FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Isuzu Trooper Hleðsluvandamál

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Isuzu Trooper Hleðsluvandamál

This topic contains 11 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Guðjón Helgi Ólafsson Guðjón Helgi Ólafsson 20 years, 6 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 19.11.2004 at 18:59 #194881
    Profile photo of
    Anonymous

    Ég er með Isuzu Trooper árg. 98, í sumar fór að loga dauft hleðsluljós í mælaborðinu og út frá því skipti ég út alternatornum, setti í hann öflugri Bosch alternator og við það hvarf ljósið.

    ég hef síðan í millitíðinni skipt út rafgeyminum sem var í bílnum, og allt verið í góðum gír þar til í dag..

    Nú er hleðsluljósið komið aftur upp, logar mjög dauft.

    Einhver sem veit hvað gæti verið í gangi? ég tími varla að kaupa nýjan alternator alltaf á hálfsársfresti :) …

  • Creator
    Topic
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)
  • Author
    Replies
  • 19.11.2004 at 20:04 #509060
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Þa er hugsanlegt að rafalinn sé að ofhlaða, þá þurrkar hann upp geyminn sem þá missir rýmd. Í köldu veðri fellur svo rýmdin til mikilla muna. Ef hann er að ofhlaða þá er spennustýringin biluð, stundum er hún innbyggð í rafalnum en oft er hún skrúfuð aftaná hann. Fyrir um viku síðan fór spennumælirinn í Explorernum hjá mér að tifa. Ég fór þá í rafstillingu í Dugguvogi 23 (mikið úrval og FRÁBÆR VERÐ) og keypti spennustýringu fyrir 2500 kr. Það tók mig 10 mín að skipta um og nú er allt í lagi, hann hleður 14,7-14,8V

    Það sem þú skalt gera er að mæla spennuna á geyminum, með dautt á bílnum og með hann í gangi. Þegar dautt er á honum er mjög gott ef spennan er 12,7-13V en í gangi á hún að vera 14-15V. Síðan geturðu mælt hann undir álagi (miðstöð í botn, kveikja á afturrúðuhitara, háuljósin, hiti í sætum o.s.frv. Bara kveikja á öllum rafnotendum sem eru í bílnum. Ef spennan á kerfinu fellur mjög mikið við það er rafalinn slappur. Síðan ath. vatnshæð í geyminum (lækkar ef hann ofhleður) og gott væri að mæla sýrustig (mælir eðlisþyngd sýru, 1,27 og yfir er gott).

    Freyr





    19.11.2004 at 21:00 #509062
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Smá innskot. Mesti óvinur altenatora er að gefa start með mótor í gangi, þá er altentorinn á fullri hleðslu og fær svo gríðaleg álag mjög snöggt og þá fara mjög oft díóður í altenator sem geta orsakað bilun eins og þú lýsir. Rétta leiðin við startgjöf er að tengja startkappla og hlaða með mótor á góðum snúning í svona 5mín drepa svo á mótor og svissa af og reyna að starta mótornum sem vildi ekki í gang, þannig eru litlar líkur á að skemma eitthvað en vitanlega verður að hætta áður en rafgeymarnir tæmast því annars ertu með tvo rafmagnslausa bíla.

    kv,
    Misa





    19.11.2004 at 22:23 #509064
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Eru einhver aukatæki í bílnum sem geta valdið útleiðslu?

    Getur verið að útleiðsla sé smátt og smátt að tæma geyminn?

    -haffi





    19.11.2004 at 22:46 #509066
    Profile photo of Axel Sigurðsson
    Axel Sigurðsson
    Member
    • Umræður: 55
    • Svör: 1116

    er ekki bara mínuspóllinn hjá þér laus á geyminum eða mínusvírinn í vélina laus eða eitthvað svoleiðis… ég hef lent í svipuðum vandamálum og fann út að mínusvírinn sem kemur á vélina var hálflaus, kíktu allavega á þetta





    19.11.2004 at 23:41 #509068
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sælir,

    Það er ekki um að ræða lausa póla eða neitt slíkt. Ég tók þetta allt í gegn í sumar, Keypti nýjan alternator, og rafgeymi og fór vel yfir allar tengingar.

    Það sem hefur aftur á móti einkennt bílinn er að þegar ég ræsi hann, þá hangir hann lengi á rafgeymaspennunni (rúm 12V) og mældur straumur er um 40A en svo eftir hálfa mínútu eða svo fer hann í 14.6V og þá hrapar straumurinn niður í ca 10-15A. Þannig að hann virðist vera að hlaða, þrátt fyrir að hleðsluljósið sé hálf logandi ( lýsir dauft)

    Ég skipti gamla alternatornum út vegna þess að hleðsluljósið var hálf-logandi, eins og spennustýringin væri að gefa sig. Núna síðustu daga hefur þessi alternator snuðað á reiminni ( sem ég hélt að væri vegna kulda og slakrar reimar) en svo virðist vera sem hann sé eitthvað að erfiða í upphafi. Ég er samt ekki með neinn straumfrekan búnað í bílnum, en hef samt ekki athugað með útleiðslu.

