Forsíða › Forums › Spjallið › GPS og leiðir › Hvar er miðjan
This topic contains 101 replies, has 1 voice, and was last updated by Agnar Benónýsson 15 years, 9 months ago.
-
CreatorTopic
-
03.12.2005 at 15:04 #196770
AnonymousÉg hef aðeins verið að spekulera í, Er Hallgrímsvarða á miðjum Sprengisandi og hvar er miðja landsins ( skurðarpunktur ) og hvar er sá punktur landsins þar sem er lengst til sjávar til allra átta.
Svo læt ég fylgja með vísu sem samin var eftir að maður nokkur hafði hlustað á tvo Óþverra segja af sér frægðarsögur á síðasta opna húsi.
Aldrei hræddur þó hann vaggi
Aldrei er ég heldur linur
Fyrstur talar Maggi
Fast á eftir Hlynur( höfundur vildi ekki láta nafn síns getið )
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
04.12.2005 at 17:38 #534762
Kíkið endilega á visindavefur.is og farið t.d. á "miðja íslands" og "leita".
Þar kemur fram að miðjan landfræðilega er uþb. á 18.9°V og 64.6°N, 118,3 km frá sjó. Fróðlegt væri að fá þetta enn nákvæmar útreiknað. Getur verið að þetta sé í öðru hnitakerfi en við notum, á mínu korti er þetta inni á jökli en á teikningu vísindavefsins er þetta sunnan Hofsjökuls og skv. Skúla þá er þetta rétt suðaustan Blautukvíslarjökuls. í Jökulkrika milli Söðulsfells og Ólafsfells.
Tökum veglega á þessu máli og reisum okkur bautastein!
Ingi
04.12.2005 at 20:03 #534764Ég er ekki alveg að kaupa þessa staðsetningu hjá vísindavefnum. Þær mælingar virðast ekki taka tillit til vestfjarða, heldur er mælt stiðsta leið í sjó, í hverja átt. Optimas forritið sem konan (Inga) notaði til að mæla miðjupunkt, tók vestfirði með í reikningin, en ekki neinar eyjar. Forritið setti út 1007 punkta, hringin í kringum landið og mældi miðjuna út frá þessum punktum. Agnar færði punktin á landakort og fékk hann ca í Miklafell, sem er ekki langt frá þeim stöðum sem ég hef heyrt talað um sem miðju landsins. (fyrir vestan Fjórðungsöldu) Ég held að maður verði að fá alvöru botn í þetta mál, en miðjuna vil ég ekki hafa í rotþró.
Hlynur
04.12.2005 at 20:11 #534766sammála Hlyn rotþróin gengur ekki. Og líst mer vel á þá aðferð sem hann lýsti, það er að taka allt landið með.Hlynur hvar er þessi punktur, lengd og breidd.?
04.12.2005 at 20:30 #534768Það er nokkuð ljóst að punkturinn sem Inga kom með er ekki sá punktur þar sem lengst er til sjávar í allar áttir, sem og að punkturinn sem Vísindavefurinn kemur með er tekur ekki tillit til vestfjarða.
Spurningin er þá væntanlega hvernig skilgreinum við miðjuna. Ég er allavega ekki sammála Freysa um að það sé staðsetningin á þeirri rotþró sem lengst er frá sjó í allar áttir
ps. ef við reiknum massamiðjuna, notum við þá meðaltalsfjöru eða stórstraumsfjöru sem 0 punktin á Z-ásnum?
kv
Rúnar.
