FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Innanstokks..

by Hjörleifur Helgi Stefánss

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Innanstokks..

This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss Hjörleifur Helgi Stefánss 18 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 07.02.2007 at 00:32 #199607
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant

    Sæl öll. Fékk þá snilldarhugmynd að líma þunnt frauðplast inn í plasttoppinn á Bronconum og vinylklæðið svo þar á, einangrað og flott en fattaði svo að auðvitað verður frauðplastið að engu við snertingu við lím. Dettur ykkur eitthvað annað efni í hug til að nota á þennan hátt?

    Kv. Hjölli.

  • Creator
    Topic
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Replies
  • 07.02.2007 at 00:41 #579426
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    veit ekki alveg hvað er best að nota en tjörumottur eru vinsælar í gólf á bílum til einangrunar

    kv Davíð





    07.02.2007 at 00:41 #579428
    Profile photo of Hilmar Örn Smárason
    Hilmar Örn Smárason
    Participant
    • Umræður: 22
    • Svör: 493

    eins og menn nota til að sofa á í tjaldferðalögum. Fæst í Rúmfatalagernum (reyndar bara á sumrinn) og í 66 norður. keypti svoleiðis um daginn og setti inní brettakantana hjá mér. Þægilegt að vinna með þetta og snikka til.

    kv. Hilmar Örn





    07.02.2007 at 10:15 #579430
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Þar fást frauðmottur með lími á annari hliðinni. Ég notaði svona mottur innan í brettakanta og það var mjög auðvelt að vinna með þær.

    Freyr





    07.02.2007 at 13:04 #579432
    Profile photo of Jakob K Hólm
    Jakob K Hólm
    Member
    • Umræður: 3
    • Svör: 144

    þessar mottur sem hilmar talar um fást í inter sport fór ekki fyrir svo löngu og verslaði





    07.02.2007 at 13:37 #579434
    Profile photo of Smári Sigurbjörnsson
    Smári Sigurbjörnsson
    Participant
    • Umræður: 20
    • Svör: 473

    Sæll Hjölli.

    Það er nú yfirleitt notaður þunnur svampur í svona æfingar.
    Þá er bara sprautað kontakt lími á flötinn sem á að klæða og svo einnig á svampinn og hann svo límdur í, sama aðferð er svo notuð á klæðningar efnið, lími sprautað á svampinn og svo á klæðninguna og svo límt upp. Bara vanda sig til að forðast krumpur.

    Kv. Smári.





    07.02.2007 at 14:32 #579436
    Profile photo of Sveinn G. Pálmason
    Sveinn G. Pálmason
    Member
    • Umræður: 26
    • Svör: 174

    Það langbesta til að einangra svona eru mottur sem heita Armaflex og fengust síðast þegar ég vissi í Þ.Þorgrímsson hf. í Ármúla. Þessar mottur hafa verið notaðar til að einangra frystikerfi, bæði rör og stóra fleti og fást í mimunandi þykktum. Eini gallinn við þessar mottur er verðið.





    07.02.2007 at 16:36 #579438
    Profile photo of Bæring J. Björgvinsson
    Bæring J. Björgvinsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 1919

    ég notaði parket mottur sem eru settar undir fljótandi parket. til að hljóð einangra. Hirunnerinn.
    mjög þægilegar og virðist ekki vera neitt vesen á þessu. (er í alveg sama ástandi núna og þegar ég setti þetta í.





    07.02.2007 at 17:51 #579440
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Svampur skal það vera, hann er ódýr og gerir sitt gagn. Þakka kærlega öllum fyrir góð svör.

    Kv. Hjölli.





  • Author
    Replies
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.