Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hver er manna fróðastur ?
This topic contains 21 replies, has 1 voice, and was last updated by Grimur Jónsson 16 years, 11 months ago.
-
CreatorTopic
-
07.12.2007 at 09:54 #201336
Jæja nú þarf ég hjálp ! málið er að ég er með Patrol „92 á 35“ dekkjum og er að berjast við skjalfta í stýri og ekki þetta týpiska slag sem að er nokkuð stöðugt heldur byrjar þetta í kringum svona 60 km hraða og stigmagnast þangað til ég snarstoppa. Ég er búinn að skipta um stýrisenda og stýrisdempara, er með ný dekk sem að voru ballenseruð sérstaklega vel.(skipti líka um gorma og dempara þó að það skipti ekki máli.)Spindilhallinn er ekki nema 5,5 gráður og það er búið að hjóla stilla hann og allt í góðu lagi þar.Er með 2-3 ára SKF legur sem að eru í fínu lagi og nýbúið að herða uppá.Veit ekki hvort að það tengjist þessu eitthvað en ég var að setja fremra drifið á aftur eftir að það hafi vantað í þónokkurn tíma og það eru skruðningar þegar að ég beygji eða bremsa þegar að ég er með hann í fjórhjóla drifinu. Hvað getur þetta verið ??
Vona að ég heyri í einhverjum af öllum þessum snillingum þarna úti, þar sem ég er orðinn alveg ráðþrota.Tími ekki að fara að gefast upp á bílnum núnaþ
kv Haukur T.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
07.12.2007 at 10:04 #605914
mjög liklega slit í stífu gúmmium jeppaveikin kemur upp við þau tilefni ef allt annað er í lagi
07.12.2007 at 10:17 #605916Slit í fóðringunum í þverstífunni.
07.12.2007 at 10:25 #605918Þá fremri hásing út í stífu ?
07.12.2007 at 15:33 #605920hefur þu athugað spindillegurnar.
taktu hjolið af aftengdu millibilsstöngina þannig að
hjolanafið se fritt og snuðu þvi ef það er lett að snua eru trulega onytar legur eða of margar skinnur undir lokunum yfir spindillegunum
gott að taka þær bara burt.
En hættir ekki skjalftinn ef að þu spyrnukeyrir
hann upp fyrir 60 70 mjög akveðið.
Annað verður hann betri ef þu keyrir i 4×4
varðandi skjalftann.
Og brakið i framhjolunum gæti komið fra lokunum
ef þær eru stirðar af notkunarleysiSkoðaðu þetta
kveðja Helgi
07.12.2007 at 17:16 #605922Ert þú öruglega með Patrol felgur .
07.12.2007 at 22:50 #605924Það er einsog mig grunaði, það hefur ekki staðið á svörunum hér.
Þó að fóðringar í stífunum sé ekki upp á sitt besta þá held ég að Helgi hafi hitt naglan á höfuðið, hann er góður ef að ég spyrnu keyri hann og svo spurðist ég fyrir í dag með legurnar og það var útskýrt fyrir mér þetta með "pollinn" sem myndast í þeim og það passar alveg. Ég ætla allavega að kíkja á þetta.
En ég veit ekki með felgurnar, hvort þær séu orginal. Skiptir það máli ?
kv Haukur
07.12.2007 at 23:00 #605926Patrol felgur eru með aðeins stærra gati, þar sem nafið er aðeins stærra en gengur og gerist með 6 gata felgur. Þannig hafa sumir lent í því að skrúfa á felgur sem falla ekki alveg upp að og geta endað skakkar upp á og valdið hristingi þal. Allavega, þetta er kenningin og ég hef heyrt af allavega einum sem lenti í þessu. En hvort að munurinn á stærðunum sé það lítill að það sé hætta á þessu skal ég ekki fullyrða. Margir pattar eru með rendum nöfum til að "allar" felgur passi á þá.
-haffi
08.12.2007 at 11:12 #605928Er eigintíðnivandamál. Smávæginlegur skjálfti í dekkjunum er alltaf upphaflega orsökin, en slit í einhverju öðru í framhásingunni gerir þetta að vandamáli.
Eins og önnur eigintíðnivandamál á þetta sér aðeins stað á ákveðinni tíðni eða m.ö.o á ákveðnum hraða. Á breyttum jeppa er það á milli 60-90 (eftir dekkjastærð, lægra með minni dekkjum). Þannig er það eðli máls að ef þú gefur í upp fyrir vandamálahraðann þá verður allt stillt og gott, alveg eins og fyrir neðan þennan hraða.
Þetta vandamál á sér eingöngu stað á bílum með heila framhásingu, ekki á klafabílum (og einhverstaðar las ég að sjálfstæða fjöðrunin hafi í raun verið fundin upp upphaflega til að losna undan þessu. þetta plagaði bílaframleiðendur mikið í árdaga bílsins).
