FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hvert vill klúbburinn þróast?

by Skúli Haukur Skúlason

Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Hvert vill klúbburinn þróast?

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Sigurður Ásmundsson Sigurður Ásmundsson 17 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 29.10.2007 at 11:19 #201060
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant

    Athyglisverðar tölur sem bent er á hér, en þurfa kannski ekki að koma á óvart. Það má benda á að þó kostnaður klúbbsins af skrifstofuhaldi hafi hækkað þá er ég ekki viss um að aðstöðukostnaður hafi hækkað svo mjög. Fyrir ekki svo mörgum árum voru mánudagsfundir haldnir á Hótel Loftleiðum og aðstaðan þar var talsvert fyrirferðamikill liður í kostnaði klúbbsins. Ég er ekki með í kollinum hvað mikið sparaðist við að flytja fundina þaðan en það var umtalsvert. Hlutfallslega miðað við fjölda félagsmanna gæti ég trúað að aðstöðukostnaður sé lægri í dag.
    Svo er alltaf þessi spurning hvert og hvernig við viljum að klúbburinn þróist og hvernig kúrsinn sé tekinn. Þetta hefur verið aðeins í umræðunni og er kannski kjarninn í umræðu sem Ella setti af stað fyrir nokkrum vikum með aðeins öðrum formerkjum, en týndist kannski í þeirri umræðu (ég á kannski meðal annarra sök á því að umræðan snérist út í annað, en það er annað mál). Það er ekkert sjálfgefið að málið sé að klúbburinn vaxi og dafni og starfsemin aukist og víkki út í allar áttir, það heyrast líka þau sjónarmið að það sé bara gott og blessað að halda honum ‘low profile’ og hann sé svona eins og stór klíka fólks sem þekkist vel og vinnur saman að hagsmunamálum okkar. Þannig sé betra að halda utan um klúbbinn, minni hætta á að eitthvað sé gert í nafni klúbbsins sem ekki samræmist markmiðunum og mórallinn betri og skemmtilegri. Kannski bara eigingjarnt sjónarmið gamalla hunda sem vilja hafa klúbbinn fyrir sig, en það má alveg sjá punkta í röksemdinni. Ég er þó ekki að segja að þetta sé það rétta, en sjálfsagt að velta fyrir sér andstæðum kostum. Á móti þessu sjónarmiði má benda á að slagkrafturinn í hagsmunabaráttunni verður meiri eftir því sem meiri fjöldi og öflugra batterí er að baki, auk þess sem það hlýtur að vera markmið okkar að ná eyrum sem flestra með okkar sjónarmið. Það skiptir t.d. miklu máli í umhverfismálunum, því ég held að þeir sem ganga í klúbbinn verði meðvitaðri gagnvart utanvegaakstri. Stjórnvöld hlusta líka frekar á samtök með þúsundir félagsmanna að baki, en einhverja litla klíku upp á nokkur hundruð félagsmanna. Þess vegna viljum við að allir séu velkomnir og því fleiri sem ganga í klúbbinn og starfa fyrir hann, því betra. Þar fyrir utan samrýmist ‘low profile’ afskaplega illa jeppamennsku þar sem allt gengur út á að stækka og hækka!!! En svo ég haldi áfram að tala í hringi og gegn eigin röksemdum þá má líka benda á að á fyrstu árum klúbbsins náðu menn miklum árangri í að hafa áhrif á stjórnvöld þrátt fyrir smæð klúbbsins þá miðað við í dag. Það var einfaldlega með því að setja fram góðar röksemdir og mikilli og markvísri vinnu. Kannski má segja að smæðin hafi nýst í þessu tilfelli, því klúbburinn kom fram sem ein skýr rödd og full samstaða. Það var í raun á þessum tíma sem stóru sigrarnir voru unnir, núna erum við aðeins að reyna að verja þá sigra.
    Vildi bara varpa þessari umræðu út í loftið innan klúbbsins. Eiginlega er ekki málið að spyrja hvort rétt hafi verið að ráða starfsmann í fullt starf, frekar spurning hvort þörfin fyrir starfsmanninn eigi að vera til staðar. Ég er ekki að spyrja af því ég haldi að við séum endilega á vitlausri leið, heldur af því að það er alltaf holt öðru hvoru að líta aðeins á gps tækið og vita hver stefnan er og afhverju við stefnum þangað sem við stefnum.
    Kv – Skúli

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 29.10.2007 at 11:55 #601332
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Það er vissulega gott að velta þessum hlutum fyrir sér öðru hverju.

