Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › IH Bílasýning
This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Sigurður Magnússon 19 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
22.04.2005 at 16:35 #195864
Skúli ertu ekki til í að missa puttana á takkaborðið og ljóstra hvað er í felum,kannski að gefa smá vísb.
kv,
JÞJ -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
22.04.2005 at 16:51 #521654
Sæll.
Nei ekki verður gefið upp að svo stöddu um hvaða bíl er verið að ræða, enn hann er flottur!!!!!
Enn Jóhannes straujaðu hvítu skyrtuna, hengdu á þig bindi og gleymdu MMC í eina kvöldstund, og upplifðu þennan nýja gæðing framm eftir nóttu.
Nissan kveðjur
Lúther
22.04.2005 at 16:55 #521656Þessi nýji jeppi verður sem sagt frumsýndur á Fimmtudagskvöldið, enn ekki síðar eins og stendur í auglýsingunni á forsíðu, my mistake sorrý.
Lúther
22.04.2005 at 17:00 #521658Skal gert Mr Lúther.
Ég neita því ekki að manni er farið að langa í aðra tegund og hver veit hvort það verði Patti.
kv
Jóhannes
22.04.2005 at 18:42 #521660Rétt að taka fram að Lúther ber alla ábyrgð á þessum texta og á heiðurinn á þessari spennandi uppákomu. Mitt hlutverk var bara að skella inn textanum og veit ekki meira en hver annar lesandi. My mistake var að setja ekki inn rétt nafn undir fréttina.
Kv – Skúli
22.04.2005 at 21:46 #521662Skúli .
Þú sem formaður ættir að sjá til þess að svona uppákoma ætti að vera á helgi.
Allar leiðir lokaðar nema malbikið og tilvalið væri fyrir okkur sveitafólkið að fara í borgarferð um helgi.
Mæli með að þið borgarbörn mótmæltuð okurstefnu aulanna hjá IH og að þeir tækju sambærileg umboð sér til fyrirmyndar.
Er að hugsa um nýjan bíl og hef afskrifað IH vegna okurstefnu í varahlutaverði.
Kv Elli
A 830.
22.04.2005 at 22:20 #521664Sæll Elli.
Hvernig stendur eiginlega á þessari gremju…..ný kominn af fjöllum í sólskinsveðri með börnum og kellum í snjóþungum brekkum, grill og allur pakkinn….Enn áður enn þessi þráður fer í einhvern meiri pirring er rétt að það komi fram að IH og félagsmenn 4×4 ákváðu ekki þessa dagsetningu í sameiningu, Þeir koma til með að frumsýna bílinn og hafa opið fyrir almenning alla næstu helgi, enn aðeins velunnurum er boðið þetta eina Fimmtudagskvöld ekki eingöngu 4×4 klúbbnum.
Enn einhverstaðar verða vondir að vera Elli minn og þess vegna voru líklega bæði Holtavörðuheiðin og Öxnadalsheiðin byggð á milli okkar.
Bestu kveðjur Norður
Lúther
22.04.2005 at 22:26 #521666Þú ert eitthvað að misskilja þetta Elli. Ég er á Patrol og hef bara ekki komið inn í varahlutabúðina hjá þeim, því Patrol bilar bara ekki. Þótt ein og ein vél fari, þá réttir maður þeim bara lykilinn brosandi og hlutunum er reddað.
Þar fyrir utan tel ég það hæpið, að þeir IH menn hringi í Skúla til að vita hvenar okkur henntar best að mæta í kynningu hjá þeim. Það er ekki nokkur afsökun fyrir þig að mæta ekki þótt þetta sé á fimtudegi. Við gætum kannski fengið túr um varahlutabúðina sem ég er ekki búinn að sjá ennþá.
