This topic contains 52 replies, has 1 voice, and was last updated by Einar Elí Magnússon 17 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
27.01.2007 at 10:20 #199510
Ys og þys var á Select á Vesturlandsvegi í morgunsárið. Litlanefndin var að fara í sinn bíltúr, Benni for(d)maður og fleiri voru að fara í björgunarleiðangur og einhverjir fleiri hópar voru þarna. Einhverjir Gemlingar ætluðu að sækja Cherokee upp á Langjökul eins og má sjá á spjallinu.
–
Kristinn frændi í litlunefndinni hringdi í mig frá Þingvöllum þar sem var glærasvell á bílastæðinu hjá þjónustumiðstöðinni. Í túnum hjá þeim eru 21 bíll. Nokkrir óbreyttir Mussóar, Gallopher, Súkka, Trooper og Wrangler ásamt nefndarmönnum. stefna þau Kaldadal upp á línuveg og á þar að leita að snjó og ævintýrum.Meira síðar
Magnús fréttaritari, (semeralltafaðvinnaumhelgar, og ferðast nánast bara í huganum). -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
27.01.2007 at 20:23 #577618
Er þetta að verða svona dagsfeð í lengri gerðinni. gott að það er sunnudagur á morgun.
27.01.2007 at 20:54 #577620þessi ferð ættla að vera með þeim betri hjá litludeild, slæmt
að komast ekki með á ofur Raf ´hrigalegum stórum dekkum
sem eru 31t + og vera með snjó?rúur til vara til að geta
gangið til næsta bæjar
kv,,, MHN
27.01.2007 at 21:11 #577622… er að frétta ? ég fæ bara í augnablikinu blablabla
ég held að maður verði að fara að fá sér eitthvað sterkara en hóstasaft ef maður á að halda sönsum í sófanum………….
Kveðja Lella
27.01.2007 at 21:13 #577624Nú eiga þeir 5 km í loftlínu niður á Gjábakkaveg og er færið aðeins farið að verða léttara.
27.01.2007 at 21:42 #577626hvað er að frétta af Danna og co,
Reykur
27.01.2007 at 21:42 #577628já litlanefndin er hægt sígandi niður á Gjábakkaveg. Krapinn drekkir alveg 38" og sitja því óbreyttu bílarnir á kviðnum á hryggjunum. Pajerobíll útlendingsins varla orðin söluhæfur nema í varahluti. Kristinn hefur líklega dregið hann yfir stein og við það fór önnur afturfelgan í harmonikku. Skiptu þeir um dekk og felgu í krapasvaði, með orginal tjakkadrasli. Seinna batt Kristinn í hann aftur og Kjartan í Kristinn og síðan var þrykkt og haggaðist hann ekki. Það var síðan Exstream Patrol þorgeirs sem losaði hann. Kjartan er búinn að klára sig af einni drifloku. Björgunarsveitin er eitthvað nálægt að leita að einhverjum vélsleðamönnum.
–
Benni og co. voru að detta niður í Hrauneyjar með bílinn hans Danna. Þar er glærahálka, en ágætis veður.Meira seinna
Magnús G.
27.01.2007 at 21:47 #577630Mér sýnist allt vera að gerast í litlu deildinni, alvöru ferð. Týpískt loksins þegar eitthvað er að gerast … þá situr maður heima.
Þessi ferð ætti að skila "nýliðunum" reynslunni ríkari í bæinn.
—
kv. stef. (semaðeralltafaðmissaafeinhverju)
27.01.2007 at 21:49 #577632Björgunarsveitin Ársæll er á leið um Kaldadal og á síðan að taka stefnuna á Tjaldafell en þar eru jeppar vélsleðamanna sem verið er að svipast eftir. En þeir eru átta saman og lögðu upp frá Hveravöllum eftir hádegi og eru ekki komnir fram. Litlanefndinn og Ársælsmenn hafa verið að kalla á þá á VHf-inu. vonum við að allt sé í lagi hjá þeim, sennilega bara einhver bilerí en einn sleðinn var skilinn eftir á Langjökli
27.01.2007 at 22:49 #577634Ársælsmenn fundu þá á Línuveginum í basli í krapa.
