Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › hvernig nær maður flugum af bílum…
This topic contains 22 replies, has 1 voice, and was last updated by Pétur Freyr Ragnarsson 20 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
22.07.2004 at 20:18 #194563
Ég er alveg svakalega pirraður á þessum djöfulsins flugum að vera alltaf að klessa sér framan á bílinn, stuðarann, húddið, framrúðuna… hvernig er best að ná þessu af … komið með eitthvað trix annað en að nudda nudda nudda… ég er þreyttur á því… er að leita eftir einhverju undratrixi…
kveðja Axel Sig… -
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
22.07.2004 at 20:37 #504962
Prófaðu kók eða annan gosdrykk með mikilli sýru. Heltu honum yfir pödduna og láttu hann virka í smástund og þurrkaðu af. þú getur líka prófað hársprey (það losar allavega merkingar eftir tússpenna).
Haukur A-848
22.07.2004 at 20:42 #504964ég komst að því um daginn að til að ná flugum að framm rúðunni virkar Glass polish frá AutoGlym (þetta bláa) alveg rosalega vel, reyndar það besta sem ég hef prófað á rúður yfir höfuð.
En að ná af lakkinu… ég skal ekki segja, ætli hreinsibón sé ekki bara það bestaBaldur
22.07.2004 at 20:51 #504966Sæll
Það er rétt hjá síðasta ræðumanni að Car glass polish frá auto-glym virkar vel en þegar þú ert búinn að því, þá mæli ég með að þú setjir Rain-X á rúðuna(fæst á flestum bensínstöðvum að ég held), og þá bæði losnaru við að flugurnar festist á rúðunni, þær fjúka af um leið og þú setur rúðuþurkurnar á, svo þarftu aldrei að nota rúðuþurkurnar þegar það rignir, rúðan verður svo sleip að vatnið fýkur af á 30km hraða!
Svo er það lakkið…bara bóna bílinn vel þá ertu laus við þennan subbuskap 😉
kv, Geiri bónari-ég get gert þetta fyrir þig hafðu bara samband eða aðrir 😉
22.07.2004 at 21:56 #504968
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
heyrðu, þetta er nú lítið mál. þú færð þér góða bílasápu í volgt vatn, og svamp, og þrífur svo mestu fluguklessurnar af.
síðan færðu þér autoglym sem er í brúsanum með rauða miðanum(man ekki hvað það heitir. þetta er bónið frá þeim) setur slatta í klút og nuddar bara yfir flugurnar þangað til þær fara, ekki láta það þorna heldur skaltu bara nudda því blautu og þær fara auðveldlega af.
svo til að fyrirbyggja að flugurnar festist svona á, þá getur verið gott að bóna bílinn vel á 2 vikna fresti og skola svo reglulega af honum með bílasápu og svampi.(sápan frá sonax er mjög góð)
23.07.2004 at 01:02 #504970Mér finnst best að nota Tjöru eða Olíuhreinsir OG nudda svo er best að skola með háþrýstidælu og sonax Sápan reyndar virkar allt í lagi ég er búinn að vera í vandræðum með þetta þetta safnast svo á Tengdamömmukassann.
23.07.2004 at 10:07 #504972Heitt vatn er það eina sem virkar bara að hafa nógu heitt og mikið af því.
23.07.2004 at 12:37 #504974Ég hélt að þú værir alvöru ruddi en svo ertu kannski bara pjattaður innnst inn við beinið, BÓNA BÍLINN Á TVEGGJA VIKNA FRESTI??????????
Ég mun koma til með að bóna minn á tveggja ÁRA fresti, kannski ekki alveg svo sjaldan en þó SJALDAN.
Að vísu eru margir kannski með nýlega bíla með fallegt lakk en kom on, það er allt í lagi að það sé ekki hægt að spegla sig á stuðurunum þegar menn eru á ferðalagi.
Kv. Sóðinn (Freyr)
23.07.2004 at 13:07 #504976ég spurði vörubílstjóra hjá Póstinum um þetta fyrir stuttu, hann sagðist nota uppþvottalög úr eldhúsinu við þetta, bætti líka aðeins út í rúðupissið og þá flytu þær af.
Á eftir að sannreyna þetta sjálfur.