Góðar stundir
22.04.2005 at 23:27 #521668Það er orðið svipað með Patrol eigendur og var með Bens þeir þekkja alla verkstæðismennina með fornafni og fjölskyldur afmælisdaga og barnaafmælin mæta þeir í sem frændur
"en það bilar aldrei hjá þeim bílinn bara smá eftirlit"
Klakinn
23.04.2005 at 00:47 #521670Upp undir köldum jökli
Átti hann Hlynur skjól
Kvalinn í köldum hjökli
í patta er ekkert skjólIH hann hringdi kaldur
þetta er ekki gott
Pattinn er skuggabaldur
hélað er littla spottKomdu nú kæri sali
seldu mér nýja vél
Svo kátt verði um fjalladali
stytti upp styrfin élJá minn kæri vinur
sjálfsagt ég gef þér rokk
Þú ert hinn eini Hlynur
Og sjaldan stígur á stokkSvo pattann þeir littlu eiga
Allir sem vilja gott
bjórinn þeir drekka meiga
Pattinn er voða flottKv Klakinn
23.04.2005 at 08:23 #521672Ég held að ástæðan fyrir því að Hlynur hefur ekki komið inn í varahlutabúðina hjá IH sé nú frekar vegna þess að þar fæst aldrei neitt, mig minnir nefnilega að hann hafi verið að tala um fyrir nokkrum dögum að smá drullupollur við Hagafellsjökul hafi kostað hann báðar driflokurnar og einn framöxul, nema það sé vegna þess að Datsún drífi svo mikið að það þurfi ekki framdrif.
Kv. Smári
23.04.2005 at 14:59 #521674Geri ráð fyrir að þetta sé Pathfinderinn en það er ekkert leyndarmál að hann hefur verið á leiðinni til Evrópu (átti að koma í mars). Það er margt áhugavert við hann og gaman að bera hann saman við Patrol, LC120 og Pajero:
2.5 l. diesel turbo int common rail vél með beinni innspýtingu (2.2 l. vélin úr X-Trail boruð í 2.5 l.). Hún er 174 hp með 403 Nm tog:
– Patrol 3.0: 158 hp, 354 Nm
– LC120 3.0: 166 hp, 410 Nm
– Pajero 2.5: 115 hp, 240 Nm
– Pajero 3.2: 161 hp, 373 NmLengd: 4.740mm
– Patrol: 5.100mm
– LC120: 4.715mm
– Pajero: 4.810mmBreidd: 1.850mm
– Patrol: 1.940mm
– LC120: 1.875mm
– Pajero: 1.885mmHæð: 1.865mm
– Patrol: 1.855mm
– LC120: 1.865mm
– Pajero: 1.855mmÞyngd: 2.135 kg
– Patrol: 2.425 kg
– LC120: 2.075 kg
– Pajero: 2.070 kg"Þróuð" sjálfstæð fjöðrun (Wishbone) að framan og aftan.
– Patrol: Hásingar að framan og aftan
– LC120: Hásing að aftan, tvöföld klafafjöðrun að framan
– Pajero: "Þróuð" sjálfstæð fjöðrun allan hringinnÁætlað verð: 4.000 þús (sjálfskiptur)
– Patrol: 4.360 þús (Luxury, sjsk)
– LC120: 4.890 þús (GX, sjsk)
– Pajero: 3.950 þús (2.5 GLX, bsk)
– Pajero: 4.490 þús (3.2 GLS, sjsk)Er þetta ekki bara efni í ágætis jeppa á góðu verði??
kveðja
Agnar
23.04.2005 at 18:53 #521676Er þá málið afgreitt þannig að:
Boddy af Dodge Durango
Vél úr GMC Sierra eða Chevy Silver. (Duramax)
Drif og undirvagn úr Ford F350
sé það sem við jeppakarlar þurfum.
Kveðjur bestar
Elli.
23.04.2005 at 19:01 #521678veit ekki hver fjandin hljóp í kallinn (Ella) nú um helgina en ég sá mér ekki annað fært en að fara og taka af honum tölvuna.
Þess má geta að kalinn er ný búinn að versla nánast nýja vél hjá IH og eru þetta væntanlega eftirköstin…
Þeim verður ekki bjargað þessum Patrol köllum…Þetta með "draumabílin" þvílikt bull og vittleisa, það er bara til einn ríkisdraumajeppi og það er Toyota með sér smíðaða klafa úr ofurstáli.
Kv.
Benni
Akureyri
23.04.2005 at 20:02 #521680Auðvitað mætum við og drekkum og etum eins og við getum!
Við þurfum að ná inn aurunum sem hverfa í yfirbygginguna á þessu kompaní-i (með okkar dyggu hjálp).
Sárasaklaus samanburður … 1 stk. hjólastillingabolti fyrir klafa 437 krónur … hjá Ísboltum 98 krónur – því miður elta þessi hlutföll alla varahluti
En það er lán að þessir bílar bila aaaaaldrei.
Siggi
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.