04.12.2005 at 21:55 #534770landfræðileg miðja sem er samkvæmt mínu hyggjuviti massamiðja landsins mínus eyjar og sker í plani það er ekki tekkið tillit til fjalla
ég lét tvö cadhönnunarforrit reikna massamiðjuna á 5000 punkta módelli (mercators vörpun) með AutoCad og IMSI Turbocad og niðurstaðan var sú sama með þeim báðum útlínurnar fékk ég hjá [url=http://www.maproom.psu.edu/cgi-bin/dcw/dcwarea.cgi?Europe:3efeyngu]mapproom[/url:3efeyngu] í dxf formati. Ég reyndi landmælingar íslands en það var eins og annað á þeim bæ bara tímaeyðsla.
hér er niðurstaðan
64 59,340N 18 35,328W
(skárra en að góna á sjónvarpið)
GuðmundurÞarna er hún
[img:3efeyngu]http://www.mmedia.is/gjjarn/drasl/midja.jpg[/img:3efeyngu]
04.12.2005 at 21:58 #534772Það virðist vera bara ein niðurstaða í þessu, það er að miðja landsins fer eftir því hvernig hún er er skilgreind. Allar aðferðir hafa sína veikleika, það er auðvitað rétt að þessi aðferð með fjarlægð frá sjó tekur ekki tillit til Vestfjarða en ef ég skil aðferð Ingu rétt myndi ég segja að hún ofmeti áhrif útkjálka. Massamiðjan gerir það hins vegar ekki.
Mér finnst allavega athyglisvert að Setrið er allavega sá gististaður á landinu sem er lengst frá sjó og það verður ekki véfengt. Ef maður léttir á sér í klósettið á Setunni á dropin lengri leið fyrir höndum til sjávar en á nokkru öðru postulíni og það er nú allnokkuð.Kv – Skúli
04.12.2005 at 22:18 #534774Þú er væntanlega að meina flatarmálsmiðja? Réttara verður þetta varla.
Massamiðja án tillits til fjalla er náttúrlega eins og þrívidd án tillits til þriðju víddarinnar…
Þessi punktur er 12.1 km norð norð vestur (348°) af punktinum sem Inga kom með.
Svo er spurning hvort ekki ætti að nota vatnaskil sem mælieiningu á miðjuna?
kv
Rúnar.
04.12.2005 at 22:29 #534776Við erum sem sagt komnir með þrjár miðjur.
1. Landfræðileg massamiðja þar hver m2 fær jafnt vægi (64 59,340N 18 35,328W).
2. Lengd frá sjó (Setrið)
3. Miðja út frá fjórum ystu punktum landsins (64 52,250 – 18 30,241)
Þessir þrír punktar raða sér í kringum Hofsjökul og því kannski ekki úr vegi að kynna til sögunnar fjórðu miðjuna en það er miðja þríhyrningsins sem þessir þrír punktar mynda, upp á miðjum Hofsjökli.
Hvað finnst ykkur um þetta útspil
kv
Agnar
p.s. flott síða sem þú fannst Guðmundur, var einmitt kominn með útlínur landsins í Ozi en átti eftir að finna leið til að koma þessu inn í AutoCAD
04.12.2005 at 22:38 #534778ekki punktarnir í 12 versi á þessum þræði.
Kveðja
Elli
04.12.2005 at 22:46 #534780Ofangreindar "massamiðjur" eru náttúrulega bara pólitískar massamiðjur landsins (eða svona sirkabát).
Og getið nú, af hverju
Það er náttúrulega alveg víst að ég veð hér eigin villum miklum ….!
kv
Rúnar.
04.12.2005 at 22:52 #534782
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Halló
Miðpunktur landsins er fyrirbæri sem er nokkuð erfitt að setja niður með einhverri nákvæmni í tölvu. Aðal málið er það að skalinn sem mælt er á skiptir öllu mál. Eftir því sem að skalinn er stærri (fleiri smáatrið sjást) þeim mun lengri er strandlínan sem miðað er við og því fleiri punktar sem þarf að reikna með. Því er það svo að miðpunkturinn færist um vegalengdina x í hvert skipti sem skalinn (stærðin) eykst eða minnkar. Fræðilega getum við reiknað óendalega marga miðpunkta sem allir eru réttir, en á mismunandi skal.
Ekki þar með sagt að eftir því sem að gögnin eru nákvæmari að þá sé miðpunkturinn réttari. Kort eru jú eftir allt bara nálganir á raunveruleikan.
