Ferðaklúbburinn 4x4Hver er ábyrgð seljanda – Ferðaklúbburinn 4×4 https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/feed/ Thu, 01 Oct 2026 14:06:01 +0000 http://bbpress.org/?v=2.5.10-6063 is-IS https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611542 <![CDATA[Ábyrgð]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611542 Fri, 25 Jan 2008 17:31:06 +0000 Logi Már Einarsson Án þess að vera mjög fróður um þessi mál þá held ég að að inn í þetta geti spilað hversu mikið bíllinn er ekinn og ýmislegt annað en ef þú hefur átt bílinn innan við mánuð og upp kemur galli þá held ég að ábyrgð seljanda sé allnokkur. Leitaðu álits lögmanns, þeir vita mest um þessa hluti. L.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611544 <![CDATA[Ábyrgð]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611544 Fri, 25 Jan 2008 18:03:08 +0000 Róbert Örn Albertsson Ég held að þú eigir einhvern endurkröfurétt á fyrri eiganda ef þú hefur gefið fullt verð fyrir bílinn en ekki 100% viss. Spjallaðu við lögfræðingana niðrí FÍB þeir eru mjög fróðir og hjálpsamir með svona mál.
Kv Róbert

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611546 <![CDATA[…]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611546 Fri, 25 Jan 2008 18:56:28 +0000 Gísli Rúnar Kristinsson í öllum tilfellum sem ég hef heirt að bílar bili fljótlega eftir sölu þá hefur kostnaðurinn oftast verið skipt í 50/50 á kaupanda og seljanda. En oft heirt að ef bilum kemur upp innan mánaðar þá er ábyrgð alfarið seljand nema að misnotkun komi í ljós sem leiði til bilunar. samt eitt dæmi með að mágur minn seldi camaro fyrir nokkrum árum og svo hringir kaupandinn í hann og segir að skiptingin sé hrunin og hann tapaði málinu og þurfti að borga nýja með ísetningu jafnvel þó að það hafi sannast að gæji stóð á bremsunni og spólaði í nokkrar mínútur sem leiddu til þess að skiptingin fór. og þó voru 1-2 mánuðir síðan hann seldi bílinn.
Farðu með þetta í lögfræðing. ég er 99% viss að rétturinn er þín meigin. Allavega 50/50 skipting

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611548 <![CDATA[Ábyrgð]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611548 Fri, 25 Jan 2008 23:13:27 +0000 Vilhelm Snær Sævarsson Fíb sagði mér að fara í neitendastofu og þar er málið komið í kærunefnd lausafjár og þjónustukaupa en þessi nefnd var stofnuð fyrir nokkrum árum vegna svona vitleysinga sem neita að taka þátt í tjónum. Ég bauð fyrri eiganda að hann myndi borga varahluti og að ég tæki viðgerðarkostnað á mig en það var ekki inní myndinni að hans hálfu
Kv Vilhelm

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611550 <![CDATA[www.ns.is]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611550 Fri, 25 Jan 2008 23:22:38 +0000 Hafsteinn Þór Hafsteinsson Ef þú hefur gaman af því áð lesa þá er eitthvað fjallað um þetta í [u:9s77yygp][b:9s77yygp][url=http://www.ns.is/handbok_neytenda:9s77yygp]handbók neytenda[/url:9s77yygp][/b:9s77yygp][/u:9s77yygp] á vef Neytendasamtakanna.
-haffi

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611552 <![CDATA[siðlegi parturinn]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611552 Sat, 26 Jan 2008 00:12:07 +0000 Ólafur Ragnar Birgisson Get sagt þér að öll svona mál hafa tapast í rétti. Það er til eitthvað sem heitir skoðunarskylda kaupanda og ef bíllinn er keyptur af einkaaðila þá er þetta bara tough shit fyrir þig. Þetta er ósiðlegt en fullkomlega löglegt. Botninum hvolft ef að gæinn sem að átti bílinn vill ekkert taka á þessu þá er þetta allt á þig…. sorry

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611554 <![CDATA[…….]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611554 Sat, 26 Jan 2008 00:20:05 +0000 Vilhelm Snær Sævarsson þá er semsagt hægt að gefa skít í kaupalögin og selja hvað sem er og segja svo bara fock you þegar eitthvað gerist?? legg til að þessi fjandans lög verði felld úr gildi
Kv villisemeralvegbrjálaður

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611556 <![CDATA[….]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611556 Sat, 26 Jan 2008 00:38:09 +0000 Helena Sigurbergsdóttir það hafa ekki öll svona mál tapast. Veit um mál sem kom upp síðasta vor, þar var um að ræða mótorhjól og gírinn fór í þvi mjög stuttu eftir sölu. Ekki var hægt að sanna hvort ástæðan var röng meðferð nýs eiganda eða galli. En allavega vann kaupandinn málið.
Kveðja Lella

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611558 <![CDATA[skoðunar skilda]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611558 Sat, 26 Jan 2008 10:05:49 +0000 Þórður Ingi Bjarnason Réttur kaupenda er ekki mikill þar sem kaupandi kaupir notaðan bíl í því ástandi sem hann er og því er skoðunar skilda hans mikil. Ég veit um dæmi sem vélinn fór í bíl stuttu eftir kaup. Kaupandi fékk allan kostnað á sig þar sem fyrri eigandi taldi að bíllinn hafi verið í fullkomnu lagi þegar hann seldi hann.

]]>
https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611560 <![CDATA[lentií]]> https://old.f4x4.is/spjallbord/umraeda/hver-er-abirgd-seljanda/#post-611560 Sat, 26 Jan 2008 11:05:36 +0000 Jóhann Freyr Jónsson sæll, ég get sagt þér það að ég keypti bíl fyrir nokkru lítið keyrðan með góðri smurbók og allt eins og það átti að vera. það hrundi túrbínan innan við mán og var ónýt eftir ég fékk bíllinn. það var búið að vera svona eigenda skipti áður enn ég fékk bíllinn eins og hjá þér. Upplýsingarnar sem ég fékk að ef ég gæti ekki sannað kæruleysi fyrri eiganda s.s. léleg olíuskipti eða annað trassaskap væri tjónið mitt. En mér finnst boð þitt sanngjartmeð vinnuna og varahlutina. gangi þér vel. kv. Jóhann

]]>