    Mín framtíðarsýn á klúbbinn var algerlega skýr þegar ég settist í stól formanns og mér tókst, ásamt mínu samstarfsfólki að koma hluta af því til leiðar. Hluti af því var að bæta húsnæðisaðstöðu og ráða starfsmann í fullt starf.

    Ég hef lengi stýrt hagsmunasamtökum í ýmsum greinum, bæði hérlendis og í Evrópu. Í öllum tilvikum sem að ég þekki þá er hagsmunabarátta fyrir stærri hópa alltaf auðveldari, sérstaklega ef um félagsskap um áhugamál er að ræða. Auðvitað geta fáir einstaklingar náð heilmiklu fram með lobbyisma og að maður tali ekki um ef maður þekkir mann sem ræður einhverju…

    Það var því mín sýn á þennan klúbb að hann þyrfti að vaxa og dafna og félagafjöldinn að verða eins mikill og mögulegt er. Í því samhengi má nefna að ég og aðrir í stjórninni notuðum yfirleitt heildarfélagafjölda (með aukafélögum) þegar við vorum spurð opinberlega hversu margir væru í klúbbnum.

    Það er nauðsynlegt að fá inn í félagsskapin nýtt fólk og úr sem flestum áttum. Þess vegna var litla nefndin, eins og hún var í það minnsta, ein mikilvægasta nefndin innan klúbbsins þar sem að mest nýliðun átti sér stað í gegnum hana. Mín von var alltaf sú að menn færu að auglýsa ferðir hennar í blöðum og gera þetta svolítið "grand" og fá með því miklu fleiri inn í félagsskapinn.

    Eins hefði ég viljað ná að koma því í kring að senda öllum eigendum jeppa erindi um klúbbinn og fræðsu um náttúruvernd o.fl. Þetta hefði ég síðan vilja að yrði sent af umferðarstofu með skráningarskírteinum – þarna hefði gefist kostur á að ná til þúsunda aðila sem ekkert vita um klúbbinn og ferðamennsku á hálendinu, en eiga samt farartæki sem mætti nota til sumar- og léttari ferða.

    Ég myndi vilja sjá þennan klúbb með a.m.k. 10.000 félagsmenn, sitt eigið húsnæði, tvo til þrjá starfsmenn í fullu starfi og nóg framboð af ferðum fyrir félagsmenn á öllum gerðum bíla.

    Eins vill ég að klúbburinn hætti rekstri fjarskiptakerfa í náinni framtíð og eyði ferkar þeim tíma og peningum sem fer í að halda úti endurvarpakerfinu í umhverfisnefndina og hennar starf – enda ekki vanþörf á ef að við ætlum að fá að ferðast um landið áfram á okkar forsendum. Auk þess mun væntanlega verða til nóg af fjarskiptamöguleikum yfir lengri vegalengdir innan skamms, ef ekki nú þegar og við getum áfram notað VHF á milli bíla.

    En þetta er bara svona smá innlegg í viðbót…

    Og að lokum þá er klúbbnum eins og hann er í dag algerlega nauðsynlegt að geta boðið þeim einstakling sem tekur að sér formennsku upp á að vinna starfið sem fullt starf – Þar er ég viss um að Skúli er mér sammála. Enda er í raun fáránlegt að ætlast til þess að öll sú vinna sem á sér stað af formanni og reyndar flestum stjórnarmönnum sé unnin í sjálfboðavinnu – í raun er það ekkert annað en frekja ef menn ætlast til þess.

    Benni





    29.10.2007 at 12:12 #601334
    Profile photo of Tryggvi R. Jónsson
    Tryggvi R. Jónsson
    Participant
    • Umræður: 50
    • Svör: 2648

    Það er spurning, ég hef aðeins verið að liggja yfir því sem menn voru að segja á landsfundinum og verið að reyna að vinna upp úr því punkta fyrir stjórn til að setja "kúrsinn" eftir og ég var einhvern veginn ekki búinn að sjá "litla klíku" eða "low profile" út úr því sem þar kom fram. M.v. núverandi félagafjölda held ég að það sé of seint í rassinn gripið að ætla þessu félagi að verða lítið og sætt. Þau skilaboð sem þaðan komu voru kannski meira að fá "góðan prófíl" en ekki endilega liggja í felum af ótta við að fá á sig slæmt orðspor.

