FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Jæja á ekki að koma snjór í vetur.

by Heimir Jóhannsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Jæja á ekki að koma snjór í vetur.

This topic contains 12 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 22 years, 8 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 02.10.2002 at 22:02 #191712
    Profile photo of Heimir Jóhannsson
    Heimir Jóhannsson
    Participant

    Hvernig er það strákar á ekki að fara að kólna á okkur og koma smá snjór. Á þetta kannski að vera sumar í vetur eins og síðastliðin 2 ár. Ég man eftir því að ég fór einu sinni á gömlum hilux með pabba í byrjun október, og við náðum að festa okkur á Hveravöllum. En það var í gamal daga. Var ekki alltaf meiri snjór þá? Hvað segið þið kallar sem voruð að ferðast hérna í gamla daga. Eða svona þegar 38″ radial var að koma á markað, og ég var ekki kominn með jeppa dellu. Var ekki meiri snjór þá á veturna? Eða hefur þetta kannski alltaf verið svona?

    kv,
    heijo

  • Creator
    Topic
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)
  • Author
    Replies
  • 02.10.2002 at 22:18 #463484
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Sælir…
    ‘eg ætla nú að vona að snjórinn verði almennilegur í vetur en hefur það ekki verið alltaf almennilegur snjór 3 hvert ár??? allavega er þá 3 árið núna frá því að almennilegur snjóvetur var síðast 😉

    Snjókveðja: Davíð R-2856





    03.10.2002 at 14:28 #463486
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Veturinn í fyrra var þokkalegur miða við veturna tvo þar á undan og maður var mjög bjartsýnn í vor að næsti vetur myndi verða snjóveturinn mikli. En miðað við hvernig september mánuður hefur þróast þá er maður heldur svartsýnn þessa stundina.

    En þýðir það nokkuð, verður maður bara ekki að krossa fingurna og vona það besta, það held ég nú.

    k.v.
    Mussinn





    03.10.2002 at 14:36 #463488
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það eru rúmlega 15 ár síðan ég byrjaði að fylgjast með snjóalgögum í nágrenni Reykjavíkur. fyrstu 5 árin var greinilega meiri snjór hér sum slóðir en næstu fimm árin. Síðustu fimm árin hafa þó verið enn lélegri.
    Eitt dæmi um þetta er að haustið 1998 hurfu allir snjóskaflar úr þeim hluta Esjunnar sem sést frá Reykjavík. Þá hafði þetta
    ekki gerst í meira en 30 ár. Síðan hefur þetta gerst 2001 og
    2002, Í sumar var allur snjór farinn úr Esjunni snemma í Águst.
    Annað dæmi: veturinn 1989 (eða 19990) var vegurinn yfir Hellisheiðina lokaður á hátt í tvo mánuði vegna þess að vegagerðin gafst upp á að halda veginum opnum. Á þessum árum voru skíðasvæðin í Bljáfjöllum og skálafelli oft lokuð vegna þess ófærðar en sjaldan var lokað vegna snjóleysis eftir áramót.





    03.10.2002 at 15:19 #463490
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þeir spá hörðum vetri í vetur. Vorið og sumarið hefur verið þannig. Ég get nánsat lofað því að það verður nokkuð um snjó. Allavega meira en síðastliðna vetur.





    03.10.2002 at 15:24 #463492
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir.

    Hellisheiðinn var lokuð í tæpa 2 mánuði veturinn ´88/´89. Eina ástæðan fyrir því að Hellisheiðin lokaðist var sú að Vegagerðin varð að sanna það að nýja Ölfusárósarbrúinn þótti væri mikið þarfaþing.

    Það varð að sanna að brúinn borgaði sig.

    Það var ekki það að Vegagerðin gafst upp á að halda heiðinni opinni…Enda var snjórinn ekki það mikill að ekki hefði gengið að moka hana eða blása..

    En það var engu að síður mikið meiri snjór en það hefur verið mörg undanfarinn ár…þaðer ekki hægt að neita því.

    En EIK…miðað við þær athuganir sem þú ert búinn að vera að gera…hvernig lýst þér þá að veturinn sem fframundan er? Verður einhver snjór???

    Kveðja
    Siggi Frikk





    03.10.2002 at 21:23 #463494
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Hverjir spá hörðum vetri????
    Vonandi ekki veðurstofan.





    04.10.2002 at 12:33 #463496
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Blessaðir.

    Nei það var ekki veðurstofan. Ég ætla ekki að segja hver það var. En þetta þykir nokkuð pottþétt. Það var ekki veðurstofan. ÞAð er ekkert að marka þá!!!!!!!!!!!

    kveðja
    Fjarki





    04.10.2002 at 13:31 #463498
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það væri gaman að heyra spár frá veðurglöggum mönnum um veturinn. Svo ef einhverjir þekkja góða spámenn, endilega hafið samband við þá og setjið inn "góðu" fréttirnar.

    Það er alveg rétt, það er ekkert að marka veðurstofuna. Það er ekki einu sinni hægt að treysta á að spáin hjá þeim sé vitlaus!!!

    Kveðja
    Siggi_F





    06.10.2002 at 18:17 #463500
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    mig grunar að "þeir" séu veðurklúbburinn á Dalvík. Er það rétt?

    Freyr





    06.10.2002 at 18:28 #463502
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Mér skilst að það eigi að vera þungur vetur í ár. Það er oft talað um það ef það er mikil músagangur þá er von á erfiðum vetri. Núna undarfarnar vikur hefur hann verið mikill

    Takk





    06.10.2002 at 18:35 #463504
    Profile photo of Stefán Stefánsson
    Stefán Stefánsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 2647

    Þetta líst mér á að menn séu farnir að nota gamlar og góðar aðferðir til að spá fyrir vetri. Eitt er víst að það er ekki hægt að treysta Veðurstofunni til þess. Vona bara að menn verði ekki varir við mýs í bílunum hjá sér.





    07.10.2002 at 10:03 #463506
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Getum við ekki aðlagað þessi gömlu spádómsfræði að nútímanum. Menn voru t.d. hér áður að spá fyrir vetrinum með því að lesa í garnir á rollum, spurning hvort sé ekki hægt að sjá fyrir veturinn með því að rífa púst undan gömlum Willis og lesa í það!





  • Author
    Replies
Viewing 12 replies - 1 through 12 (of 12 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.