Ég hef því miður ekki tíma til að bóna bílinn á tveggja vikna fresti.
kv. HannesJón
23.07.2004 at 13:37 #504978Einu sinni var mér sagt að í uppþvottalegi væru efni sem færu ekki vel með lakk (einhver sölt minnir mig). Á rúðupissið hjá mér fer hins vegar aldrei venjulegur lögur heldur vatn, rúðupisssápa (sonax og fleiri merki) og ísvari eftir þörfum á veturna. Sápan virkar mjög vel og dugar ágætlega á flugur en að sjálfsögðu ekki eins vel og rain-x.
Með lakkaða hluta er hæfilegt kæruleysi ágætt (fer á endanum).
kv.
Þorsteinn Þ.
23.07.2004 at 23:03 #504980Mér hefur reynst bezt að nota þvottakúst og nóg af köldu vatni. Með þessum tólum er auðvelt að ná klessunum af og gildir þá einu hvort rúðurnar eru með Rain-X eður ei, einnig er ekki mikill munur hvort lakkið er nýtt eða gamalt eða bónað eða ekki bónað. Þar sem ég þvæ vinnubílinn 5-7 sinnum í viku tel ég mig hafa reynsluna og þetta virkar og kostar ekki krónu, bara ferð á næsta þvottaplan.
Gangi ykkur vel.
Steinmar
23.07.2004 at 23:24 #504982Tek undir með Steinmar og ódýrustu lausnirnar eru vanalega þær bestu. Ef framendi á bíl er vættur mað vatni og fær að vera blautur í 10-15 min og síðan kústaður, er málið leyst.
Í öllu falli þá á maður ekki að nota heitt vatn í bílaþvott, því lakk og gler þolir ekki vel kísil sem er í heitu vatni á íslandi.
Hlynur
23.07.2004 at 23:24 #504984Olíuhreinsir og svampur, no problem for John boblem!
24.07.2004 at 00:13 #504986
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Þetta er semsagt allt sami grauturinn…
Það er sama hvað þú notar .. bara nota nóg af því og nudda vel ! Eða hvað ?Kv. Gretar
24.07.2004 at 12:56 #504988
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Keyra hægar!
24.07.2004 at 13:04 #504990Með Mjallar bílasápu
24.07.2004 at 21:55 #504992
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Það er gaman að lesa þennan þráð.
Þetta endar með því að menn massa sína bíla og mála.Ég var nú að þrífa minn fallega bíl í síðustu viku. Notaði fyrst allar þær bón tegundir sem fundust í minni kisstu og ekkert virkaði.
Eins og "steinmar" sagði, þá tók ég vatn og svamp og viti menn, Pöddugerið görsamlega hurfu af mínum fallega bíl.
Strákar, ekki nota OLÍUHREINSIR á ykkar bíl. Hann þrífur bílinn vel en hann smígur í allar glufur og EYÐIR restini af ryðvörninni sem bíllinn fékk í sinni æsku.
VATN OG AFTUR VATN. ÞAÐ HRESSIR OG KÆTIR.
Kv.
Sigurður
112
24.07.2004 at 23:25 #504994Það er til olía sem snyrtivöruverslunin AVON selur sem heitir Skin so soft. Þetta er líkamsolía og er mjög rakagefandi fyrir húðina. Hún er einnig góð nuddolía og nýtist jafnframt til að hreinsa flugur og önnur óhreinindi af bílum. Hún eyðir ekki lakkinu og ryðvörnin er jafngóð eftir sem áður.
Berið þetta á bílinn látið bíða um stund og þvoið svo af með vatni. Svínvirkar.
kv. SP
25.07.2004 at 08:00 #504996Sælir félagar
Ég hef þann háttin á með að ná flugum af þvo bílinn og byrja á að bleyta vel í gumsinu og lata það svo bara bíða þar til ég er búinn að þvo allt annað þá e búið að blotna það vel í gumsinu að það er auðvelt að þvo það af en bóna minst 2 í mán virkar vel á rútum og mínum bíl
Kv Klakinn
26.07.2004 at 15:07 #504998Þetta er nú ekkert mál, það er til efni frá Kemi sem er allgjör snild, man ekki allveg hvað það heitir en við kölum það flugubanan. Leiðbeiningar eru þanig að þú vatnsblandar það 1/10 eða eitthvað svoleiðis og úðar því yfir og lætur það standa í smá tíma (ca 1-2 mín) og smúlar það af, það nær allri fastri drullu samanber flugur og fastan skít þar sem svampur nær ekki eins og sést vel á ljósum bílum.
26.07.2004 at 15:10 #505000eruð þið ekki að grínast……
bara spyr
kv
Js
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.