    Hvað varðar hin "sívinsælu" starfsmannamál þá er búið að ræða það út og suður á öllum mögulegum vettvöngum. Ég veit a.m.k. fyrir mína parta að ef það væri ekki starfsmaður í fullu starfi hjá klúbbnum þá væri ennþá meira að gera hjá mér og það myndi trufla mína "alvöru vinnu" miklu meira en nú er. Það eru ekki allir sem hafa 100% sveigjanleika í sinni vinnu til að sinna svona málum, hve góður sem málstaðurinn er. Það hefur komið fyrir æoftar núna að þeir sem þarf að vinna með/hitta eru ekkert á því að hitta okkur utan almenns skrifstofutíma, þeir eru bara í sinni vinnu og vilja komast heim til að sinna fjölskyldu og áhugamálum þegar þeirra vinnudegi er lokið. Það er því mín niðurstaða eftir þó stuttan tíma að klúbburinn ÞARF og Á að hafa einhvern sem getur verið málsvari hans á vinnutíma án þess að vera að svíkjast undan einhverjum öðrum skyldum og það er eiginlega ekki hægt nema með að hafa einhvern í starfi hjá klúbbnum.

    Svo þess utan þá eru innri mál eins og skráningar í klúbbinn og ýmis þjónusta við félagsmenn dálítið stór þáttur og ef það væru bara sjálfboðaliðar sem væru í því að skrá í klúbbinn og sinna slíku þá er hættara við að hlutir myndu ekki skila sér en ef einhver er með þetta á sinni könnu.

    Mín "framtíðarsýn" fyrir klúbbinn er að hann verði [b:1fq3wbqc]öflugur hagsmunagæsluaðili fyrir þá sem vilja ferðast um hálendi Íslands[/b:1fq3wbqc] (ok og stundum á láglendi líka…) og sé aðili sem tekið er mark á og leitað til í þeim málaflokkum sem snerta á starfssemi hans, þ.m.t. umhverfismál, reglur um búnað bifreiða, fjarskiptamál o.s.frv. Það gerist ekki með því að liggja út í horni með "low profile" … Hvernig verðum við öflug? Jú með því að vera sýnileg, vera þekkt fyrir góða hluti, hafa marga félagsmenn og vera "inni" á réttum stöðum. Lítil klíka á bara ekki roð við þeim aðilum sem nú eru farnir að leggjast á sveif á móti því sem Ferðaklúbburinn 4×4 stendur fyrir. Bæði er opinbera báknið orðið stærra og "mótvægisaðilar" okkar eru sífelt að verða stærri og fleiri og einhvern veginn hefur þeim tekist að komast inn á öllum réttu stöðunum meðan á a.m.k. sumum sviðum sitjum við enn úti í kuldanum og fáum hvert regluverkið á fætur öðru "í bakið". Þessu þarf að breyta og ég efast um að sjálfboðastarfið eitt og sér dugi til þess sama hversu gott það er, reyndu að fá fjarskiptanefnd alþingis til að funda kl 19:00 – 21:00 að kvöldi svo að maður geti klárað vinnudaginn sinn áður en maður mætir á fund hjá þeim… 😉

    Ég myndi í það minnsta ekki treysta mér til að starfa í stjórn án starfsmannsins í launuðu starfi, svo einfalt er það nú bara og ég tel það vera lykilatriði í eflingu klúbbsins að hafa fasta "auðlind" í þeim tíma sem varið er til starfsins. Því aðstæður nefnda- og stjórnarmanna geta breyst og það myndi skapa enn meiri áhættu fyrir klúbbinn ef ekki væri til staðar þessi vinnutími sem klúbburinn er að tryggja sér með að hafa fastan starfsmann.

    Auk þess sem Benni sér sem "framtíðarsýn" klúbbsins myndi ég líka vilja sjá hann eiga fastan sess sem umsagnaraðili að lagafrumvörpum og reglugerðum sem varða starfssemina. Það krefst hins vegar stöðugrar aðgátar og það að hafa slíkt sem þriðja, fjórða eða jafnvel fimmta hlutverk einhvers sjálfboðaliða út í bæ (sama hve fær og velviljaður hann er) þá eru þetta bara hlutir sem eiga það á hættu að sitja á hakanum hjá okkur. Og það er akkúrat þá sem starfsmaður á launum sparkar í okkur og heldur okkur við efnið 😉

    Húrra fyrir launaða starfsmanninum sem sparkar reglulega í rassinn á mér þegar ég er að klikka á einhverju sem ég er búinn að lofa!





