Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › hvar finn ég tógarstýringu á spil
This topic contains 16 replies, has 1 voice, and was last updated by Kristján Þór Finnsson 17 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
01.02.2007 at 23:47 #199571
hér á landi.
er að smíða brakket fyrir ramsey 8000 spil en mig vantar gatið til að stýra fínu dynex tóginni. hvað heitir þetta annars? er kallað „fairlead“ á ensku.
vitið þið hvar ég fæ svona. þeir í artic trucks eiga það ekki.
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
02.02.2007 at 00:11 #578642
Er ekki talað um spilvör eða bara vör. Prufaðu Arctictruck eða Benna, svo gæti einhver átt þetta af gömlu spili.
Góðar stundir
02.02.2007 at 00:15 #578644að tala um það sem kallast á spilum vírastýring ???hum hum ??
02.02.2007 at 09:15 #578646hér á landi á.
búinn að tala við bílanaust (þeir höfðu ekki heyrt svona nefnt hvað þá annað), benni þarf að sérpannta, artic trucks ekki til, kt á akureyri ekki, málmsteypan hella ekki.
einhverjar hugmyndir um hvar ég fæ svona ál-spilvör fyrir dynex tóg?
[img:3k2gxnie]http://www.okoffroad.com/gifs/stuff/winchrope-winch-2.jpg[/img:3k2gxnie]
02.02.2007 at 09:27 #578648Út á Granda, beint á móti gamla Ellingsen húsinu (eiginlega sama plan) er fyrirtæki sem er að selja víra, man ekki hvað það heitir, var út á Seltjarnarnesi áður.
Allavega sérhæfa þeir sig í vírum og held ég öllu tilheyrandi.Kv. Hjalti
02.02.2007 at 09:27 #578650Er þetta ekki spurningin um þokkanlegt renniverkstæði. Ef þú ert með málin ætti ekki að vera erfitt að forrita tölvufræsara fyrir svona stykki.
02.02.2007 at 12:36 #578652Landvélar eru að selja spil, möguleiki á þessu hjá þeim.
Landvélar ehf, Smiðjuvegur 66
200 Kópavogur
sími 5805800, fax 5805801
02.02.2007 at 20:32 #578654Ég á varir handa þér sem er af WARN spili en hún er úr stáli. Er í GSM 822 2063.
Kveðja – Gísli
02.02.2007 at 20:42 #578656Það er til fyrirtæki sem heitir Geislatækni sem gæti
örugglega útbúið svona. Þeir eru með tölvustýrða laiserskurðarvél. Ég kom einu sinni til þeirra þá voru þeir að smíða bracket undir spil. Hér er linkur.
http://laser.is/forsida.php
11.02.2007 at 22:28 #578658hjá endusöluaðila ramsey í þýskalandi, sem sendi um hæl á hótel hjá félaga mínum.
en allt er smollið saman núna. búin að vera 2 vikur að gera upp spil sem mér áskotnaðist.
svona lítur þetta út framaná grána:
[img:2q5j1v4f]http://www.obak.info/kf/hvammurinn/gpweb.nsf/htmlpages/2007-0211-103522-web/$file/2007-0211-103522-web.jpg[/img:2q5j1v4f]takk kærlega fyrir öll svörin sem ég fékk útaf öllum mínum spilaspurningum, hefði ekki klárað þetta án þeirra.
kf
12.02.2007 at 10:11 #578660Án þess að ég sé nú mikið að skipta mér af enn hversu sverann leiðara ertu með að spilinu? Á myndinni að dæma sýnist mér að hann sé 10 kvaðröt ? ekki rétt ? Miðað við hvað áður var sagt í spjallþráði tengdum þessu gæti þetta spil dregið um 400A þegar mest lætur… þannig að þessi leiðari myndi hitna við það álag allverulega…(svo mætti auðvita skella til þess að losna við leiðindar óhreinindi á tengipúnktunum(sem sjást á mynd) svokölluðum herpihólk sem myndi gera saltinu erfiðara fyrir að komast að og éta upp tengingarnar)
Kv Alexander
12.02.2007 at 12:49 #578662þetta er hárrét. ég var bara svo spenntur að prófa dótið að ég notaði 10q kapall.
ég þarf líka að hanna "solenoid" boxið betur svo það sé lægra og ég geti sett spilið aftaná grána án þess að rekast í kassann á hleranaum.
krumpuhólkarnar voru ekki farnir á því ég ætlaði ekki að nota þessa kapla til framtíðar.
hvað þarf ég annars öflugan kapal frá mótór í stýringuna?
gildir ekki sama um frá snöggtenginu að stýringunni?
12.02.2007 at 13:18 #578664Ef þú ferð á
http://www.neytendastofa.is/lisalib/get … itemid=862
bls. 132 þá sérðu töflu sem gefur upp hversu gildan leiðara þú munt þurfa enn verður að athuga það að þessi tafla er notuð fyrir húskofa enn samkvæmt henni ættirðu að þurfa ansi sveran leiðara,einnig muntu nota fínþættan leiðara sem ber meiri straum enn einþáttungur. Er nú ekki með spil hjá mér enn sjónminnið segir mér að þeir séu að nota ca 25-50q fínþætta leiðara að og frá.
12.02.2007 at 15:44 #578666…er almennt tiltölulega grannur, enda bara um stýristraum að ræða.
Elvar
12.02.2007 at 16:44 #578668sagði mér eins sinni að ódýrast væri að kaupa sér vír fyrir rafsuðuvélar í þetta. Fullvaxnir vírar í þessum venjulegu bílabúðum kosta bara alla peningana.
been there, done that, enn með verki í veskinu.
kv
Rúnar.
12.02.2007 at 21:35 #578670Rakst á verslun sem selur rafsuðuvélar og fl. vírar í öllum sverleikum á mjög góðu verði að mér fannst.
Niðri á Granda, ská á móti þar sem að Ellingssen var, við hliðina á björgunarsveitinni.
14.02.2007 at 09:42 #578672ég fór út á grandagarð 13 til þeirra í klif ehf
þar verslaði ég 4 metra af 35mm2 kapli í spilið á rétt rumlega 600 krónur metrinn. þessi kapall er miklu betri en þessir bílarafmagnskaplar svo ég tali nú ekki um verðið. að kaupa svona kapal í bílanaust útheimtir fasteignaveð. verðlagið þar er reyndar efni í sér umræðu.
að auki þá fékk ég "rafsuðu svuntu" úr leðri á 2.000 krónur, til að nota í járningunum (í stað þess að kaupa járningasvuntu á 20.000) og samanbrjótanlegan rassvasastinganlegan rafsuðuhjálm til að hafa í bílnum fyrir háfjallastartkaplarafsuðu á 1.500 krónur.
að auki labbaði ég út með nokkra "bænda-pinna" til að sjóða með startköplum á fjöllum. þeas pinnar sem þurfa lága kveikispennu.
ef það var ekki nóg þá klemmdi snillingurinn þarna tengiskóna a kapalinn fyrir mig svo það er bara að fara heim og skrúfa.
gaman á þessum síðustu og verstu tímum ofurálagningar og græðgi að fara einhvert og upplifa hinn pólinn í þessu.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.