Forsíða › Forums › Spjallið › Innanfélagsmál › Hvar er Setrið?
This topic contains 15 replies, has 1 voice, and was last updated by Jack Hrafnkell Daníelsson 20 years, 6 months ago.
-
CreatorTopic
-
14.06.2004 at 23:29 #194463
Ég borgaði félagsgjöldin mín 7. maí og hef ekkert Setur fengið. Hafa aðrir lent í þessu og hversu lengi hafið þið þá þurft að bíða?
Haukur
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
15.06.2004 at 02:12 #503884
Ég skráði mig fyrir meira en mánuði síðan og er ekki farinn að sjá gíró fyrir gjöldunum, hvað þá setrið Vill endilega fara að sjá þetta fljótlega.
Kveðja. Keli E-1819
15.06.2004 at 09:00 #503886
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Við vorum 2 sem skráðum okkur á sama tíma, hann er búinn að fá 3 eintök en ég 1.
mk,
Gulli
15.06.2004 at 09:59 #503888Trúðu mér þú villt ekki fá setrið!! Það er búið að troða einhverjum Patrolbeyglum á forsíðuna.
Heilaþvottur seigi ég..Benni R–3370
15.06.2004 at 10:01 #503890
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Líkleg skýring á þessu er að umsjónamenn félagaskrár séu ekki búin að fá upplýsingar frá deildunum um þá félaga sem greitt hafa félagsgjöld. Þegar upplýsingar þurfa að fara frá einum aðila til annars getur það alltaf tafið málin eitthvað. Hins vegar þegar töfin er farin að teljast í mánuðum er líklegt að einhverjar upplýsingar séu að týnast á leiðinni og ástæða til að minna á sig með e-mail á gjaldkera deiladarinnar og Agnesi og Emil sem sjá um félagatalið (agnes@vgk.is og emil@lol.is).
Kv – Skúli
15.06.2004 at 17:35 #503892Ég skráði mig um áramótin og fékk gíróseðilinn í apríl.
16.06.2004 at 11:29 #503894Sæl öll.
Ég vil biðja ykkur sem hafið sent inn umsókn og ekki fengið greiðsluseðil, og einnig þá sem hafa greitt, en ekki fengið sent Setrið að senda mér línu. Ég reyni að koma þessum málum á hreynt sem allra fyrst.
Emil Borg
emil@lol.is
23.06.2004 at 18:39 #503896Er búinn að senda póst á viðkomandi. Engin viðbrögð. Hvorki berst mér greiðsluseðill né setur. Er nú svolítið sár, enda ætlaði ég að borga gjöldin þar sem mig vantar stimpilinn til að fá afslátt á því sem ég þarf bráðnauðsinlega að versla mér.
23.06.2004 at 21:29 #503898Kannski vilja þeir þig ekki í klúbbinn????????
Nei, er ekki best fyrir þig að fara inn í mörkina á morgunn á opna húsið og tala við þessa snillingaaaaaaaaaa
það opnar kl:20.00 og láta þá heira þaððððððððððð.Hilsen
Kalli
24.06.2004 at 01:24 #503900Það væri kanski ráð að gera það. Sé til hvort ég næ því að vera þar angandi af hrossakjeti á þeim tíma. Verða þá snöggir að afgreiða mann til að losna við mann. He he he he he
24.06.2004 at 09:38 #503902Leitt að heyra að þú hafir ekki fengið svör ennþá. Ég fékk póstinn frá þér, að ég held, um seint og síðarmeir, því simnet er ekki að virka sem skyldi þessa dagana. Fékk áðan póst sem sendur var 15. júní! En ég trúi ekki öðru en að Emil og Agnes séu að vinna í málinu, fyrst Emil brást hér við að ofan. Annars ertu velkomin í kvöld, hvort sem þú angar af hrossum, kjeti eða blómum.
Kveðja
Soffía
24.06.2004 at 10:28 #503904Sælir.
Ég bara verð að viðurkenna að hafa ekki haft tíma til að ganga frá þessum málum enn. Búinn að liggja í bælinu, og var svo að þvælast á Vatnajökli um síðustu helgi.
Lofa samt bót og betrun.Emil
24.06.2004 at 13:15 #503906Er ekkert of öruggur með að komast í kvöld, en sé til hvernig málin þróast. Er að fara austur í Landeyjar í dag og ekki alveg vitað hvenær ég legg í hann til baka. Fer eftir því hvernig verkefnið gengur.
08.07.2004 at 00:03 #503908Ég verð nú að segja að ég er nánast að komast á þá skoðun að ég sé hreinlega ekkert velkominn í félagið
Ekkert bólar á greiðsluseðli eða neinu í þá veruna. Spurning hvort maður ætti ekki bara að hætta við þetta allt saman og selja bara jeppahræið og fá mér eitthvað annað í staðinn.
08.07.2004 at 00:41 #503910Ég trúi því nú varla að eina ástæðan fyrir því að þú hafir keypt þér jeppa sé sú að fá inngöngu í Ferðaklúbbinn.
Ég myndi ekki fara að láta svona smáatriði eins og inngöngu í einhver félagasamtök hafa áhrif á áhugamálið. Eftir því sem mér skilst á umræðunum hérna á vefnum þá er þetta ekkert nýtt og þú ekki einn í þessu, og plús það að allir eiga að vera velkomnir á fundi sama hvort þeir eigi jeppa eða ekki.
08.07.2004 at 01:26 #503912Nei ég keypti mér ekki jeppa til þess eins að ganga í klúbbinn. Ég keypti mér drusluna til að komast upp á hálendið í sumar og kanski eitthvað í vetur ef heilsan og veskið leifa það. En þar sem maður þarf jú að standsetja draslið og versla sér rándýra varahluti, þá hefði komið sér ágætlega að vera með félagsskírteinið til að fá einhverjar krónur í afslátt. En kanski skiptir það ekki máli úr þessu þar sem veskið er tómt og það á eftir að skoða gripinn og greiða tryggingar. En komon. Til hvers að væla? Hefur það einhvern tíma hjálpað?
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.