Allt er gott sem endar vel. Danni og Fordformaðurinn eru komnir á malbik eftir Sprengisandsferðina
27.01.2007 at 22:57 #577636Fyrirgefðu Stefanía mín, ég sá bara ekki spurningu þína hér að ofan.
Enn það er ósköp skiljanlegt að þið stelpurnar hafið ekki vit á jeppum. Ég skal reyna að útskýra þetta fyrir þér.
Sko þegar jeppa er ekið í djúpum snjó er afskaplega mikilvægt að hann hafa drifskapt að aftan og framan, framskaptið gefur jeppanum drif að frama og afsturskaptið snýr afturdrifinu.
Nú stundum er hægt að keyra jeppa í afturdrifinu einu saman í snjó, enn þá er yfirleitt talað um "gott" færi t.d harðþenni, eða föl.
Meginreglan er samt sú að ef jeppi er farinn að vikta yfir 4 tonn og keyra á hann þvert yfir hálendið um miðjan vetur, þykir gott að hafa framskapt, eiginlega bara nauðsynlegt.
Vona Stebba mín að þú hafir skilið eitthvað af þessu, annars spyrðu bara áfram.
Drattastu svo niður á sölu til mín og skoðaðu Hiluxana sem strákarnir voru að stilla upp á planinu hjá mér meðan ég var að jeppast í fjórhjóladrifinu.
LG
27.01.2007 at 23:06 #577638Tókstu eftir því að ég var fyrstur í bæinn með mitt verkefni, og allir bílar og menn heilir.
Lúdó
27.01.2007 at 23:17 #577640Litlanefndin komin á Þingvelli
Lúther hvað fórst þú í marga björgunnarleiðangra í dag ?
hahaha
kveðja Lella
27.01.2007 at 23:19 #577642Lúther þú færð prik fyrir þetta.
komast á fjöll og af fjöllum á sama deginum 😉
27.01.2007 at 23:30 #577644Lúdó meðan þú varst á fjöllum þá var ég að skoða bíla m.a. á bílasölu Plúto. Sá einn vínrauðann DC með nestisboxi á toppnum. Sá að JÞJ var búinn að stilla sínum bíl upp… sýndist hann vera "verðlaus" með öllu.
Bara gott að heyra að þessi dagur skuli hafa gengið vel hjá þér… og öllum hinum ef út í það er farið.
Takk fyrir greinagóð svör…kv. Stef.
28.01.2007 at 00:01 #577646MMC er eins og óskorinn DEMANTUR og þess vegna er ekki settur verðmiði í svona eðalbíla.
Fólk einfaldlega gengur inn og pantar tíma með bílasalanum og fær að vita prísinn á lokuðum fundi.Kv
JÞJ
28.01.2007 at 00:41 #577648Ég, Danni, Óskar og Teddi vorum komnir í bæinn fyrir um hálftíma eftir vel heppnaðan björgunartúr. Það tók um tvo tíma að laga bílinn hans Danna og síðan þurfti að gera um klukkutíma pitstop til að stilla stýrið betur og herða út í framhjólalegu.
Á uppeftirleið var mikil hálka og var Óskar ónegldi út um allan veg. Á leiðinni til baka hafði hlánað það mikið að malbikið var orðið autt frá Hrauneyjum.
Lítill snjór er á Kvíslárveituvegi og í raun má segja það sama um leiðina frá Stíflu og að bílnum, en hann var skammt frá vaðinu á Bergvatnskvísl. Og snjórinn hefur minnkað frá því um síðustu helgi. Færið í sköflunum var þó á köflum þungt og hefði þessum með allt loftið í dekkjunum eflaust tekist að festa sig um allt líkt og um síðustu helgi – Okkur gekk þó mjög vel og þurftum hvergi að slá af svo heitið gæti.
Á bakaleiðinni hafði hlánað mikið og var neðri hluti Kvíslárveituvegar og sprengisandsleiðar orðinn að vaðandi krapaelg og lítið spennandi að ferðast þarna núna.
Það þarf að frysta og snjóa duglega á svæðinu ef að það á að verða eitthvað gaman að keyra í Setrið næstu helgi.