Fyrir mig sem landfræðing er svona nokkkuð einkar skemmtilegt sem fræðileg æfing. Þegar öllu er á bonin hvolft getum við hvert og eitt gert okkur í hugarlund, með því að horfa á kort af Íslandi, hvar miðpunkturinn landsins er (svona nokkurn vegin) og fundið út að hann er nokkurvegni á 18.9°V og 64.6°N. Fyrir okkur flest er það í rauninni nóg.
Gulli
gunnlaugure (at) gmail.com
04.12.2005 at 22:53 #534784Jú auðvitað, var bara búinn að steingleyma þínu framlagi
Eyjarnar eru náttúrlega ekki inni í "massamiðjuútreikningunum" Rúnar ??
04.12.2005 at 22:58 #534786Það er meira en eyjarnar sem eru ekki taldar með
kv
Rúnar
05.12.2005 at 11:37 #534788Varðandi þær kenningar að rotþróinn við Setrið sé miðja landsins, held ég að menn þurfi ekki annað en að lykta úr rörinu og kæmust þá að því að þetta er ekki naflinn heldur rassgatið!!!
Johny B Good
05.12.2005 at 11:39 #534790Það passar þá að naflinn sé aðeins norðar?
-haffi
05.12.2005 at 15:27 #534792Þetta með massamiðjuna er skemmtileg pæling. En þetta er nú einum of geggjað, það þarf jú að gera ráð fyrir eðlisþyngd í hverjum punkti og hversu djúpt skal halda? Spuringin er, á að gera ráð fyrir að mælingin miði við jarðskorpuna eingöngu eða kviku og kjarna í jörðinni líka alveg innað miðju jarðar, en þar sem kvika er á hreyfingu færist miðjan líklega til og miðjan er líka einhversstaðar undir yfirborði jarðar.
Pælingarkveðjur
Elvar
06.12.2005 at 20:50 #534794Vegna umræðu hér á vef ykkar og fyrirspurnar sem ég fékk í dag þá hef ég
reiknað flatarmiðju Íslands. Til grundvallar var notuð strandlína
Íslands í mælikvarðanum 1:50000 og reiknuð var þyngdarmiðja þess flatar
sem strandlínan afmarkar. Þannig að eyjar eru ekki teknar með.
Niðurstöðunar urðu þessar: N 64°59’11.4" V 18°35’12.0" Þetta er rétt NNA
við Hofsjökul milli Illviðrahnjúka og Langahryggs. Kveðja Guðmundur
ValssonVið þökkum kærlega fyrir snögg viðbrögð kv Jón Snæland. Nú væri ekki verra er einhver gæti skannað þenna punkt inn á kort og sett það inn á vefinn. Svo er bara að gera sig klára á vörðubyggingu í vor
06.12.2005 at 20:57 #534796Það er verið að reikna þetta nákvæmar. Eyjarnar eru hluti af Íslandi og þarf þess vegna að reikna þær með.
Kveðja
Elli.P.S. Það mætti vera meira af sambærilegum þráðum sem þessum á okkar ágæta spjalli. Takk Ofsi.
06.12.2005 at 21:18 #534798Mér líst eiginlega ekkert á að hafa landsmiðjuna norðan jökla. Hvernig væri að vinna þetta í hina áttina, ákveða miðjuna fyrirfram, t.d. gott vörðustæði við Setrið, og reikna okkur svo þangað!!!
Ingi
06.12.2005 at 21:51 #534800Gaman að fá þetta staðfest. þarna er samt 290 metra skekkja Norður Suður á milli okkar nafnanna en ég ætla ekki eð gera athugasemdir við það og er sátur við hvorn punktinn sem verður valinn fyrir vörðuna góðu.
það er óþarfi að setja þetta aftur inn á kort því miðjan á Xinu á kortinu sem ég setti inn er stærra en skekkjan
Guðmundur Jónsson Kortagerðarmaður
og þarna er hún[img:g9cuvx6o]http://www.mmedia.is/gjjarn/drasl/midja.jpg[/img:g9cuvx6o]
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.