This topic contains 173 replies, has 1 voice, and was last updated by Bjartmar Ö. Arnarson 14 years, 7 months ago.
-
CreatorTopic
-
22.01.2010 at 23:12 #210137
sælir félagar hvernig er þessi ferð er þetta alvöru eða
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
14.03.2010 at 23:04 #678730
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Búið er að uppfæra Rout2 skrárnar í Rout3. Búið er að eyða út Rout-unum nr 05 og 11 sem lyggja um Kverkárnes og bæta við punkti á jökli í Rout-ur 3 og 9. Einnig er kominn Track fæll fyrir Ozi Explorer notendur undir Attachement, ásamt viðauka að austan.
ÓE
15.03.2010 at 14:10 #678732
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Hér koma upplýsingar sem vonandi fæstir þurfa að nýta sér en gott að hafa. Það er ekki ólíklegt að eitthvað gefi sig í svona stórferð því eru hér fjögur símanúmer.
Hér eru fyrst símanúmer fyrir Toyotu karlanna, 860 8078 Markús og 860 8076 Benni. Þessir eru með Toyota verkstæðið.
Svo eru líka númer fyrir alla hina, 893 0182 Jónas og 894 0663 Ingjaldur. Þessir eru með K2m Austurlandi.
ÓE
15.03.2010 at 15:12 #678734Hvað gera Ford eigendur, eiga þeir bara að taka með sér stóra skóflu, t.d. Bobcat á pallinum.
15.03.2010 at 15:19 #678736Nei Gústi minn – Við keyrum bara heim…
En okkur þótti vissara að fá þá til að opna toyotuverkstæðið sérstaklega… Svo verður líka sólarhringsþjónusta hjá bílakirkjugarði Egilsstaða ef verkstæðið dugir ekki
Benni
P.s.
Ætlaðirðu ekki að kaupa Ford fyrir ferð ?
15.03.2010 at 18:26 #678738Er ekki spurning um að hafa sólahringsvakt á barnum líka… á ég að útvega lykla
17.03.2010 at 11:41 #678740Á sunnudagsmorgun milli kl. og 10 verður öllum þátttökubílum stillt upp á planinu við Bónus á einskonar jeppasýningu, þ.e. þeim sem ekki þurfa að heimsækja verkstæðin sem Óskar vísar á hérna. Þess vegna er hægt að leggja bílunum þar kvöldið áður, þó ekki fyrr en eftir kl. 18 þegar verslunin hefur lokað. Bónus ætlar svo að opna fyrir okkur á sunnudagsmorgun þannig að menn geta nestað sig upp fyrir heimferðina.
Kv – Skúli
17.03.2010 at 14:35 #678742Smá viðbót til áréttingar. Þátttakendum er boðið í hádegissnarl hjá Bílabúð Benna milli kl. 11 og 13. Formleg ræsing er svo frá Select við Vesturlandsveg 13.30, þá sendir formaðurinn fyrsta bílinn af stað. Skeljungur er með 10 kr. afslátt á eldsneyti til skráðra þátttakenda og gildir hann frá og með deginum í dag gegn notkun Skeljungskortsins.
Kv – Skúli
18.03.2010 at 08:42 #678744
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Sælir félagar.
Ég verð með í bílnum staðsetningarbúnað sem hægt er að fylgjast með ferðum okkar heima við tölvuna.
Ef eitthver hefur áhuga þá er slóðin á vafraranum depill.is/f4x4 og birtist þá staðsetning okkar og ferill.
Þessi linkur verður komið í samband áður en förin hefst.Kveðja SBS ICEMAN.
18.03.2010 at 09:29 #678746þeir sem vilja geta prófað og farið inn á gpsgate.com, loggað sig inn uppi til hægri og notað usernamið "allir" og passwordið "1234"
Þarna á að vera hægt að sjá staðsetninguna hjá mér.
Þetta er nátturlega háð því að það sé gsm samband, sem er nátturlega ekki alla leið.kv
Ingi (hringir)
18.03.2010 at 10:12 #678748Þetta er snilld, ég fylgist spenntur með þessu héðan frá Svíþjóð.
Góða ferð og góða skemmtun
kv
Einar jeppalausi í Svíþjóð
18.03.2010 at 12:28 #678750Þá er komin frétt um málið á [url=http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2010/03/18/um_160_manns_yfir_halendid/:28rpqk1l]mbl.is.[/url:28rpqk1l]
kv. Óli, sem verður sófariddari um helgina
18.03.2010 at 12:54 #678752Þessi frétt á mbl.is er ekki mikils virði. Ferðin var kláruð og nefndir skálar eru ekki austan við Vatnajökul.