Benni
28.01.2007 at 00:42 #577650voru þetta litlunefndar-ferðar-félagar sem héldu áfram þegar hópurinn sneri við?
kv. Magnús G.
28.01.2007 at 07:04 #577652Jæja þá má segja að við séum að setja endahnútinn á ferðina okkar.
Ég vara ræstur um kl 05 í nótt og vara verið að spyrjast fyrir um þessa 6 sem hjéldu áfram inn á línuveg er við snérum hópnum við á gær,það hafði ekkert spurst til þeirra frá því er við náðum sambandi við þá um kl 23 í gærkveldi og þá vara allt í góðum málum en gekk hægt og komum við skilaboðum frá þeim í bæinn.
Svo kom ræsið og núna voru aðstandendur orðnir órólegir yfir fréttaleysi en síðast fréttist af þeim um kl 2,30 og voru þeir þá í mjög erfiðu færi og miðaði hægt ,Lögreglan hafði samband við mig og Kjartan og í framhaldinu var farið að kalla á rás 48,(en endurvarpin á 44 virtist ekki taka við sér)það náðist samband við sama björgunarsveitarbíl og ég hafði verið í sambandi við í gær á endurvarpa FÍ er við vorum að gá að vélsleðamönnunum,Þeir höfðu ekið fram á bílana okkar á línuveginum og voru með þeim á leið niður á Kaldadal og voru þeir er ég talaði við þá um 6,30 komnir yfir úrrenslið fyrir neðan Kaldadalsveg og voru að þokast upp á veg,en gekk hægt og færið mjög þungt,og eitthvað hafði angrað þá dekk og svona smá vesen,þeir voru þreyttir og blautir en að öðru leiti amaði ekki neitt að þeim.Að sögn Einars á björgunarsveitarbílnum var ættlunin að fara með þá styðstu leið niður á Þingvöll og heim,ég hef ekki enn náð símasambandi við Davíð og félaga en reyni að heyra í þeim áður en ég skríð aftur í bólið hjá minni ektakvinnu.
Klakinn svefnlítill en mikið létt.
Ps Þeir sem voru að mynda ferðina endilega setja þær inn á síðuna eða senda mér á mailið laugi@simnet.is
28.01.2007 at 09:30 #577654
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
‘Eg var að detta í hús eftir sólahrings keyrslu er þreyttur ´hinir úr litludeild fara að detta í hús líka skrifa meira seinna geisp!
Kv Hjalti þreytti
28.01.2007 at 09:39 #577656Þá eru Davíð og félagara komnir á malbikið,ég var lagður af stað á móti þeim er ég heyrði í þeim og voru þeir þá að lenda við Þjónustumiðstöðina á Þingvöllum.
Ferðin hafði verið erfið og eitt dekk á Musso afelgaðist 2 og í seinna sinnið rifnaði það við felguna en þeir gátu tappað það og hélt viðgerðin vel og vonast þeir til að vel gangi með það í bæinn,það eina sem amaði að þeim var hungur og þorsti ásamt tóbaksleysi.
Og svona í ljósi þess að aðfinnslur og útásettningar eru algengar hér á netinu finnst mér að það ætti að vera jafn sjálfsagt að hrósa mönnum.
Ég vil þakka þeim sem voru á stærri bílunum í okkar ferð alveg sérstaklega fyrir frábæra ferðamensku og skemmtilega ferð svona þegar upp er staðið,þessir drengir og konur veittu mikla aðstoð og voru ekki að hlífa sér né bílum sínum og hræddur er ég um að við hefðum verið all miklu seinni til byggða ef þeirra hefði ekki notið við og hræddur er ég um að "Erlendur" hefði ekki komist til byggða ef Kjartan,Kristinn,Þorgeir og Broncomaðurinn(náði aldrei nafninu hans)hefðu ekki tekið það að sér að koma honum áfram sem ekki var neitt létt verk,á meðan hinir stóru bílarnir komu hinum áfram á minni dekkjunum, mér finnst ég eitthvern vegin vera ríkari að þekkja og ferðast með svona fólki,Hafið þið þökk fyrir daginn.
Kv Klakinn.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.