar kannski spurningu Stefáns bara óbeint, -en fyrir nokkrum árum stóð fyrirtækið Ísfar (Íslensk farartæki) að útflutningi á breyttum jeppum og breytingarhlutum, aðallega til þýskalands. Með því að taka út og láta taka út hina ýmsu hluti s.s. styrkleika brettakanta (þurftu að þola að x-þung stálkúla félli á brettakant úr 10m hæð eða svo) þá fengum við skráða í þýskalandi 35" og 38" breytta Toyotur (og 38" og 44" í Lettlandi). Þýskaland, land reglugerða og bókstafstrúar var nánast talið óvinnandi virki í upphafi, en svo reyndist ekki.
    Ingi





    07.01.2007 at 16:27 #574142
    Profile photo of Eiríkur Þór Eiríksson
    Eiríkur Þór Eiríksson
    Participant
    • Umræður: 21
    • Svör: 354

    Árið 2003 fórum við á 8 jeppum af Skaganum, flestum breyttum, og keyrðum um Danmörku og Þýskaland, án þess að lenda í neinum vandræðum, hvað varðar útbúnað bílana.

    Við vorum reyndar með erindi og myndasýningu úr þessari ferð á fundi í Reykjavík, þá um haustið, eins og kannski einhverjir muna.

    Það er því alls ekki rétt, að það þurfu einhverja skriffinnsku í kring um það. Við vorum reyndar með skoðunarvottorð á ensku, eða útskýringar á íslenska skoðunarvottorðinu á ensku, man nú reyndar ekki hvort það var, en það fengum við hjá Umferðarstofu. Það kom þó aldrei til þess að við þyrftum að sýna það.

    Félagar okkar, sem höfðu farið í ferð um Danmörk og Þýskaland, 2-3 árum áður, lentu hins vegar í því þegar þeir voru að koma til baka inn í Danmörku, að lögregla á landamærunum gerði athugasemdir við einn bíl, vegna þess að dekkin stóðu út fyrir kanta. Því var reddað með því að stökkva í byggingarvöruverslun og kaupa plast, sem var skrúfað á kantana í snatri.

    Ég setti nokkrar myndir úr ferðinni í albúmið mitt.

    kv.
    Eiríkur





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.