This topic contains 19 replies, has 1 voice, and was last updated by Ólafur Magnússon 13 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
03.01.2012 at 22:12 #221892
Litlunefndarferð verður farin laugardaginn 21. janúar n.k. Farið verður á línuveginn norðan Skjaldbreiðar og haldið austur með honum niður Mosaskarð að Ásbrandsá og áin skoðuð. Ef mögulegt er verður farið þar yfir og á Kjalveg þar sem ákvörðun verður tekin um framhaldið, en þar eru nokkrir spennandi kostir í boði, allt eftir því hvað tíminn leyfir.
Opnað verður fyrir skráningar laugardaginn 14. janúar n.k., fylgist því vel með hér á vefsíðunni.
Litlanefndin hefur pantað fullt af snjó og ljómandi veður fyrir þessa ferð.
kv. Óli, Litlunefnd
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
07.01.2012 at 22:24 #745911
Nú styttist í janúarferð Litlunefndar og er undirbúningur á fullu. Verið er að safna hópstjórum og gera klárt. Allir sem hafa áhuga taka frá laugardaginn 21. janúar

kv. Óli, Litlunefnd
13.01.2012 at 18:35 #745913Nú ættu allir áhugasamir um janúarferðina að vera í startholunum því við munum opna fyrir almennar skráningar um helgina. Þetta verður rækilega kynnt hér á vefsíðunni.
kv. Óli, Litlunefnd
14.01.2012 at 11:40 #745915Athugið að búið er að opna fyrir skráningu í Litlunefndarferðina sem verður um næstu helgi. Frétt um málið er að finna [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_content&view=article&id=1692:skraning-hafin-i-januarfere-litlunefndar&catid=75:litlanefnd&Itemid=327:30h0vbmu]hér.[/url:30h0vbmu]
Skráning ferð fram [url=http://f4x4.is/index.php?option=com_seminar&Itemid=285:30h0vbmu]hér.[/url:30h0vbmu]
kv. Óli, Litlunefnd
16.01.2012 at 10:43 #745917Það er ótrúlegur gangur í skráningum. Aðeins 2 dagar opnir og nú þegar komnar 27 skráningar. Við lokum fyrir skráningar á miðvikudagskvöld eða þegar orðið er fullt, svo það er um að gera að skrá sig sem fyrst.
kv. Óli, Litlunefnd
17.01.2012 at 15:52 #745919Nokkur pláss eru ennþá laus í Litlunefndarferðina um næstu helgi.
Nú gerir veðurspáin ráð fyrir frosti og snjókomu á laugardaginn og það verður því spennandi að sjá hvaða útúrdúra færið gefur okkur kost á.
kv. Óli, Litlunefnd
18.01.2012 at 11:44 #745921Það er alveg að verða spurning hvort þessi ferð þurfi nokkuð að fara lengra en í efri byggðir Reykjavíkur, eins og færð og veður eru núna.

18.01.2012 at 12:19 #745923Hringur um Hafravatn hljómar betur og betur
L.
18.01.2012 at 12:29 #745925Litlanefndin lætur nú ekki hvorki smá snjóföl né fortölur draga úr sér kjarkinn. Stefnum ótrauð í frábæra ferð á laugardaginn, enda gerir spáin ráð fyrir fallegu verðaveðri.
Gott undirlag, nýfallinn snjór ofaná, bjart og fallegt ferðaveður – þannig höfum við það.
Minnum svo ferðalangana á að í kvöld kl. 20:30 verður kynningarfundur vegna ferðarinnar í [url=http://www.f4x4.is/g2/main.php?g2_view=core.DownloadItem&g2_itemId=292239&g2_serialNumber=2:1vxpu5ze]félagsheimili klúbbsins[/url:1vxpu5ze].
kv. Óli, Litlunefnd
18.01.2012 at 14:29 #745927Kemst ekki á kynningarkvöldið en við félagarnir, Kominn og ég, mætum galvaskir á laugardagsmorgun.
Kveðja, Komminn og ég
18.01.2012 at 22:44 #745929Óli þetta voru engar fortölur, enda veit ég að það væri eins og skvetta vatni á gæs, það hafið þið sannað svo margoft.
Ég var nú eins og mín er von og vísa frekar að lýsa veðrinu.
