FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hvað er það sem skiptir máli í vali á jeppa spyr nýliði

by Magnús Steinþór Pálmarsson

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hvað er það sem skiptir máli í vali á jeppa spyr nýliði

This topic contains 38 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson Gunnar Ingi Arnarson 15 years, 1 month ago.

  • Creator
    Topic
  • 04.04.2010 at 22:10 #211880
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member

    Nú er ég nýr í félaginu þó að ég hafi átt og leikið mér að jeppum af og til, þó aldrei neitt umfram 33″. Nú ætla ég að prófa stærra, líklega 38″ og ég er að reyna að skilja hvað skiptir máli í vali á breyttum jeppa. Ég hef verið að lesa þræði hér á spjallinu í fríinu og ef það er eitt sem að ég veit eftir lesturinn þá er það að það er enginn sammála hér um hvað er besta þetta og besta hitt…allt trúarbrögð :)

    Til þess að öðlast betri skilning á „verkfræðinni“ í jeppamennskunni langar mig að skoða aðeins undirliggjandi þætti sem gera jeppa góða eða ekki svo góða, vonanadi án trúarbragðanna. Vel væri þegið ef að þeir sem þekkja málin leiðrétti mig þar sem ég fer með rangt mál eða bæti við betri upplýsingum ef til eru.

    Mér sýnist á öllu að eftirfarandi þættir eru einhverjir þeirra sem skipta máli í vali á jeppa:

    1.Stærð/þyngd
    2.Þægindi
    3.Vélarafl
    4.Eldsneyti
    5.Dekkjastærð (flot)
    6.Dekkjategundir (grip, vegahávaði)
    7.Drifbúnaður (hásingar/klafar)
    8.Fjöðrun (gormar/fjaðrir)
    9.Gírkassar (sjálskiptingar/beinskiptingar)
    10.Millikassar
    11.Lolo
    12.Driflæsingar
    13. Upphækkun

    1. Stærð og þyngd
    Fyrir það fyrsta er væntanlega um náin tengsl að ræða, því stærri sem jeppinn er því þyngri verður hann. Í akstri á snjó þykist ég nokkuð viss um að minni þyngd er betra þar sem ekki þarf eins stór dekk til að ná floti á snjónum. Þá kemur upp spurningin er betra í einhverjum aðstæðum að bíllinn sé þungur? Það er líka augljóst að því þyngri sem bíllinn er því meira afl þarf til að drífa hann áfram sem kallar á meira eldsneytiseyðslu og kallar þá eftir stærri eldsneytistank.

    2.Þægindi
    Þægindi sýnist mér vera afleiða af stærð og þyngd jeppans…því stærri sem jeppinn er því þægilegri er hann. Litlir jeppar eru yfirleitt hastir, þröngir með óþægileg sæti, stórir jeppar fara betur með mann og hafa betri fjöðrun.

    3. Vélarafl
    OK, hér er ég ekki viss hvað skiptir máli. Minni vélar sem eru hagkvæmari í rekstri og snúa ekki allt í sundur eða stærri vélar sem hafa mikið afl og eyða auðvitað meiru, enn eiga það jafnaframt til að snúa eitt og annað í sundur þegar það er verið að beita aflinu. Hversu mikið skiptir afl á fjöllum og jöklum? Fer 100 hestafla Pajero minna en 300 hestafla F350 trukkur þegar horft er til aflsins?

    4.Eldsneyti
    Bensín eða diesel……diesel sýnist mér hafa vinninginn þar sem þú þarft yfirleitt færri lítra pr. x km og þ.a.l. færri lítra í túrinn og minni þyngd…eða hvað? Vélarnar eru jú þyngri en endast líka lengur. Reyndar eru obbinn af diesel vélum frekkar máttvana sýnist mér 100-160 hö en á móti kemur minni eyðsla.

    5.Dekkjastærð
    Hér er ég viss um að það er til einhver formúla þó að ég hafi ekki fundið hana. 35″ = x kg. 38″= y kg, 44″= z kg. Getur einhver upplýst mig um þetta?