Séu dekkin þokkaleg og allt annað sem úr lagi getur farið í hásingunni og stýri í lagi, á veikin að liggja í dvala…
Á ensku er þetta kallað Steering whooble.
16.12.2007 at 02:57 #605930Ég er með Nissan dc á Ground Hawg II á 13" breiðum felgum og er orðinn mjög pirraður á skjálftanum. Ég er ekki að tala um stöðuminnið sem kemur yfir nótt heldur reglulegann skjálfta. Hann er með svona fisksveiflur á afturendanum.
Bíllinn versnaði eftir að ég lét ballansera felgur og dekk. Mér hefur fundist lágadrifstöngin hreyfast of mikið þó ekki á keyrslu en samt skjálfti. Hef farið með bílinn í Arctic Truck og það eina sem þeir fundu var smá skekkja á bremsuskálum að aftan, en þeir sögðu að það væri ekki nóg. Tvö dekkjaverkstæði segja dekkin ekki vírslitin og hef prufað að skipta á aftur og framdekkjum. Allar fóðringar og stýrisendar í góðu lagi og hjólastilling gerð af verkstæði B. Stef . Allar legur yfirfarnar og ekkert sjáanlegt þar.Nú vantar mig hugmyndir sem vert er að ath.
Bkv. Magnús G.
16.12.2007 at 12:57 #605932Ég er búinn að eiga nokrar gerðir af bílum (jeppum)
og er þessi skjálti þekt vandamál í þeim öllum þegar þeir fara að eldast og stlitna.Ég hef skift um legur látið ballensera dekk skifta um fóðringar og gummí í stifum og bara allt en ekkert kemur að gagni fyrr en settur hefur verið stíristjakkur sem er ekki mikið mál. Þeir smiða svona tjakk á Ljónstöðum fyrir lítinn pening.
Kv Sissi
16.12.2007 at 16:11 #605934fáðu lánaðan dekkjagang á felgum af öðrum bíl og prufaðu hvort þetta er viðvarandi. Gætu einfaldlega verið dekkin hjá þér þrátt fyrir að menn haldi að þau séu í lagi.
Ég er einnig að berjast við svona jeppaveiki í 44"DC eftir að ég svissaði fram- og afturdekkjunum, voru fín fyrir en er farinn að gruna þrengsli um nöfin að framan.
Brak í beygju í 4wd geta vel verið lokurnar, önnur einkenni eru högg í drifrásinni þegar þær svíkja.
kv
Agnar
16.12.2007 at 16:48 #605936Maggi ég er með eina hugmynd…
Sjáðu ljósið og seldu bílinn og fáðu þér toyota…
kv. stef…
16.12.2007 at 20:49 #605938ljósið hjá Stefaníu því að Cruserinn minn lét nákvæmlega svona fyrir tveimur árum og þá voru það einmitt spindillegurnar sem voru lélegar í honum. Ég var búinn að vesenast í stífugúmmíunum og því öllu áður en ég fann að slitið var í þessum legum. Bara tjakka bílinn upp og hreyfa dekkið eins og þegar verið er að skoða hjólalegurnar, best ef einhver annar gerir það, þá sést hvort spindillegurnar eru slitnar.
Kv Beggi
16.12.2007 at 23:50 #605940Jæja Steffa
ef þú getur sannað að togaogýta sé laus við svona skjálftamál, þá skal ég gefa þér nýjan barby !!
Ef ekki, þá kemur þú með fjóra dunka á Fimmtudagskvöldið 20.12. !!!!
samþykkt ?En Maggi veðurviti
Þú ert náttúrulega búinn að ath. hvort dekkin snúist rétt,þau eru stefnumerkt. Líklega einu 38" dekkin sem eru svoleiðis.
Þegar ég eignaðist Patta alveg óvart um daginn þá var óljóst hvort hann var að koma eða fara.
Hef svosem ekkert gert nema að jafna loft í dekkjunum og kannski að herða þau rétt niður.
Gleymdist reyndar á aftan, þess vegna fór afturdekkið frammúr mér í kömbunum.
Sérstaklega ef götin eru eitthvað kjöguð.
Í barby er algengt að tannstangarstýrið sé hálf skröltandi í gúmmíanum á hvalbaknum en þú ert ekki með svoleiðis ?
Þegar leitað er að sliti í þessu þá þarf bíllinn að standa í hjólin.
Á gömlum pajero sem ég átti á síðustu öld þá fóru fóðringar einu sinni á ári í stýrirupphengjunni, ótrúlega lítið slit sem sagði strax til sín á 32"
Svo væri nú hægt að kíkja til þín og skoða þetta í réttu ljósi, það eru jú vetrarsólstöður um næstu helgi.
