FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hverjir drífa mest?

by Theodór Kristjánsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hverjir drífa mest?

This topic contains 5 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Benedikt Magnússon Benedikt Magnússon 19 years, 5 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 21.12.2005 at 12:32 #196903
    Profile photo of Theodór Kristjánsson
    Theodór Kristjánsson
    Participant

    Hvaða bílar eru það sem drífa mest á Íslandi?

    Eru það 46-49 tommu tröllin eða eru það sex hjóla bílarnir.

    Hef heyrt það að sex hjóla bíllinn hans Gunna Egils sé að drífa heil ósköp. Veit að Patrol á 44″ og Landcruiser á 44″ drífa mjög vel en reikna með að þessir sex hjóla hafi sigurinn þegar að mesta púðrinu kemur. 38″ bílar drífa mjög vel ef þeir eru í léttari kantinum en reikna nú með að 44″ eða stærri dekk hafi sigurinn þegar kemur að miklu púðri. Maður heyrir að Raminn fyrir norðan sé að drífa feiknalega vel en hvað þýðir það, drífur hann eins og patrol á 44″ eða miklu meir?? Að sjálfsögðu hefur vélarafl mikið að segja en ekki endilega í miklu púðri.

    Endilega komið með einhverjar frásagnir ef þið vitið um einhvera bíla sem eru að gera meir en hinir.

    Jólakveðja, Theodór.

    PS: endilega reynið að halda öllu bulli frá þessum þræði.

  • Creator
    Topic
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)
  • Author
    Replies
  • 21.12.2005 at 12:35 #536744
    Profile photo of Gísli Þór Þorkelsson
    Gísli Þór Þorkelsson
    Participant
    • Umræður: 103
    • Svör: 1363

    Það er ekki spurning.
    kveðja hinn patroleigandinn





    21.12.2005 at 13:52 #536746
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Það eru helst tveir bílar sem koma upp í hugan.

    Annar þeirra er 38" Wrangler með gorma að framan og aftan og sennilega einhverja 8 gata vél. Mig minnir að hann hafi verið með 9" ford að aftan og D 44 framan, hann var vínrauður með brúnu húsi. Ég var á leið upp Skjaldbreið í góðu veðri að vori til svo það var hellingur af bílum á svæðinu- allir hjakkandi og keyrandi upp í krákustígum nema þessi Wrangler- ég efat um að hann hafi verið mikið lengur en 4-5 mín frá rótum og upp á topp. Hann fór bara stystu leið upp og greinilega á botngjöf því hann "flaug" bara upp.

    Hinn er svo gamli blái hiluxinn hans Bergs (kallar sig boi hér á síðunni). Ég sá hann fyrst í nýliðaferð 4×4 sennilega í des ’00. Það voru allir í bölvuðu basli hvort sem þeir voru nýliðar eða fararstjórar nema Bergur- það var ekki að sjá að hann hefði nokkuð fyrir þessu.

    Svo verður maður nú að leyfa því að fjóta með að Cherokee-inn kemur bara djöfull vel út hjá mér;-)

    Freyr





    21.12.2005 at 13:55 #536748
    Profile photo of Guðmundur Magni Helgason
    Guðmundur Magni Helgason
    Participant
    • Umræður: 82
    • Svör: 767

    Ég mundi veðja á 6×6 jeppana, ekkert vesen að grafa sig niður að aftan eins og 4×4 jeppar. Hefur flot á við heilann bíl bara að aftan og virka ennþá betur upp brekkur, þ.e.a.s. ef vélaraflið er nóg!





    21.12.2005 at 14:50 #536750
    Profile photo of Atli Eggertsson
    Atli Eggertsson
    Participant
    • Umræður: 220
    • Svör: 1627

    Sæll Teddi.

    Ég man nú eiginlega bara eftir gömlum LC 60.
    Sá bíll dreif hvað allra best í 4 ferðahelginni fyrir nokkurum árum, þá ný kominn með 6.5 GM í húddið og á 44".

    Svona í mynningunni var þetta eins og vélsleði, sprautandi upp um fjöll og fyrnindi, jafnvel með ónýta Patrola í togi, meðan við hinir vorum bara að hjakka í púður drasli og fastir í vatnasulli.

    Alla vega þegar við félagarnir erum að ræða um "ofur"-trukka, þá er þessi bíll alltaf ofarlega á lista.

    kv. Atli E.





    21.12.2005 at 15:00 #536752
    Profile photo of Benedikt Magnússon
    Benedikt Magnússon
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 3004

    Ég er nú ekki viss um að það sé hægt að gefa gott svar við svona spurningu. Þetta fer að sjálfsögðu mest eftir bílstjórnaum. Ég hef séð 35" breyttan bíl gera meira en 44" patrol – en þá var alger viðvaningur á Pattanum og mjög vanur maður á hinum. Þetta held ég að eigi við alla bíla.

    Svo hefur færið gríðarlega mikið að segja – 49" trukkarnir henta áræðanlega mjög vel í sumu færi á meðan að 44" Patrol/LC/Pajero keyra í hringi í kringum þá í öðrum færum…

    En sem dæmi get ég sagt frá Trúðaferð í Setrið í haust – þá voru saman fjórir 44" bílar og einn 38" bíll sem reyndar ók að mestu ef ekki öllu í förum.

    En af hinum þá voru þetta Patrol, LC80, Trooper og Pajeró.

    Í þessari ferð var færið oft á tíðum mjög erfitt – skel ofaná og sykur undir. Í þessum túr fannst mér léttari bílarnir standa sig betur þegar mest á reyndi – Þ.e. Troperinn og Pejeróinn og til að vera nú alveg hlutlaust þá var Trooperinn að standa sig best. En hann er líka léttasti bíllinn í hópnum og ökumaðurinn vanur.

    Svo er spurning um búnað – Patrolinn í þessari ferð var á lélegum 44" mudder og í vandræðum með læsingar og milligír – Ég var hins vegar með allan þennan búnað í lagi og á hálfslitnum 44" DC á 14" felgum. LC80 bílinn var líka með öllu og á 44" DC en 18" felgum.

    Þannig að ég held að þegar á heildina er litið þá skipti bíllinn ekki höfuðmáli, heldur að ökumaðurinn og hans þekking á bílnum sé það sem öllu skiptir.

    Varðandi 6×6 bílana þá er ég alveg klár á því að þeir eru gríðarlega öflugir við flestar aðstæður – en þó held ég að það hljóti að vera vandamál með of litla þyngd á pallbílunum – enda benda myndirnar af RAM bílnum til þess að það verði að þyngja hann að aftan til að hann virki. Þetta fékk ég reyndar staðfest eftir björgunarferðina sem þessi tröll fóru í til að bjarga Willys á Sprengisandi – ef ég misskildi ekki fréttir af þeim túr þá var færi þannig þar að tröllin voru alls ekki að gera stóra hluti – ekki það að aðrir hafi verið að því heldur.

    Bara svona pælingar…. En ertu að spá í að skipta Teddi ? Eða á að setja þriðju hásinguna undir Toyotuna ?

    Benni





  • Author
    Replies
Viewing 5 replies - 1 through 5 (of 5 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.