    6. Dekkjategundir
    Hér er auðvitað öfgar í báðar áttir væntanlega…..því grófari og betri sem dekk eru í snjó því meir hávaði er í þeim á malbiki og svo öfugt með fínni dekk. Það er varla að maður þori að spyrja en hvað eru bestu dekkin…………

    7.Drifbúanður
    Hér er kannski sá þáttur sem mestu trúarbrögðin eru um. Hásingar eru málið á snjónum en betra að keyra klafa bílana á vegum…………en þeir fara samt svipað mikið eða hvað?

    8. Fjöðrun
    Ég les að um þrennskonar fjaðurbúnað sé að velja. Fjaðrir, gorma og loftþúða…eða blanda af þessu. Hér væri gott ef einhver gæti útskýrt í hverju munurinn liggur þegar í ferðina er komið…………

    9.Gírkassar
    Sjálfskiftingar eru betri vegna þess að þær geta skriðið á lægri hraða…en þær bila meira. Auk þess eyða ss, jeppar meira eldsneyti…….rétt?

    10. Millikassar
    Eins og ég skil það þá er tvennt í millikössum, kassar sem í 4×4 eru læstir þannig að það er alltaf eitt hjól að framan og eitt að aftan sem tekur á og svo select kassar sem leyfa líka átak á einu hjóli í einu…..hér vantar sérfræðing til að útskýra kosti og galla…

    11. Lolo
    Rosa lágr milligír sem gerir jeppum kleift að skríða á mjög hægu hraða í þungu færi…bara í ofurtrukkum.

    12. Driflæsingar
    Sumir bílar koma með þessu orginal að aftan eins og Pajero, Patrol og LC. Þá er þetta drifið með lofti, rafmagni að jafnvel barka. Gott væri að fá innsýn inn í hvað er best í þessu og hversu nausnlegt er að hafa læsingar og þá líka að framan. Les töluvert um að svona læsingar svíki. Svo er til nospin eitthvað sem er sílæsing?

    13. Upphækkun
    Ég les að flestir jeppar eru upphækkaðir, þó mismikið. Mig langar að skilja og gera mér grein fyrir hvað er æskilegt að hátt sé undir bíl sem fara á inn á fjöll og jökla. Ef einhver getur hjálpað mér með tölur væri það vel þegið?

    Svona í lokin þá langar mig að segja að ég sem nýliði er ekki að fara að smíða einhvern ofurtrukk, ég ætla að kaupa einhvern ekki of dýrann (undir milljón) til að byrja með og sjá hvernig gengur og hvernig bakterían grasserar. Mér skilst að þetta bili allt hvort eð er.

    Maxi

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 38 total)
1 2 →
  • Author
    Replies
  • 04.04.2010 at 22:47 #689260
    Profile photo of Logi Már Einarsson
    Logi Már Einarsson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1247

    Þegar stórt er spurt,,,,,,,!!!!! Þetta fer allt eftir því hvað þú ert að pæla. Ég held að það sem þú þurfir fyrst og fremst að gera þér grein fyrir er hvað þú ætlar að gera og hverju þú ert að leita eftir. Ertu hraðafíkill sem vilt geta sprautað út um allt og rassskellt ferðafélagana svo um munar eða vilu bara komast leiðar þinnar þótt það taki einhvern tíma óháð ferðahraða ferðafélaganna? Það sem þú bendir á í þinum punktum er vissulega allt réttmætt og satt. Þú þarft fyrst og fremst að velja þér bíl eftir eigin þörfum. Það er sjálfsagt rosalega gaman að eiga stóran 54 tommu amerískan dreka sem fer svo vel með mann að þú getur hellt í kaffibola á mælaborðinu á 120 km hraða uppi á Langjökli eða eitthvað álíka. En það er sjálfsagt líka ansi kostnaðarsamt. Þú getur svo líka útbúið þér mun ódýrari bíl af einhverjum grjónauppruna og komist allt sem þu vilt komast þó það taki þig kannski lengri tíma að komast á þann stað sem þú vilt komast og með minni þægindum. Allt er þetta spurningin um hvað þú hefur af fjármunum og hvað þú ert tilbúinn að leggja á þig. Og einnig hvaða ferðafélaga þú velur þér. Þú getur útbúið þér millistærð af bíl ( Toyota, Trooper, Musso, Mitsubishi, Nissan ) fyrir tiltölulega lítinn pening og komist allra þinna ferða án vandræða. Það er líka hægt að brjóta allt og bramla í þessum bílum ef þú vilt hafa það svo og fara þá í næstu og sterkari stærðir (ameríkanana) Annars er það svo að þegar þú ferð að leita þér að bíl til kaups þá þarf að gæta vel að hvað er í bílnum. Hvaða vél, hvaða hásingar, hvaða kassar eða skiftingar o.s.frv. Það er oft búið að mixa ansi margt saman og sumt virkar og sumt ekki. Vona að þetta segi þer eitthvað. Kv.. Logi Már.