    Ef einhver á Trooper þá væri gaman að heyra frá þeim hvort spennumælirinn sé svona lengi upp hjá þeim líka eða hvort þetta sé eitthvað tilfallandi hjá mér.





    19.11.2004 at 23:52 #509070
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Þetta álag eftir ræsingu eru væntanlega glóðarkertin, þau eru í gangi þar til bíllinn hefur náð ákveðnum hita (minnir að það sé skynjari á kælivatnskerfinu, gildir almennt um síðari tíma díselbíla).

    -haffi





    19.11.2004 at 23:55 #509072
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Þegar ég les þetta aftur þá sé ég að þú talar um hálfa mínútu, þ.a. fyrri lýsing mín á ekki við…..

    -haffi





    20.11.2004 at 09:27 #509074
    Profile photo of Þorvaldur Sigurðsson
    Þorvaldur Sigurðsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 691

    Sæll!
    Fáðu einhvern kunnáttumann til að líta á díóðurnar í alternatornum. Hjá mér kom svona smáljós og smám saman tæmdist geymirinn. En þar sem ég er svo lánsamur að vinna með rafvirkjum skoðuðu þeir þetta og skiptu svo um díóðubrú og síðan hefur minn ágæti alternator ekki slegið feilpúst. Kostar ekki mikið.
    Þ





    20.11.2004 at 11:07 #509076
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sæll

    Ég á gamlann trooper sem hagaði sér eins. Dauft hleðsluljós og reyndar dauft bensínáfyllingaljós. Altarnatorinn fór þ.e. hætti að hlaða en ekkert hleðsluljós. Þá skipti ég um spennustilli og hann fór að hlaða eðlilega en alltaf var ljóstýra á hleðsluljósinu.

    Löngu seinna fór altarnetorinn að leiða út þ.e. tæmdi rafgeyminn á ca einni nóttu. Ég lét þetta ganga náttúrulega allt of lengi og sat uppi með ónýtann rafgeymi, af því að hann tæmdist og fraus trekk í trekk, og ónýtann altarnetor.

    þá keypti ég nýjann og reif hinn almennilega í sundur. Öll einangrun á statorvöfunum var brunnin í burtu.

    Þetta þíðir að ónýtur geymir tekur stuttann tíma í að eyðileggja fínann altarnetor og öfugt, ónýtur altarnetor en enga stund að skemma fína geyma. Geymarnir skemmast á því að frósa tómir og altarnetorinn á því að hlaða stöðugt á 100% álagi.

    Ég myndi skjóta á að þú sért með ónýtann altarnetor og hann með þeim gamla eru að verða búnir með geyminn líka.

    Láttu mæla rannsaka geyminn vel og vandlega og finndu altarnetor sem þú getur fengið að láni til að prufa að skipta um.

    Kv Isan





    20.11.2004 at 14:33 #509078
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Jæja eftir að hafa lesið frá ykkur um að þetta gæti verið sambandsleysi einhverstaðar, drullaðist ég til að fara með bílinn niðrá verkstæði og kíkja á gripinn..

    Þá kom í ljós að vírinn fyrir hleðsluljósið var búinn að juðast í sundur..

    Þannig að ég þarf ekki að kaupa nýjan alternator í þetta skiptið :) Enda kvikindið aðeins 4ra mánaða :)

    Spennumælirinn er samt alltaf soldinn tíma að fara yfir 13V, ég er nú samt farinn að hallast að því að það sé bara normal.

    BTW.

    Veit einhver hvað takkinn í mælaborðinu á Troopernum(með mynd af einhverskonar vafi í miðri vél) gerir? er hann tengdur inn á glóðarkertin eða hvað ? (veit bara að bíllinn gengur hraðari hægagang þegar ég smelli á hann. :) )





    20.11.2004 at 19:12 #509080
    Profile photo of Guðjón Helgi Ólafsson
    Guðjón Helgi Ólafsson
    Participant
    • Umræður: 3
    • Svör: 101

    Sælir veriði. Takkinn er til þess að bíllinn gangi hraðari hægagang, vélin nær ekki að halda réttum vinnsluhita nema við örlítið meiri inngjöf.

    Kær kveðja!

    Drekinn

    P.S Er þetta ekki skemmtilegur bíll?





  • Author
    Replies
Viewing 11 replies - 1 through 11 (of 11 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.