FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hvernig læsingu, í Wrangler

by Ágúst Markússon

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hvernig læsingu, í Wrangler

This topic contains 8 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Guðbjartur Magnússon Guðbjartur Magnússon 19 years, 2 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 19.03.2006 at 22:17 #197583
    Profile photo of Ágúst Markússon
    Ágúst Markússon
    Member

    Sælir félagar, bróðir minn var líka að kaupa sér Wrangler. Hann er á Toyota hásingum og er ólæstur, hvernig læsingar er best að fá sér í svona bíl. Á hann að fá sér loftlæsingu eða Nospin.
    Endilega komið með kosti og galla á Nospin.

    Kv Ágúst.

  • Creator
    Topic
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)
  • Author
    Replies
  • 19.03.2006 at 22:35 #547094
    Profile photo of Ólafur Ingi Þórarinsson
    Ólafur Ingi Þórarinsson
    Member
    • Umræður: 4
    • Svör: 58

    Ég var með nospin í cj7 Alltaf þegar ég þurfit að gera eitthvað annað en að keyra í gegnum skafl á bölvaði ég þessum fjanda. Leiðinlegt að að keyra í hálku og bara óþægilegt af flestu leiti. Í dag er nospin eitthvað sem fer helst ekki í bíl hjá mér.





    20.03.2006 at 00:05 #547096
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    Loftlæsingu hiklaust no-spin er bara með vandræði já í hvert skipti sem þú ert ekki í skafli í mínum bókum er no-spin álika gott og bara soðið drif…………

    Davíð





    20.03.2006 at 01:43 #547098
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    …er það besta sem ég hef á ævi minni notað…svíkur aldrei(allavega ekki ennþá) og EKKERT vesen. En hins vegar ef þú notar þennan bíl dags daglega…þá gleymdu no-spin, minn er off-road only bíll og það er hryllingur að keyra hann innanbæjar. En ég lifi þetta alveg af með hálkuvesenið.

    benzínkveðja, Ásgeir

    ps. Hins vegar finnst mér alltaf leiðinlegt þegar menn fara að setja asískt rusl í ameríska eðalvagna…það er bara ekki minn tebolli.





    22.03.2006 at 00:56 #547100
    Profile photo of Einar Steinsson
    Einar Steinsson
    Participant
    • Umræður: 7
    • Svör: 752

    Samála Ásgeiri, átti sjálfur Scout með no-spin f/a, snilldarbúnaður. Alltaf til taks, ekkert vesen með loft eða rafmagn, bara einfaldlega virkaði og sveik aldrei. Innanbæjar er hægt að lifa með þeim en það krefst ákveðins aksturslags. Í hálku var hann ekki verri en bíll með diskalæsingum.





    22.03.2006 at 01:36 #547102
    Profile photo of Davíð Karl Davíðsson
    Davíð Karl Davíðsson
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1788

    eins og þú sérð þá er með þetta eins og dekkin bara hreinlega trúarbrögð sumir trúa á þetta aðrir á hitt en vona að þráðurinn hafi gagnast eitthvað en no-spin býr til ótrúlegustu læti og guð má vita hvað högg og hvaðeina ég allavega kaus að trúa ekki á nospin nema í snjó og þá helst miklum innanbæjar já nei takk en það er bara ég……

    Kv Davíð Arcticpirate R-2856





    22.03.2006 at 17:14 #547104
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Það er eiginlega að bera í bakkafullan lækinn að bæta við þetta, hér er eiginlega búið að segja allt sem skiptir máli varðandi þessa hluti. Eins og fram hefur komið, þá hefur allt sína kosti og sína galla. Ég vildi hinsvegar undirstrika, að ef þú ætlar að nota bílinn líka sem "daily commuter" eins og svo mörg okkar gera, þá mæli ég frekar með loftlæsingu skv. minni reynslu. No-spin læsingin er déskoti varasöm á hálku auk þess sem bíllinn getur verið afskaplega stirður, einkum þegar þarf að vera að snúa og skælast þar sem þröngt er á þurru malbiki. En þetta þessar amerísku læsingar eru alveg prýðilega smíðaðar, það er ekki vafi. ARB-loftlæsingin er mjög góð og þú ræður náttúrulega hvort og hvenær hún er á eða ekki. Hinsvegar eru reynsluboltarnir í bílabreytingum búnir að finna ýmis ráð til að ganga þannig frá þeim, að maður sé laus við ýmis vandamál sem þeim fylgja, svo sem því að hafa loftlagnirnar nægilega sterkar, auk þess að verja þær hnjaski og koma þeim fyrir þar sem þær eru ekki útsettar fyrir áverkum. Þess utan kunna þeir ýmis ráð til að forðast raka í loftkerfunum. Fáðu að kíkja á þetta hjá einhverjum þrautreyndum félaga, og helst fleirum en einum, í þínu nágrenni og sjáðu hvernig þetta hefur verið gert. Góðar kveðjur.





    22.03.2006 at 17:27 #547106
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    sælir
    Vil benda áhugasömum á Algrips læsinguna en hún fæst í margar gerðir drifa. Henni er hægt að stýra með vacumi ef svoleiðis kerfi er í bílnum og er það kerfi skárra en loftið að mínu mati.
    kv
    AB





    22.03.2006 at 17:50 #547108
    Profile photo of Guðbjartur Magnússon
    Guðbjartur Magnússon
    Participant
    • Umræður: 19
    • Svör: 368

    Ég var með no-spin í suzuki sem ég átti einusinni og það hún sló alveg rosalega, sérstaklega eftir að ekið var út úr hringtorgi.

    En hún virkaði en var eins og komið hefur fram áður leiðinleg í "snattinu"





  • Author
    Replies
Viewing 8 replies - 1 through 8 (of 8 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.