    04.04.2010 at 23:28 #689262
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Sælir,

    Lestu þennan þráð út í gegn og þá ættirðu að vita allt sem þú þarft til að geta valið þér snjójeppabíl. Hann fjallar um allt frá dekkjum og yfir í lása og ýmislegt annað tengt jeppum og breytingum á þeim.

    http://www.mmedia.is/gjjarn/sjeppar/index.htm

    38" bíll má ekki vera meira en 2000 kg(tómur) til að geta drifið eitthvað að viti, helst í kringum 1600-1800 kg þá ertu með bíl sem fer allt. Í þann flokk fara flestir pickup japanskir bílar, cherokee og nokkrir aðrir.

    44" bílar mega helst ekki fara yfir 2.5 tonn til að vera hæfir.

    kv
    Gunnar.





    04.04.2010 at 23:43 #689264
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 58

    Takk fyrir svarið Logi Már. Þetta setur smá perspektív á þátt sem ég hafði ekki hugsað út í sem er hvað eru hinir að gera og geta þegar kemur að hraða yfirferðar.

    Ef að ég mæti á 38" bíl með 2,5 eða 3,0 TDI bíl (..grjónapoka) er ég þá að horfa á útskúfun í ferðalögum? Ég geri mér alls ekki grein á ferðahraða segjum gömlum Patrol (100 hö) og t.d. F250 með 300 hö diesel vel.

    M





    04.04.2010 at 23:47 #689266
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 58

    Frábær tengill Gunnar. Rosalega fínar upplýsingar.

    Maxi





    05.04.2010 at 13:11 #689268
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 58

    Tók saman samanburðalista á afli og floti helstu gerða Diesel jeppa út frá upplýsingum á síðunni sem gefin var upp hér að ofan og u.pplýsingum um tegundir á bilasolur.is, uppl. um tork voru ekki aðgengilegar. Samkvæmt þessari samantekt þá gætu hagkvæmustu kaupin í duglegum breyttum jeppa verið 38" Trooper eða Terrano II, fæst mest fyrir peninginn.

    Amerísku pickarnir á 44" virðast vera skemmtilegustu tækin út frá afli og floti á 44".

    Samkvæmt síðunni sem tengillinn er á hér að ofan þurfa breyttir jeppar að hafa flotstuðulinn 1,5 -2,0 (lægra er betra) til að geta eitthvað. Jeppi með 1,5 fer allt.





    05.04.2010 at 16:24 #689270
    Profile photo of Freyr Þórsson
    Freyr Þórsson
    Participant
    • Umræður: 117
    • Svör: 1683

    Flott samantekt hjá þér. Það er hinsvegar eitt sem þú gerir ekki ráð fyrir í töflunni, það er þyngdin á jeppunum eftir breitingar.

