Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Jeep áhugamenn!!!
This topic contains 111 replies, has 1 voice, and was last updated by Jónas Stefánsson 17 years, 4 months ago.
-
CreatorTopic
-
12.04.2007 at 19:27 #200118
Hvernig væri að stofna svona óformlegan Jeep klúbb?
Svona þar sem við getum miðlað reynslu okkar og lært af öðrum, og auðvitað sýnt sig og skoðað aðra. Jafnvel farið í jeepferðir og þessháttar.
Auðvitað bæði breyttir og óbreyttir jeep bílar. Gamlir sem nýjir.
Cherokee, Wrangler, Wagoneer, Willys og hvað þeir heita allir.Hvernig lýst ykkur á það?
Kveðja
Þengill -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
13.04.2007 at 09:19 #588018
Látið mig vita þegar þið farið í ferð, svo að ég geti skipulagt dráttinn í bæjinn, hiluxinn getur nefninlega bara mallað með einn jeep í einu en ætti að geta klárað þetta á einni jeep ferðahelgi.
Kveðja, Svanur, vanur jeepdrætti og annarri jeeptengdri aðstoð.
13.04.2007 at 09:30 #588020Gunnar Ingi þú setur mig þarna með á lista í óformlegan jeep klúbb. Ég er ekki og hef aldrei verið í neinu áhugamannafélagi um vörumerki. Þó ég eigi hálf ónýtan jeppa sem á stendur jeep þá er ég bara á honum vegna þess ég fékk hann fyrir lítið á sínum tíma. Ég er hinsvegar óflokksbundinn sjáfstæðismaður.
Ég er ekki með.
gummij
13.04.2007 at 12:28 #588022Afsakaðu gummi minn að ég skuli nefna þig við eins slæman félagsskap.
Þessi félagsskapur hefur aldrei verið þekktur sem jeep klúbbur, félag né flokkur en allir keyrum við á amerískum bílum og höfum gert í gegnum tíðina (10 ár) og því nefni ég þig (gummi) sem ferðafélaga minn.
Við höfum aldrei verið klúbbur, félag né flokkur og ég tek því skrifin mín til baka að ég sé í óformlegum klúbbi.
Það rennur nú eitthvað jeep blóð í þér gummi minn… Hvaða jeppa áttirðu á undan þessum… hmm … jeep.. og hvaða jeppa var sonur þinn að kaupa sér… hmm .. jeep.
Jæja ég biðst hér formlega afsökunar á að segja að Gummi sé meðlimur í klúbbi, félagi eða flokki sem er ekki til og verður ekki stofnað og þetta gildir fyrir soninn líka.
en jeep bílar eru ódýrir jeppar sem duga vel á fjöllum og er það líklegasta ástæðan fyrir því að við félagarnir (ATH EKKI KLÚBBUR EÐA FÉLAGASAMTÖK) völdum þessi farartæki.
með von um fyrirgefningu.. 😛
kv
Gunnar X – D
13.04.2007 at 13:23 #588024Við verðu þá áfram vinir gunnar : )
X – D
13.04.2007 at 13:49 #588026Ég hefði eginlega meiri áhuga á (óformlegum) félagskap þeirra sem aka á bílum sem eru ekki alltof langt yfir kjörþyngd með tilliti til aksturs á snjó. Er ekki viss um það hvar ég myndi draga mörkin, en það mætti hugsa sér að miða við 1800-2000 kg sem egin þyngd á breyttum bíl.
Annars hefur þessi vefur virkað nokkuð vel til þess að miðla upplýsingum sem varða endurbætur og viðhald á vélbúnaði frá þessum tiltekna framleiðanda, en lengi getur gott batnað.
-Einar ,
sem er nokkuð sama hvaða gott kemur eða hvað stendur á húddinu.
13.04.2007 at 14:24 #588028ég er til hvar skrái ég mig.(Legg til að diesel verði ekki tekið með )
13.04.2007 at 14:58 #588030þetta líst mér vel á og ég er með minn verður klár seinastalagi næsta haust en ég er á rólegunótunum einsog er hehe
13.04.2007 at 22:03 #588032Ja hjérna ef ég kaupi mér ekki bara einn JEPP til að fá að vera með.?????!!!!!
kv:Kalli stórskrítnips: svona eiga menn að vera.
13.04.2007 at 22:07 #588034Úr þessu á ég ekki von á að geta fengið mér jeppa, en fyrsti bíllinn minn var Jeep Cj2A sem þætti nú ekki merkilegt tæki í dag, en það er önnur saga. Við vorum sammála um það eitt kvöldið í vetur við Óskar Erlings þegar við vorum að dást að hljóðinu í 8 cyl rokknum í Patrolnum hans, að það væri nú eftir allt saman Jeep sem rúlaði! og strukum TJ bílnum hans hátt og lágt, klóruðum honum bak við speglana og brostum aftur fyrir eyru. Eins og ég tek fram á öðrum link hérna á 4×4 vefnum, þá myndi óskabíllinn minn í dag vera Jeep Wrangler Rubicon Unlimited á 38" og með einhverjum góðum aftermarket fjöðrunarbúnaði, svo sem eins og frá Super Lift, Pro Comp eða einhverju öðru góðu fyrirtæki í þeim bransa. – By the way, Óskar; hvar tókstu þessa mynd?