    29.10.2007 at 13:19 #601336
    Profile photo of Agnes Karen Sigurðardóttir
    Agnes Karen Sigurðardóttir
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 878

    Þetta eru náttúrulega spurningar sem hafa brunnið á vörum allra frá því klúbburinn var stofnaður 1983.
    Hvert viljum við stefna.
    Í upphafi var hugsað um breytingar og umhverfismál. (fá að aka um landið okkar á breyttum jeppum)
    Í dag er þetta enn hagsmunamálið en með stækkun klúbbsins, nýrra lagabreytinga hjá hinum og þessum stofnunum, alþingi og f.l.r þarf endalaust að vera á varðbergi. Í dag koma ca 1-10 umsóknir á dag hér inn á borð hjá mér, þannig að klúbburinn stækkar óðum.
    Starfsmaður í starfi eða ekki.
    Ég er ansi hrædd um að ef við ættum að afgreiða umsóknir í sjálfboða vinnu þá yrðu margir óhressir/því allir vilja fá allt fyrir ekki neitt og 100% þjónustu þó svo vinnan sé gefins
    Ferlið þegar félagsmaður skráir sig er.
    Umsókn send á tölvutækuformi eða mætt í klúbbin.
    Viðkomandi skráður inn í félagaskrá.
    Umsókn send til Bóa í shell um ósk um félagskort.
    Muna að merkja í skrá að búið er að panta kort.
    Póstur sendur á Óskar í póst og fjar.
    Svara pósti viðkomandi að búið sé að skrá viðkomandi í f4x4. Ath hvernig hann vill greiða fá greiðsluseðil eða fá sendar greiðsluupplýsingar.
    Þegar svar hefur borist, senda þá reiknis upplýsingar eða fara inn á heimabanka og útbúa kröfu.
    Sækja kort til Skeljungs, skrá í félagaskrá að kort sé hér á skrifstofu.
    Fara inn á heimabanka ath hvort viðkomandi er greiddur ef svo er skrá í skrá að viðkomandi sé greiddur, flytja yfir í greiddaskrá v/útsendingu Seturs fráttablað 4×4 ,senda á þjónustuaðila N1 v/vhf að þessi sé greiddur og getur fengið rásir 4×4 í vhf stöðina sína.
    Senda kort á viðkomandi.
    Skrá á vef 4×4 að viðkomandi sé fullgildur félagsmaður eða svara vefnefnd já þessi er greiddur og fær fullan aðgang.
    Já er ekki bara best að fá sjálfboðaliða til að vinna verkin þar sem félagar 4×4 eru svo liðlegir (já liðlegir)og hjálpsamir að gefa sinn tíma (aðalega í röfli)eða á að hafa starfsman sem heldur utanum dæmið. SPURNING….
    Það virðist vera vandi flestra félaga í dag að fá sjálfboðaliðatil starfa, og vill vinnan lenda ýtrekað á sama fólki og því miður brenna viðkomandi fljótt út.
    Ég er búin að sitja í stjórn síðan í maí 2003 og margir af þeim sem störfuðu með mér sjást ekki hér í 4×4 lengur, fengu alveg nó. (af skítkasti og leiðindum, endalausu böggi aldrei neitt nógu gott sem þeir gerðu í sjálfboðavinnu sem var tekin af t.d tíma með fjölskildunni eða sportinu)
    Þannig að það er spurning að félagsmenn 4×4 fari að hisja upp um sig skítinn og aðeins að staldra við hugsa á jákvæðum nótum enn ekki altaf að dæma.
    Ótrúlegt hvað menn/konur halda að sé innifalið í 6000 krónum stjórnar og starfsmaður aðgengi 24 tímar á sólahring.
    Það er okkur fólkinu frá 1983 að þakka að þú félagsmaður góður getur ekið um á jeppanum þínum nánas óáreittur ef þú ferð eftir lögum og reglum.
    Þetta getur orðið svo flott og skemmtilegt félag , ef allir eru jákvæðir, hætti skít og skömm og rétta frekar fram hjálparhönd frekar enn að rakka alltaf allt niður sem gott er.
    Kveðja
    Agnes Karen Sig
    Formaður f4x4
    Launaður starfsmaður f4x4
    100% starf maí 07





