FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Jeep Cherokee diesel?

by Sveinn Óðinn Ingimarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Jeep Cherokee diesel?

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 21 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 06.05.2004 at 19:38 #194323
    Profile photo of Sveinn Óðinn Ingimarsson
    Sveinn Óðinn Ingimarsson
    Participant

    Eru einhverjir hér með reynslu af diesel vélunum í þessum bílum? Þetta eru 2.5L vélar framleiddar af VM Italy.
    Gamann væri að heyra eitthvað frá mönnum.
    Kveðja Sveinn

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 06.05.2004 at 19:50 #501594
    Profile photo of Þórir Gíslason
    Þórir Gíslason
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 353

    Þú ættir að hafa samband við Kristján Björnsson
    í Fellabænum hann er búin að reka svona vél árum
    saman .
    Kveðja Þórir





    06.05.2004 at 23:32 #501598
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Ég er búinn að eiga bíl með svona vél í tæp 5 ár. Bíllinn er ekinn tæplega 150 þúsund km. Ég hef skipt um glóðarkerti og ventlalokspakkningu. "fusible link" á raflögninni að glóðarkertunum gaf sig einu sinni.

    Eitt sinn hefur undirlifta "villst" með tilheyrandi hávaða.
    Líklega tengdist þetta því að heldur langt hafði liðið milli olíuskipta.

    Annað viðhald hefur vélin ekki fengið á þessum 70 þúsund km sem ég hef ekið á bílnum. Ég er mjög ánægður með vinnsluna og kraftinn. Vélin er frekar hávær fyrst eftir að hún er gangsett köld, en verður lágvær og þýðgeng þegar hún er orðin vel heit.

    -Einar





    07.05.2004 at 00:30 #501601
    Profile photo of Sighvatur Jónsson
    Sighvatur Jónsson
    Participant
    • Umræður: 4
    • Svör: 196

    Hvað er svona vél aflmikil, og er hún með tölvustýrðu olíuverki eður ei? Er hún ekki örugglega 4 cyl?

    Hvati





    07.05.2004 at 01:47 #501605
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það var nú svolítið um að þessar vélar væru notaðar í bíla svona í gamladaga, en þá eldri vélar náttúrulega og þá mixaðar í. Það kom misvel út, aðallega vegna hitavandamáls og lélegrar endingar. Annað mál er með svona þar sem vélin er væntanlega orginal í bílnum, en þó væri cherokee örugglega skemmtilegri með Benz 3.1L og svo með mesta skemmtanagildið með 360cid bensínrokk í húddinu

    Kv. Ásgeir





    07.05.2004 at 06:25 #501609
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Einhvernveginn stend ég í þeirri meiningu að þessir bílar séu ekki lengur seldir með VM diesel og séu núna með MB.
    Ég þekki til eins bíls, en maður sem ég þekki vel og hefur átt marga bíla keypti nýjan. Hann var aldrei ánægður með hann og ótal vandamál, ólíkt því sem gerist með bensín bílana, sem hafa að mér er sagt reynst afar vel.
    En svo er málið hvort þessir Evrópuframleiddu Chrysler bílar eru sambærilegir við þá bandarísku, menn greinir á um það heyrist mér.





    09.05.2004 at 23:53 #501614
    Profile photo of Sveinn Óðinn Ingimarsson
    Sveinn Óðinn Ingimarsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 195

    Einnig væri gamann að heira af reynslu manna af þessum bílum á 36-38" drifgetu og annað
    Kveðja sveinn





    10.05.2004 at 02:02 #501618
    Profile photo of Kristján Arnór Gretarsson
    Kristján Arnór Gretarsson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 971

    Hef heyrt þvi fleygt frá bif´vélavirkja að vara hlutir í MB séu óheyrilega dýrir!
    En s´´eu þeir pantaðir í MB með sama motor, sé það skömminni skárra, en sammt hátt verð!

    sel það ekki dýrara en ég stal því!





    11.05.2004 at 19:23 #501622
    Profile photo of Guðjón Helgi Ólafsson
    Guðjón Helgi Ólafsson
    Participant
    • Umræður: 3
    • Svör: 101

    Cherokee-inn var í fyrstu með Renault vél, 2,1 lítra turbo diesel. Sú var kraftlítil og átti til að fara yfir á tíma í skafrenningi, með tilheyrandi skemmdum. Síðan voru þeir boðnir með VM vélinni sem nefnd er hér að ofan, fremur grófgeng, en dugleg vél og hefur reynst vel, að því er ég kemst næst. Varðandi Benz vélina, þá er hún eingöngu í boði í Grand Cherokee sem framleiddir eru eftir sameinginu Daimler og Chrysler.
    Lýkur hér sagnaþætti um fornar diesel vélar, að sinni.

    Góðar stundir,

    Drekinn





    11.05.2004 at 23:13 #501626
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég er á 36" JEEP cherokee með 4L vélinni sjálfskiftan og er hann ekki nema rúm 1500 kg og um 190 hestöfl sem þýðir mjög gott flot og nógur kraftur til að sprauta í brekkurnar og ekki mikil eyðsla á bensíni.hef verið að fara með 38" bílum ss patrol,hilux og pajero og hafa þeir ekki þurft að bíða eftir mér fyrir ofan brekkurnar. það er mjög gott að ferðast á þessum bílum og svo er frábært hvað þeir eru léttir í stýri og svo mætti lengi telja. Vona að þetta svari einhverju. kveðja sibbi.





    16.05.2004 at 18:56 #501630
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ég var að kaupa mér svona bíl um daginn. Hann virðist vera mjög góður þó að vélin sé nú ekki hljóðlát.

    Er eitthvað sem maður ætti að passa sig á ? Einhver sagði mér að það þyrfti að herða heddboltana á 40þ. km. fresti en ég veit ekkert nánar um það.

    Einnig, hvað kostar til dæmis að breyta svona bíl í 33" eða 35" og hvar lætur maður gera svona án okurs? Hann er á 31" í dag, en þyrfti maður ekki að fá ný hlutföll í drifið ef maður fer að hækka?

    Einnig, verða þessir bílar ekki frekar ljótir þegar þeir eru komnir á 35"?

    Annars er hann ekki kraftlaus og frekar þægilegur.





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.