13.04.2007 at 22:13 #588036þetta líst mér á ég er svo lánsamur að eiga jeep og verð að sjálfsögðu með í svona eðal félagsskap ef úr verður
jeep kveðja Halli
14.04.2007 at 00:42 #588038Mér sýnist að myndin af Wranglernum hans Óskars sé tekin á Úlfasfelli, það glittir í [url=http://www.f4x4.is/new/forum/default.aspx?file=ferdir/2777:3bs06r7s]Esjuna[/url:3bs06r7s] á bakvið.
-Einar
14.04.2007 at 01:48 #588040smá fyrir toy eigendur
gekk eithvað illa að koma myndinni inn en hérna er slóðin
old.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx … 3022/19746
14.04.2007 at 09:53 #588042
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Það er rétt þetta er tekið á Úlfarsfelli, þó svo Esjan hefði verið áhugaverðari tökustaður.
Það er ekki erfitt að komast að því hvað "rúlar" þegar undirspilið kemur úr strokkum V8 vélar
ÓE
15.04.2007 at 18:25 #588044Það eru 27 búnir að skrá sig sýnist mér.
1 Björn Þór Brynjólfsson. Wrangler 93 38"+
2 Einar Steinsson. Austurríki
3 Þórður Már Björnsson. Akureyri. Cherokee ´91 38"
4 Birgir Tryggvason. Reykjavík. Wagoneer ´89 35"(36")
5 Þengill Ólafsson. Reykjavík. Cherokee ´88 35"(36")
6 Jón Snæland. Reykjavík. Grand Cherokee óbreyttur enþá.
7 Gunnar Ingi Arnarsson. Reykjavík. Wrangler ´90 38"
8 Jacob K Hólm. Reykjavík. Wrangler Rubicon ´06 óbreyttur enþá
9 Óskar Erlingsson. Reykjavík. Jeep TJ óbreyttur enþá.
10 Björn V. Björnsson. Njarðvík. Willys ´46 38"
11 Örn Gunnþórsson. Selfossi. Grand Cherokee ´93 38"
12 Magnús Sigurðsson. Reykjavík. Wrangler 38"
13 Magús Blöndal. Lundi Svíþjóð. Wrangler ´90 38"
14 Ingvar Hermannsson. Reykjavík. Cherokee ´94 35"
15 Þorsteinn Snæland. Seltjarnarnes. Willys ´66-´96 38" og Grand Cherokee
16 Kristján K.Kolbeinsson. Reykjavík.Willys ´77 38"
17 Einar Kjartansson. Reykjavík. Cherokee XJ ´95 36"
18 Þórarinn Þórarinsson. Cherokee ´00 38"
19 Kristján Már Guðnason. Cherokee ´95 38"
20 Guðbrandur Þorkell Guðbrandsson. Sauðárkrókur
21 Haraldur Ólafsson. Garðabær. Cherokee 87" 38"
22 Þorbjörn Sigurgeirsson Reykjavík Grand Cherokee ´97 38"
23 Gísli Þór Þorkellsson Grand Cherokee ´99 38"
24 Kristinn Magnússon. Reykjavík. Wrangler ’87 38"25 Erlingur Brynjólfsson. Hornafirði. Wrangler ´91 í vinnslu
26 Arnór Magnússon. Djúpavogi. Grand Cherokee ´93 38"
27 Karl Guðnason. Hveragerði. Dreymir um Jeep. 😉
28 Svavar Þ Lárusson. Cherokee ´91 36"
29 Hörður Aðils Vilhelmsson. Reykjavík Willys ´84 38"
30 Gísli Þór Sigurðsson. Reykjavík. Willys ´46 38"
31 Víðir L.Hjartarson. Húsavík Cherokee ´92 33"
32 Birkir Jónsson. Reykjavík Wrangler ´91 38"
33 Björn Erlingsson Mosfellsbær Willys ´46 og Grand Cherokee ´96 38"
34 Kristófer Helgi Sigurðsson. Borgarnes Grand Cherokee ´95 38"
35 Pétur Friðrik Þórðarson. Kjalarnes Jeep Comanche ´90 38"
36 Ágúst Markusson Jeep Wrangler 91 38"1stk Wrangler Rubicon
10stk Cherokee XJ
7stk Grand Cherokee
1stk Wagoneer XJ
6stk Willys
1stk ComancheÞetta eru þeir bílar sem eru komnir.
Ef það er einhver á þessum lista sem vill ekki vera á honum þá endilega látið vita. Og nú auðvitað líka þeir sem vilja vera á honum en eru ekki látið einnig vita.
Og auðvitað mega líka dísel bílar vera með. Annað er ósanngjarnt.
En það er náttla líka góð hugmynd hjá "eik" að vera með undir 2 tonna klúbb.
15.04.2007 at 18:31 #588046Ég á Grand Cherokee 5,2 L. Er reyndar en á geisladiskunum en verður vonandi kominn á stærri hjól með haustinu. Og hef átt Willisa áður fyrr.
Kv Jón Snæland
15.04.2007 at 18:34 #588048Lagfært hér með.
15.04.2007 at 18:50 #588050Ég á Grand cherokee 5,2l á 38"
Kv. Þorbjörn
15.04.2007 at 19:01 #588052‘A 38" mér finnst að ég ætti lika að geta kallað mig JEEP kall í dag
kv Gísli Þór
15.04.2007 at 19:33 #588054Endilega hentu mér á listann líka, ég er á Wrangler ’87 38"!
Jeeeeeeep kveðja Kiddi
15.04.2007 at 21:29 #588056Flott framtak
eg er med Wrangler Renegade 1991
sem er i vinnslu,
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.