Upphaflega byrjaði þráðurinn á patrol skjálfta var ekki alveg í focus.
Ef búið er að skoða öll stífugúmmí og þau teljast í lagi þá myndi ég skoða spindillegurnar. Það er vont að finna hvort það er slag í þeim nema að rífa allt utanaf þessu.
Á Patrol þarf að passa að felgurnar setjist rétt á nafið,það eru smá hök sem ekki allar felgur sætta sig við.
Ég slípaði þetta bara í burt hjá mér á sínum tíma.skjálftavaktin.
17.12.2007 at 00:19 #605942Árni baukur aka dunkur það er samþykkt… ég skal reyna að skjóta til þín 4 baukum á fimmtudagskvöldið, ekki málið. Þú ert nú meiri asninn að hafa ekki farið fram á ferðakippu fyrst þú varst að þessu á annað borð ;->
–
Það hvarlaði aldrei að mér að toyota hefði aldrei lent á skjálftavaktinni. Sennilega hefur allt bilað sem bilað getur í toyotum … hm… það sem getur ekki bilað, bilar ekki.
Hins vegar er til svo mikið af þessum kvikindum og ekki síður eigendum með reynslu þannig að ég tel að bilanagreining gæti gengið hraðar fyrir sig hjá veðurvitanum ef hann ætti toyotu nema að mönnum finnist 9 mánuðir ekki langur tími því tími er jú afstæður en í sumum tilfellum eru um 9 mánuðir eðlileg meðganga þannig að lausnin er kannski handan við hornið.
Maggi minn líttu bara á björtu hliðarnar þú átt stærsta "kokteilhristara" í heimi ;->kv. stef…
Ps. er baukurinn kresinn á tegundir? er að prufukeyra eina fyrir þig.
–
psps. naffok… það er bara ágætt að hafa ljósið slökkt…;->
17.12.2007 at 00:30 #605944Þessir fjórir verða vel þegnir á Fimmtudagskvöldið, sem sýnishorn.
Það er ein tylft af bjórum í einum dunk,svo þetta ætti að nægja fyrir eitt bjórblót.
Þá hefurðu líka meiri tíma til safna þessu saman,
Sitt lítið sýnishorn úr hverjum heimshluta væri vel þegið, slepptu samt hrísgrjónabjórnum.baukasleikir.
17.12.2007 at 00:50 #605946Árni baukasleikir, ég þakka boðið og kem eflaust til með að þiggja það þegar Navara-hristingur er kominn út úr skúrnum. Aðrar viðgerðir standa yfir í augnablikinu.
Stef. Það er gott að sjá að ennþá er húmorinn í fyrirrúmi sem ákveðnir aðilar voru búnir að kveða í kútinn. Það er ekki alveg nógu gott að vera með svona kokteilhristara þegar bjór er annars vegar eins og gerðist í Strútsferðinni, en þá gusu þeir við opnun. Hver veit nema að Toyota verði næsti eðalvagn sem ég eignast? Tel það þó ekki liklegt því ég er búinn að sjá tungsljósið í pattanum.Bkv. Magnús veðurþefur
17.12.2007 at 01:05 #605948Árni baukarnir koma… ein dúsin eða svo.
Ég hef einmitt sérhæft mig í svona söfnun þannig að nei… þetta ætti ekki að taka langan tíma.
Geri ég að sjálfsögðu þá kröfu að þeim verði útrýmt á staðnum í votta viðurvist.
Svo er þitt að meta hvort að Maggi B-týpa geti gert tilkall til einhverja þeirra (þ.e.a.s. fyrir útrýmingu) í ljós staðreynda að það er nú hann sem að átti þessa biluð nissan druslu…;->kv. stef…. ;->
17.12.2007 at 01:21 #605950Ég verð nú að viðurkenna það að ég er nú svo dofin að [url=http://www.f4x4.is/new/ads/default.aspx?file=aukahlutir/23186:arsrtepr][b:arsrtepr]festingarlausnir[/b:arsrtepr][/url:arsrtepr] var nú ekki það fyrsta sem að skaust upp í kollinn á mér við að lesa fyrirsögnina… svona er það nú bara.
–
kv. stef
p.s. og það þarf ekki að kryfja þetta neitt nánar.
17.12.2007 at 01:21 #605952Jú að sjálfsögðu geri ég tilkall til hlutarins, enda kosinn "óheppni ársins" í votta viðurvist.
Já það er skrítið hvað við b-týpurnar eigum það til að hlaða á okkur druslum, þ.e.a.s þú tveimur samanbundnum Toyotum og ég tveim Nissan.bkv. Magnús. G.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.