This topic contains 0 replies, has 1 voice, and was last updated by Guðbrandur Þorkell Guðbra 20 years, 5 months ago.
-
Topic
-
Í febrúarhefti (jú, það er komið til áskrifenda!) Four Wheeler er verið að segja frá Jeep Rescue, en FW hefur tekið út fullbúna prótótýpu af farartækinu og fylgir með lýsing á búnaði. Þetta er greinilega stórt og ansi þungt – estimated curb weight 6 000 lbs eða rúml. 2,7 tonn. Undirvagninn er basically Dodge Ram 2500 nema ég er ekki alveg viss um nema fjöðrunin að framan séu flatjárn, vélin er sami Cummins rokkurinn og í Raminum. Felgustærðin er 18″ með beadlocks og dekkin sem hann er presenteraður á eru Goodyear MT/R 315/80R18 sem FW kalla 37″ og ekki rengi ég það. 6 gíra beinskiptur NV5600 gírkassi. Það virðist vera álíka úrhleypibúnaður og í Hummer/HMMWV spilið er innbyggt sem og GPS og áreiðanlega margt fleira en þið getið náttúrulega skoðað þetta sjálf. Manni sýnist við fljótlega skoðun að þessi bíll þurfi 44″ a.m.k. til að þóknast okkur hér á klakanum. En svo er að sjá að það sé ekki enn búið að taka ákvörðun um framleiðslu ef ég hef skilið textann rétt með minni takmörkuðu enskukunnáttu. En þarna eru alvöru öxlar á báðum endum, AAM 3/4 ton með 8 felguboltum, ekkert klafadót. Tja, hvað segið þið félagar góðir?
You must be logged in to reply to this topic.