This topic contains 4 replies, has 1 voice, and was last updated by Magnús Guðmundsson 14 years, 5 months ago.
-
Topic
-
geta mælt eða sagt mér til um það hvort bíll sé grindarskakkur eða eitthvað í þá áttina?
Ég asnaðist nefninlega fyrir ári síðan að kaupa mér vinnubíl, Ford Escort og hefur hann eyðilagt spyrnugúmmí, stýrisenda og jafnvægisstangarenda sem og náttúrulega framdekkin, tvo ganga, vegna þess að hann breytir alltaf hjólabilinu. Fór í Aðalskoðun um daginn í svona hlutaástandsskoðun, og gat skoðunnarmaðurinn sett út á nokkra hluti, en þegar ég spurði hann hvers vegna þetta gerðist, var lítið um svör. Og því spyr ég.????
En kannski er þetta bara hinn heilagi sannleikur með nafnið “ Fix Or Repair Dayly“
Allavega er ég orðinn hundleiður á þessum djö…… fólksbílum, sérstaklega frahjóladrifnum með þverstæða lágkraftsvél.Kv. MG
You must be logged in to reply to this topic.

þessir bílar eru þekktir fyrir að skemma aftari fóðringar í spyrnunum að framan. þú segist vera búinn að skipta um en það skiptir miklu máli hvernig aftari fóðringin snýr en á henni er ör sem á að vísa fram ef hún gerir það ekki eru hjólin að ganga fram og aftur við hemlun/inngjöf og með því færðu allt þetta slit sem þú talar um bæði á dekkjum og balansstangar endum. Svo er annar möguleiki en hann er að þú hafir verslað eitthvað kínverskt drasl sem er í stórum stíl til sölu í dag og endist því miður ekki rassgat.