FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hvernig reynist Land Rover Discovery 98?

by Höskuldur Goði

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hvernig reynist Land Rover Discovery 98?

This topic contains 7 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Höskuldur Goði Höskuldur Goði 12 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 08.10.2012 at 13:22 #224585
    Profile photo of Höskuldur Goði
    Höskuldur Goði
    Participant

    Sælir kæru félagar.

    Getið þið upplýst mig um það hvernig LAND ROVER DISCOVERY árgerð 1998, með 2,5L vélinni hefur reynst.
    Um er að ræða „38 breyttan bíl.
    Mig vantar bara almennt álit, með þekkingu á getu bílsins, bilanatíðni, varahlutaframboð- og verð, ásamt helstu kostum og göllum.
    Þessi vél er nú ekki með þeim aflmeiri á markaðnum, en skildi hún búa yfir einhverjum leyndardómi?

    Með fyrirfram þökk félagar.

  • Creator
    Topic
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)
  • Author
    Replies
  • 09.10.2012 at 21:27 #758701
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Er þetta 4 cyl vélin Tdi300? Ef svo er þá býr hún já yfir leyndardómi, torkar mjög skemmtilega og því skemmtileg sem jeppavél. Ekkert sú sprækasta upp og þú ert kannski ekkert mikið í frammúrakstri í Kömbunum, en á fjöllum er hún fín. Eða er þetta 5 cyl vélin, Td5?
    Kv – Skúli





    10.10.2012 at 14:51 #758703
    Profile photo of Höskuldur Goði
    Höskuldur Goði
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 11

    Sæll og takk fyrir svarið.
    Þetta er 4 cylindra vélin.
    En þekkirðu eitthvað fleira varðan þessa vél og gerð af bíl, eins og t.d. endingu vélar og drifbúnaðar?
    En gott að heyra að þetta sé góð vél.
    Skiptir miklu máli.





    10.10.2012 at 16:04 #758705
    Profile photo of Steinar Gíslason
    Steinar Gíslason
    Participant
    • Umræður: 1
    • Svör: 29

    Settu þessa fyrirspurn inn á http://www.islandrover.is Þar færðu örugglega meiri viðbrögð.

    Kv.
    Steinar





    10.10.2012 at 19:58 #758707
    Profile photo of Skúli Haukur Skúlason
    Skúli Haukur Skúlason
    Participant
    • Umræður: 86
    • Svör: 2442

    Veit til þess að svona vél hafi gengið 500 þús km án þess að vera opnuð, enda sterkbyggð og með almennilegar stærð á legum. Mín er komin yfir 200 þús og ekki annað að sjá en hún eigi mikið eftir (í Defender). Það þarf að passa upp á að skipta um tímareim á réttum tíma (80 þús.) þar sem allavega sum eintök eiga að éta þær upp. Held að þetta sé eini veikleikinn. Reimarnar litu samt ágætlega út hjá mér þegar við skiptin en ég er á þriðju reiminni. Ég setti 3" rör án kúta og við það jókst torkið enn frekar, eyðsla minnkaði en eðlilega hávaði jókst. Hefði kannski verið betra að setja opinn kút á rörið. Maður þarf bara að passa að leyfa túrbínunni að stoppa áður en maður drepur á eftir akstur á fullum damp því þegar mótstaðan í rörinu minnkar er túrbínan lengur að stoppa og missir smurningu þegar drepið er á vélinni. Vélin frekar sparneytin, mín er að eyða 12-13 lítrum á 38 tommu dekkjum.

    Held að drifbúnaður sé talsvert svipaður á Disco og Defender af þessari árgerð. Öxlar mættu vera sterkari en á móti má segja að það er ágætt að hafa veikasta punktinn þar frekar en í drifunum, enda auðvelt verk að skipta um öxla. Það er líka stór kostur við Landrover að varahluti er almennt hægt að fá á mjög góðu verði hjá BSA í Kópavogi og alveg frábær þjónusta sem maður fær þar. Það er eiginlega stærsti kosturinn við að eiga Landrover.

    Kv – Skúli





    11.10.2012 at 22:08 #758709
    Profile photo of Þórir Gíslason
    Þórir Gíslason
    Participant
    • Umræður: 40
    • Svör: 353

    Vinur minn sem á svona bíl segir að ráðlagt sé að skifta út legubökkum og Stimplum / hringjum á 180- 200 þúsundum Hann frétti það ekki firr enn skaðinn var skeður hjá honum.





    16.10.2012 at 21:06 #758711
    Profile photo of Bergur Pálsson
    Bergur Pálsson
    Participant
    • Umræður: 41
    • Svör: 307

    Einn félagi minn lenti einnig í þessu en þetta getur svosem gerst í flestum bílum.
    //BP





    17.10.2012 at 21:40 #758713
    Profile photo of Höskuldur Goði
    Höskuldur Goði
    Participant
    • Umræður: 6
    • Svör: 11

    Ég þakka ykkur fyrir góð svör félagar.





  • Author
    Replies
Viewing 7 replies - 1 through 7 (of 7 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.