Verst að komast ekki með ykkur, en vinnan er alltaf að þvælast fyrir manni. Bara góða ferð og eigið skemmtilegan dag.
19.01.2012 at 22:55 #745931Sælir félagar. Ég verð að afboða mig í þessa ferð vegna þess að ég náði ekki að klára bílinn eins og ég ætlaði mér. Góða skemmtun og verið dugleg að taka myndir.
Kv. Hjörvar Orri
20.01.2012 at 09:41 #745933Þú hefur verið afskráður Hjörvar Orri.
Það er einmitt gott að láta vita annaðhvort hér á þræðinum eða á tölvupósti til litlanefndin@f4x4.is ef forföll verða.
kv. Óli, Litlunefnd
20.01.2012 at 20:28 #745935Sæll Óli
Helgi Karl Guðmundsson verður ekki með.
kv
Guðmundur Geir
20.01.2012 at 21:53 #745937Takk Guðmundur Geir, það hefur verið fært til bókar.
kv. Óli
21.01.2012 at 10:25 #745939Góðan dag kæra jeppafólk.
Hafin er Litlunefndar ferð janúarmánaðar í frábæru veðri og skyggni.
Björn hafði samband við mig þegar hópurinn var að leggja af stað frá Þingvöllum, um 50 bílar.
Smá lágarenningur á leiðinni að Þingvöllum og 1-2 stiga frost. Flott skyggni.Ekki laust við að maður finni fyrir smá öfund þegar fréttist af hóp í slíku veðri og færð.
En við sem heima sitjum getum tekið þátt í ferðinni og fylgst með hér…[url:2l5nk90c]http://www.depill.is/f4x4[/url:2l5nk90c]
Góða ferð og skemmtið ykkur vel.
21.01.2012 at 12:48 #745941Jæja, smá fréttir af ferðalöngunum…..
Björn var kominn inn að línuvegi, smá bras á leiðinni. Tók um klukkutíma að koma hópnum upp Meyjarsætið og ca. annann tíma að komast frá Lundareykjadalsafleggjaranum og að línuveginum.
Einn bíll ákvað að snúa við, honum fylgir einn á örugga leið og snýr svo aftur í hópinn.
En góð stemming í hópnum og annað gengur vel.Ekki amalegt að vera á fjöllum í svona veðri….
21.01.2012 at 20:24 #745943Nýjustu fréttir af ferðamönnum….
Hópurinn komst inn í Tjaldfell, sumir með hjálparátaki :). Þar var ákveðið að kalla þetta gott og snúa við, þar sem var búið að vera töluvert bras, mikið um affelganir og festur.
Þegar ég talaði við Björn rétt áðan og voru síðustu bílar að koma að Uxahryggjarafleggjaranum. Væntanlega mun allt ganga vel heim, þaðan sem er nú er komið.
En væntanlega allir búnir að skemmta sér vel í blíðviðrinu og njóta útsýnisins.
Ég óska ferðafólkinu góðrar ferðar heim.
Yfir og út…..
Ásgeir P.
21.01.2012 at 23:11 #745945Gott kvöld.
Þá er aðalfararstjórinn í þessari Litlunefndarferð kominn til síns heima. Þetta var frábær dagur á fjöllum þó ekki höfum við komist alla leiðina sem stefnt var að. Langan tíma tók að koma öllum að skálunum við Tjaldafell og fórum við aðeins austurfyrir það, áður en snúið var við. Mikið var um festur og drætti, og eitthvað um affelganir. Öllum var að sjálfsögðu bjargað og allir komust heilir heim, nema Tóti sem fékk gat á hausinn.
Nánari frásögn kemur hér á vefnum á næstunni. Myndakvöld Litlunefndar verður á opnu húsi á fimmtudagskvöldið kemur.
Aðalfararstjóri þakkar hópstjórum fyrir frábært starf, einnig fréttaritara og öðrum sem lögðu okkur lið í þessari ferð. Ferðalöngum öllum þakka ég líka fyrir góðan dag í dag.
kv. Óli, Litlunefnd
26.01.2012 at 12:30 #745947Litlanefnd minnir á að myndakvöld verður á opnu húsi í kvöld.
kv. Óli
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.