    29.10.2007 at 16:01 #601338
    Profile photo of Stefanía Guðjónsdóttir
    Stefanía Guðjónsdóttir
    Member
    • Umræður: 18
    • Svör: 1389

    Nú langar mig aðeins að tjá mig hér. Það er kannski ekki óeðlilegt að þeir sem að ekki þekkja til séu að velta fyrir sér af hverju að vera með launaðann starfsmann. Það sem að ég hins vegar skil ekki er þegar að þeir sem þekkja vel til eru líka að velta þessari spurningu fyrir sér. Því að þeir vita hvað það er gríðarlega mikil vinna sem að hún Agnes er að vinna og er mikið meira heldur en 100% starf. (svo maður tali nú ekki um tíman sem fer í stjórnunarstörf hjá lýðnum). Ég hef nokkrum sinnum leitað til hennar Agnesar og þegar ég hef ekki náð í hana þá hefur hún hringt í mig til baka kvöld sem morgun. Ég held að hún sé að láta bjóða sér mikið meira heldur en margur væri til í að þiggja.
    Hún er ekki bara starfsmaður einhverjar lítillar Reykjavíkurdeildar heldur er hún starfsmaður á landsvísu.
    En það mikilvægasta er kannski það að þó að þessi umræða sé að fara fram þá má hún ekki taka þetta inn á sig sem einhverja persónulega árás á sig eða starf sitt. Heldur horfa á þetta út frá fræðslusjónarmiði, þ.e.a.s. að upplýsa hina fáfróðu um "dulúðina" við að vera starfsmaður f4x4.is
    Kv. Stef….





    29.10.2007 at 16:45 #601340
    Profile photo of Baldvin
    Baldvin
    Participant
    • Umræður: 45
    • Svör: 524

    Endilega ekki snúa þessum þræði í að vera að eyða miklum kröftum í að verja störf Agnesar.
    Við erum flest held ég sátt við að hafa starfsmann til að sinna því sem að ekki er nenna eða geta til að sinna í sjálfboðastarfi.
    .
    Hugleiðingar Skúla snúa meira að því hvert við viljum stefna almennt. Svona rýni í framtíðarstefnu og markmið klúbbsins.
    .
    Mér finndist sjálfum afar áhugavert að sjá klúbbinn starfa áfram bara á mjög svipuðum nótum og hingað til. Eftir því sem að mér hefur sýnst hafa megin áherslurnar undanfarin misseri verið að:
    1. Verja hagsmuni okkar á hálendinu, t.d. með umfjöllun um Norðurveg og þáttköku í ferlaverkinu.
    2. Sinna rekstri skrifstofu og þ.m. allri þjónustu við félagsmenn t.d.
    3. Kynning á starfinu út á við.
    4. Rekstur nefnda. Mitt mat að nefndir eigi að fá að starfa sem mest alveg sjálfstæðar án mikilla afskipta stjórnar eða annarra. Að ef að menn vilji hafa áhrif á störf þeirra, þá þurfi þeir einfaldlega að taka þátt. Með þeim áherslum skiptir tuðið ekki máli, tuðararnir gera hvort eð er nánast aldrei neitt :)
    .
    En, enn og aftur. Þetta er ekki umræðuþráður til að verja eða berja Agnesi. Ég held a.m.k. að ég sé að skilja Skúla rétt með því.