Kv. Steinmar
P.S. Sít í sófanum í Danmörku
18.03.2010 at 15:15 #678754En þetta var frétt samt og gaman að sjá umfjöllun. Svo voru fréttamenn á staðnum frá Stöð 2 og viðtal tekið og eitthvað …..
Gæti orðið eitthvað í fréttum í kvöld.
kv. Óli
18.03.2010 at 17:14 #678756Rétt áðan voru Guttarnir og Guinness hjá afleggjaranum að Þúfuvatnaskála en Snorri Ingimars og Sóðagengið í Nýjadal. Gaman að fylgjast með þeim á spotinu hjá Skúla .
Kv Magnús G.
18.03.2010 at 17:43 #678758Dagur var að tilkynna lendingu Guinness og Guttanna í Þúfuversskálann núna rétt í þessu.
Kv. MG
18.03.2010 at 17:54 #678760Ætli förin sjáist enn !
Það voru þó nokkuð margir sem kláruðu ferðina síðast. Þótt aldrei kæmust við í skála, ekki fréttnæmt svoleiðis smáatriði.
En fín var veislan fyrir austan og verður eflaust ekki minni núna.
Beer kælist vel í krapa !
krapastrumpurinn.
18.03.2010 at 18:02 #678762Hvað er slóðin á spottið hjá Skúla?
18.03.2010 at 18:10 #678764http://depill.is/f4x4 þetta er anar sem er með staðsetningu á bílnum, virkar ekki síður en spotið hjá skúla
http://share.findmespot.com/shared/face … EuGD0XryXs og hérna er spotið hjá Skúla
18.03.2010 at 18:14 #678766Í Þúfuveri er -5° frost, skafrenningur og sól. Benni Magg er á kvíslaveituvegi milli Þúfuvers og Nýjadals þar sem Snorri er. Formaðurinn er með Guðmundi gjaldkera og fara þeir að lenda í Nýjadal bráðlega.
Kv. MG
18.03.2010 at 18:24 #678768Var að heyra Sveinbirni Formmanni nr. 1. Hann fékk far hjá Gumma Stera og gjaldkera en Gumma vantaði einhvern til að sjá um eldamennsku og uppvask í ferðinni. Reyndar klikkaði Formaðurinn á grunndvallarbúnaði fyrir ferðina en hann gleymdi rifsberjasultunni með ostunum fyrir kvöldið. Var hann búinn að hafa samband við Ernu dóttur sína sem ætlar að skjótast með hana eftir vinnu á yarisinum góða sem er RISAsmár inn í Nýadal. Bendir allt til þess að hún nái að keyra þá uppi miðað við færð en þeirra hópur er nú kominn inn að lóni inn á Sprengisandi á leið í Nýadal. Til að staðfesta það kíkti ég á spot messenger græjuna sem Ágúst meðstjórnandi og Formaður nr. 2 er með í Patrolinum hjá sér.. (hann gat ekki fengið lánaðann neinn jeppa). Sagðist Gústi hafa gefið konunni sinni græjuna í jólagjöf en hún virðist heita Thorsteinn sem er frekar sérkennilegt kvennmannsnafn.
Sveinbjörn sagðist sjá snjó en vildi ekki viðurkenna að þetta væri flasa á augnhárunum en smá fjúk er og voru uppi hugmyndir um að setja upp snjógirðingar til að koma í veg fyrir að hann fjúki til RVk. 0 stiga hiti eða frost er fer eftir bjarstýninni.
Hóparnir eru allir á góðri siglingu bara komið upp ein bilun… ég sagði það ekki heldur hann og það var auðvitað PATROOOOOL.
Skúli, Benni 49" og fleiri góðir félagar eru fyrir framan Sterana, Einar Sól er kominn í Nýadal og byrjaður að kinda Klakahöllina. Hugsanlega þarf að kveikja í höllinni til að ná upp almennilegum hita fyrir kvöldið. Logi Ragnarsson Ritari fær ekki að ferðast með öðrum stjórnarmönnum í hóp þannig að Óskar Erlings gamall skólafélagi hans sá aumur á honum og leyfði honum að koma með JEEP hópnum. Það sem bjargaði Loga voru þrír litlir stafir sem standa fyrir framan Wagoneer nafnið á bílnum eða JEEP og að hann getur sofið í bílnum. Þeirra hópur er fyrir aftan Sterana.Er ekki annað að heyra á öllu en að menn séu gríðarlega ánægðir með að vera loksins komnir af stað í þessa langþráðu ferð og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu.
Bilanir
PATROL 1.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.