Forsíða › Forums › Spjallið › Færð á fjöllum › hvinur í paero sport
This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Haukur Ingi Pétursson 17 years, 5 months ago.
-
CreatorTopic
-
17.05.2007 at 15:31 #200326
er með paero sport 99 2.5d,þegar hann er kominn í 80-90 km hraða er eins og maður sitji í þotu,eins og það singji í drifum eða einhvað.ef einhver hefur hugmind hvað þetta getur verið endilega comenta.
kveðja haukur -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
17.05.2007 at 15:43 #591248
Hjólalega…. þegar þær eru mjög slitnar og lítið af koppafeiti eftir.. þá verður veghljóðið alveg óbærilegt…
kv
Gunnar
17.05.2007 at 16:13 #591250eru hjólalegur í aftur hásingu ekki í olíubaði,finst endilega að hvinurinn komi þaðan
17.05.2007 at 21:33 #591252Það er pakkdós fyrir innan leguna sem hindrar að olían komist út.
17.05.2007 at 22:08 #591254legur í drifi sennilega ónytar….
17.05.2007 at 22:55 #591256Var þetta ekki titlaður staðalbúnaður við kaup á nýum mmc :Þ
17.05.2007 at 23:21 #591258ætli maður birji ekki bara að skifta um legur út í hjól og ef það dugar ekki taka þá drifið næst.
kveðja haukur,og takk fyrir góð coment
24.05.2007 at 23:12 #591260jæja er búinn að skifta um legur í afturhásingu út í hjól en ekki skánaði þotuhljóðið í bilnum,hvaðan í fjandanum kemur þetta:( get bara alls ekki áttað mig á því.ef einhver hefur lent í þessu með svona bíl þá má sá endilega bjalla í mig í síma 6608454
25.05.2007 at 09:39 #591262Sæll Haukur
Getur nokkuð verið að þetta stafi af dekkjunum? Ertu nokkuð að keyra á grófum eða slitnum dekkjum? Ef ekki, er öruggt að einhver lega er farin. Þú verður að finna hana sem fyrst til að fyrribyggja frekari skemmdir. Ertu búinn að prófa hvort það sé nokkuð slag í pinnjóninum að aftan? Eða hvort þú sért mögulega alltaf að keyra í framdrifinu?
Ég er sjálfur á svona bíl og hef sjaldan keyrt hljóðlátari jeppa. það er því öruggt að það er eitthvað að hjá þér sem þú þarft að finna út úr sem fyrst áður en eitthvað stórt skemmist.kv.
Emil Borg
25.05.2007 at 14:42 #591264Í tilefni dagsins: Hefurður prófað að loka gluggunum?
Nei, annars nokkrar uppástungur að tilraunum:
Breytist hljóðið með eða á móti vindi?
Breytist það ef þú gefur í eða sleppir gjöfinni?
Breytist það upp og niður brekkur?
Hvað með að stíga létt á bremsurnar, breytist það þá?
Hvað ef þú kúplar frá?
Breytist það í beygjum?
Breytist það eftir undirlagi, malbik, steypa, möl?Þarna eru komnar uppástungur að tilraunum sem þú getur skemmt þér við að gera um helgina:)
Endilega komið með fleiri hugmyndir til að dunda við um helgina:)
25.05.2007 at 15:53 #591266Stuttu eftir ég setti minn á götuna fór ég Tindfjallahringin og í öll skröltinu heyrðist svo sem ekkert óvenjulegt en þegar við komum á malbikið kom þessi fíni söngur í ljós. þegar ég tók hann úr framdrifinu minkaði söngurinn töluvert. Nú við sungum saman til höfuðborgarinnar og þegar ég fór að athuga með þetta kom í ljós að millikassinn var algjörlega olíulaus, pakkdósin fyrir framskaptið var farinn og þar með öll olían, þótt aðeins væri búið að keyra bílinn um 8.000km. Þetta kostaði 14.000kr. í legur og pakkdósir og eina helgi í vinnu.
Gæti verið eitthvað svipað á ferðinni hjá þér.kv. vals.
27.05.2007 at 08:22 #591268Einu sinni lenti ég í þessu (á gamla Pajero 1988 árg)og gat engan veginn fundið hvað var að. Var að gefast upp þegar ég uppgötvaði að legan sem er utan á framdrifinu (minnir hægra megin) var farin. Þetta er ósköp venjuleg, ómerkileg kúlulega með pakkdós og sjálfsagt getur farið vatn inní ef verið er að sullast í vatni. Ef ég man rétt var ekkert stórmál að skipta.
27.05.2007 at 11:07 #591270Félagi minn var með leiðndar hvin í bílnum hjá sér sem ágerðist smátt og smátt.
í ljós kom að hjöruliðskrossar á drifskafti voru ónýtir. það kemur ótrúlegur hvinur í þetta á ferð ef þetta fer að gefa sig.
bara ein hugmyndin enn.
27.05.2007 at 22:29 #591272Líklega borgar sig ekki að vera með neina gátukeppni í þessu, þannig að þú verður bara að fá að setja hann einhversstaðar upp á lyftu og láta hlusta þetta til að staðsetja hvininn. Þegar upp er staðið er það trúlega bæði ódýrast og öruggast.
28.05.2007 at 20:45 #591274já,þetta er leiðindar hljóð sem erfitt er að finna en ég bjallaði í eitt útibú heklu,þar sagði sá ágæti maður að best til að finna svona hvin væri að fara á næstu skoðunar stöð og fá að sitja bílin á vörubílabrautina þvi að þar geta þeir látið hjólin snúast nógu hratt til að finna þetta hljóð,hvort það komi úr legum út í hjól eða drifum.
Ég læt svo vita hvað kemur út úr þessu ef það finnst einhvað.
kveðja haukur
05.06.2007 at 23:55 #591276jæja,fór með pæjuna í skoðun upp á höfða hjá frumherja,bað um að setja að dýrið yrði sett á vörubilabrautina til að spinna hjólabúnaðinn,en viti menn, ekkert fanst að,fékk 08 miða á plötuna og fór frekar pirraður í vinnuna aftur.daginn eftir datt mér í hug að prufa annan dekkjagang sem var til á verkstæðinu hjá mér og viti menn hljóðið(hvinurinn)horfin,ÓTRÚLEKT,ekki hálfslitin dekk ónít.EF einhver lendir í svipuðu birjaðu á að athuga DEKKIN.
Kveðja Haukur P
ps:þakka öllum fyrir sem skrifuðu:)
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.