    29.10.2007 at 17:46 #601342
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Hárrétt Baldvin, líta á þetta úr aðeins meiri fjarlægð, nægjanlega mikilli fjarlægð þannig að persónur sjáist ekki. Meira út frá lengri tíma þróun heldur en akkúrat því sem er að gerast í dag, horfa amk áratug fram og aftur í tímann.
    Úr því hér leggjast menn á sveif þess málstaðar að klúbburinn eigi að vera stór og mikill þá er best að ég taka hina hliðina aðeins upp á mína arma ;o) Ég held að það sé engin spurning að miðað við öll þau verkefni sem fyrir liggja í daglegum rekstri klúbbsins í dag veitir ekki af starfskröftum og það fyrirkomulag sem ég þekki í því þegar einn starfsmaður í hlutastarfi og lítt tengdur klúbbnum gengur örugglega ekki eins og staðan er. Allt upp í 10 umsóknir um aðild að klúbbnum er náttúrulega rosalegur vöxtur og þessum vexti fylgir auðvitað mikil vinna. En eins og ég sagði er spurningin ekki hvort við viljum hafa starfsmann á launum við að sinna verkefnunum og því sem til fellur í þessum vexti heldur öllu frekar hvort við viljum þennan mikla vöxt. Það er alveg þess virði að spyrja sig spurninga þegar félagsmönnum fjölgar dag frá degi og umfang starfseminnar að sama skapi. Mjög líklega bara hið besta mál en samt tilefni til að spá.
    Benni dregur upp ákveðna framtíðarsýn sem er að stefna ótrauð áfram sama veg, stækka, auka starfsemina, fjórfalda félagafjöldann og vera stór og áberandi. Einskonar landssamtök jeppaeigenda. Þá vaknar ein spurning og hún er sú hvernig hagsmunir fara saman, hvar og hvenær getur klúbburinn tekið afstöðu. Verndum vonda vegi er slagorð sem stundum heyrist innan klúbbsins og vísar til þess að við viljum hafa fjallaslóða frumstæða og einfalda og gera sem minnst við þá, jafnvel varðveita ákveðnar leiðir sem erfiðar og krefjandi. Í stóra tíuþúsundmannaklúbbnum er kannski Rav og HondaCRV deildin ört vaxandi og þar telja menn til almennra mannréttinda að þeir komist allt sem stóru jepparnir fara og alveg lágmark að þeir fái að taka þátt í sömu ferðum. Þetta er kannski fjarlægt dæmi, en segir allavega að því fjölbreyttari og stærri sem hópurinn er, því minna geta menn sameinast um. Fyrir ekki svo löngu ályktaði klúbburinn gegn uppbyggingu Kjalvegar og tók þar verulega af skarið í náttúruverndarbaráttu ferðamanna í náttúru Íslands. Allt slíkt framtak er mjög jákvætt og gott en er það mögulegt í svona stóru félagi? Landvernd sem þó eru sérstaklega stofnað til að vinna að náttúruvernd á jafnvel í erfiðleikum með að vinna að þessu markmiði vegna þess hve fjölbreytt flóra er að baki þeim. Það sem ég er semsagt að draga fram er að umhverfið er allt öðru vísi þegar klúbburinn er orðinn 10 þús manna fjöldahreyfing heldur en er í dag og í dag er klúbburinn allt annar en hann var meðan félagafjöldinn taldist í þriggja stafa tölu. Er það betra eða verra? Kannski bara gott mál en samt rétt að gera sér grein fyrir því fyrirfram að vexti fylgja vaxtaverkir, breytingar og öðruvísi stemning. Það fer ekki saman íhaldsemi og nostalgía annars vegar og svo stórtæk vaxtamarkmið hins vegar.
    Kv – Skúli





    29.10.2007 at 18:57 #601344
    Profile photo of Sigurður Ásmundsson
    Sigurður Ásmundsson
    Member
    • Umræður: 14
    • Svör: 949

    eins og ég skil það sem skúli er að misþyrma lyklaborðinu sínu með, þá er hann að skrifa um kosti þess að vera í litlum grúbbum. Því fylgir minna bákn minni yfirbygging og minni tilkostnaður.
    Hvar eiga þá allir hinir 2500 jeppamennirnir að vera?
    ferðaklúbburinn 4×4 var upphaflega stofnaður með sömu hugsjón og hvert annað gengi í dag, nokkrir feitir kallar með sameiginlegt áhugamál. Þeir hugsanlega gerðu þau mistök á sínum tíma að leiða klúbbinn í að vera fjölmennur og á landsvísu, og eru því í dag búnnir að tapa yfirráðum yfir genginu sínu. Héðan verður ekki aftur snúið að mínu mati. Ferðaklúbburinn 4×4 verða alltaf að vera landssamtök jeppamanna, með hagsmuni allra jeppamanna á Íslandi í huga, stór og sterk samtök, með tilheyrandi bákni og kostnaði, sem láta í sér heyra og verkin tala.
    Stofnendur og fylgjendur ferðaklúbbsins 4×4 verða því ef þeir sjá á eftir því að missa völdin, að stofna sitt gengi eins og gengin eru í dag og byrja uppá nýtt. hvort það væri hægt að eftirláta þeim nafnið á klúbbnum og finna nýtt nafn sem hentar betur þeirri starfsemi sem klúbburinn sinnir, einsog Hagsmunasamtök 4×4, eða ferðafrelsissamtök 4×4.
    nei bara hugdetta.
    kveðja siggi





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.