FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hvernig smurolíu?

by Sigurður Þór Magnússon

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hvernig smurolíu?

This topic contains 10 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Skúli Haukur Skúlason Skúli Haukur Skúlason 19 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 20.03.2006 at 20:09 #197587
    Profile photo of Sigurður Þór Magnússon
    Sigurður Þór Magnússon
    Member

    Mér datt í hug að spyrja ykkur hvaða smurolíu þið kjósið að nota á bílana ykkar. Eins og með dekkin gæti ég trúað að trú á sumar olíur hjá sumum jaðri við sértrúarsöfnuði en það er auðvitað bara hið besta mál.

    Ég er með Patrol 2.8tdi, hvort er betra að nota þynnri eða þykkari olíu og hvort á hún að vera synthetísk eða hvað sem þetta heitir nú allt saman. Er til einhver rétta olían á þessa vél sem aðar?

    Kv.

  • Creator
    Topic
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)
  • Author
    Replies
  • 20.03.2006 at 20:16 #547130
    Profile photo of Þorsteinn Friðriksson
    Þorsteinn Friðriksson
    Participant
    • Umræður: 23
    • Svör: 156

    Mæli með þessari en hún er ekki gefins :(
    Steini





    20.03.2006 at 20:22 #547132
    Profile photo of Björn J Gunnarsson
    Björn J Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 74

    Mobil 1 o-40w er líklega ein af þeim bestu. En þú getur líka feingið góða oliu fra Olis sem heitir havoline syntisk 5-40w sem kostar helminginn af því sem mobil kostar en stenst flesta af þeim stöðlum sem mobil setur sér. Settu þig bara í samband við Strákan á smurstöðinni á fosshálsi. Þeir eru sérfræðingar í öllu sem viðkemur jeppum og olium. Siminn þar er 567-3545.





    21.03.2006 at 00:57 #547134
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    ég er með mobil1 og mæli með henni annars er havoline 5-40 líka góð og svo hef ég heyrt að esso uniflo sé góð en selþað ekki dýrara en ég kaupi það mæli eindregið með mobil1 dýrt en þess virði

    Kv Davíð





    21.03.2006 at 10:36 #547136
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Ég er með Esso ultra, 15 – 40 á Patrolnum, góð og tekur ekki of illa í pyngjuna..
    Hjölli.





    21.03.2006 at 12:56 #547138
    Profile photo of Héðinn Gilsson
    Héðinn Gilsson
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 84

    Elf Excellium 05 – 40, 100% syntetisk olía, stenst allan samanburð við Mobil 1, en er bara ódýrari





    21.03.2006 at 17:06 #547140
    Profile photo of Þengill Ólafsson
    Þengill Ólafsson
    Participant
    • Umræður: 48
    • Svör: 611

    Það er nauðsynlegt fyrir bíla sem eru mikið á fjöllum á veturna að vera með syntesíska olíu á öllu. Hún er eina olían sem þolir mikið frost.
    Og í miklum kulda snýst þetta einfaldlega um, þynnri því betra.

    "Olíur með mismunandi seigju við sama hitastig fá ákveðna SAE tölu sem gefur til kynna seigjusvið olíunnar."

    "Lægri SAE tala, þynnri olía; hærri SAE tala þykkari olía.
    Olía með bókstafinn "W" gefur til kynna að seigja olíunnar er mæld við -18°c en olía án bókstafs er seigja olíunnar mæld við +100°c.
    Þetta þýðir að fjölþykktarolía SAE 10W/30 hefur seigjuna við -18°c sem liggur á SAE 10W sviðinu en seigjan við +100°c liggur á SAE 30 sviðinu."

    "SAE 10W/30 olía nær því yfir svið frá SAE 10W, 15W, 20W, 25W, 20, 30."

    "Hafa skal í huga að SAE talan gefur ekki til kynna seigju heldur seigjusvið."

    Upplýsingar úr dagbók Olís 2006.

    Olís selur líka syntesíska olíu sem heitir Visco 7000 0W-40 og er frá BP. Hún er með sama seigjusvið og Mobil1 en er aðeins ódýrari.
    Það eru líka til syntesískar gírolíur t.d. Multigear S 75W-90 frá Texaco, fæst í hjá Olís.

    Syntesískar mótorolíur frá Olís eru t.d:

    BP Visco 7000 0W-40
    Havoline synthetic 5W-40
    Vanellus E7 Supreme (hönnuð fyrir diesel, fæst aðeins í 20ltr og á smurstöðvum)

    Kveðja
    Þengill





    21.03.2006 at 18:25 #547142
    Profile photo of Óskar Andri Víðisson
    Óskar Andri Víðisson
    Participant
    • Umræður: 51
    • Svör: 778

    Ég hef verið að nota Esso Ultron á Hiluxinn (er minnir mig 5W-40)

    Kv.
    Óskar Andri





    21.03.2006 at 21:01 #547144
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Nær allir framleiðendur véla með samrásarinnsprautun (common rail), gera beinlínis kröfu til þess að á þær séu notaðar synthetiskar fjölþykktarolíur. Manni er allavega sagt að það sé þrýstingur frá smurolíukerfinu sem opni fyrir olíuflæðið inn á innsprautukerfi vélarinnar, og hún megi ekki vera þeirrar gerðar sem þykknar í kulda ef vélin á yfirleitt að fara í gang. Nú eru til blandaðar olíur, sumsé bæði úr synthetiskri og jarðefnaolíu og þær eru nokkuð ódýrari. Þær má víst nota á stöku vélar, en í flestum tilvikum er víst brýnt að nota þær olíutýpur, sem framleiðendur krefjast meðan vélarnar eru í ábyrgð a.m.k. Þetta hefur allavega verið lesið yfir mínum hausamótum og ég hef ekki þorað annað en fara eftir þessu.





    21.03.2006 at 21:04 #547146
    Profile photo of Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Hafsteinn Þór Hafsteinsson
    Participant
    • Umræður: 124
    • Svör: 2697

    Varðandi common rail þá ætti að vera alveg ljóst út frá handbók hvaða olía á að vera á vélinni.

    -haffi





    21.03.2006 at 23:49 #547148
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Ég hef farið þá leið að nota Mobil 1 á veturnar en eitthvað ódýrari olíu á sumrin, þá einhverja 10W/40. Eins og einhver sagði hérna er synthetisk hágæða olía nauðsynleg ef menn eru að fara vetrarferðir á slóðir þar sem búast má við miklu frosti. Það er ekki víst að einhver 15W/40 olía renni yfir höfuð þegar frostið fer hvað hæst. Á bílum sem ekki eru notaðir til slíkra ferða er þetta kannski óþarfi.
    Kv – Skúli





  • Author
    Replies
Viewing 10 replies - 1 through 10 (of 10 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.