    Sem dæmi er minn ’97 Cherokee skráður 1530 kg. frá framleiðanda.
    -Meiri þyngd vegna breytinga:
    -38" dekk og 13" stálfelgur
    -Dráttarbiti að framan
    -Ford 9" afturhásing
    -Lítil grind að framan fyrir kastara
    -Aukaljós

    -Minni þyngd vegna breytinga:
    -Varadekk og festingar úr
    -Jafnvægisstangir fr. + aft. úr
    -Rúðupisskútur úr (á eftir að finna annann í staðinn sem kemst fyrir)
    -Upphalarar í afturhurðum úr
    -Rúðuþurrkubúnaður í afturhlera úr
    -Hvarfakútur úr

    Fyrir breytingaskoðun fór hann á vigt og var þá 1780 kg. með um 50 l. af bensíni á tanknum og örlítið af dóti í sér, s.s. u.þ.b. 1720 kg. galtómur. Af þessu má sjá að 38" breyting á jeppa kostar a.m.k. 200 kg. þyngingu nema farið sé í heilmiklar breytingar til að létta hann meira (meira en ég gerði).

    Freyr





    05.04.2010 at 18:16 #689272
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 58

    Góð ábending. Það er þá kannski ekki fjarri lagi að segja að 38" breyting gæti verið um 10% af þurrvikt bíls. Auðvitað getur þetta verið meira og getur verið minna en til að miða við eitthvað þá er það ágætis tala. Ég uppfæri töfluna með þessu til hliðsjónar…..bæti við 100 kg. á alla bíla til að koma á móts við þetta.

    maxi





    05.04.2010 at 20:11 #689274
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 58

    Auka 100 kg. komið á alla





    05.04.2010 at 22:02 #689276
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Eitt stk 38" dekk vigtar um 40 kg.

    Eitt stk 49" dekk vigtar 76 kg.

    Ein 38" felga vigtar um 13-15kg , 49" felga með beadlock um 25-30kg.

    Þyngdir við breytingar eru hlutfallslega mun meiri á þyngri bílum sem þurfa stærri dekk til að drífa. T.d. viktar Ford á 49" dekkjum um 3.3 tonn að mér skilst.

    Ef þú vilt jeppa sem drífur mikið, skaltu leita þér að bíl sem er með um 1.5-7 í dekkja reikni töflunni hans Gumma jóns.

    Eins og hann segir, eru jeppar með meira en 2 illa nothæfir í snjó og það er rétt hjá honum. nema menn séu bara í einhverjum leikaraskap að þjösnast upp á hellisheiði.

    kv
    Gunnar ingi





    05.04.2010 at 22:06 #689278
    Profile photo of Gunnar Ingi Arnarson
    Gunnar Ingi Arnarson
    Participant
    • Umræður: 56
    • Svör: 1378

    Trooper, eru þekktir fyrir lélegar vélar en góðar drifrásir. Díselvélin er víst alveg ferlegur bilanagæji. Bensínvélin er skárri en eyðir alveg helling.

    Terrano, eru þekktir fyrir máttlausar vélar og lélega fjöðrun. Mágur minn átti svona 2.7 dísel, algjörlega máttlaus bíll og hann var á 35" dekkjum. Fjöðruninn er eins og í traktor… googlaðu þessa bíla í breskum bílablöðum og þar fær hann dóma að menn vldu frekar keyra um á massey ferguson heldur en þessum bíl.

    leitaðu betur.

    kv
    Gunnar





    05.04.2010 at 23:00 #689280
    Profile photo of Geirarður Long
    Geirarður Long
    Participant
    • Umræður: 14
    • Svör: 52

    Ég get nú ekki verið samála því að díselvélar í Trooper sú lélegri en aðrar sambærilegar vélar.Allt spurning um ummhirðu svo sem olíu og frostlögsskifti.En það sem mér finnst skifta mestu máli um val á jeppa er varahluta verð og aðgengi að notuðum varahlutum.Kv.





    05.04.2010 at 23:05 #689282
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 58

    Takk fyrir þetta Gunnar.

    Ég notaði athugasemdir þínar til að uppfæra þyngdaraukningu á bíla í töflunni, 250 kg. fyrir 38", 400kg fyrir 44" og 500kg fyrir 49". Auðvitað getur þyngdin aukist um meira en lætt þetta duga að sinni. Ótrulegt hversu fáir bílar falla innan "sweet spot" marks töflu Gumma Jóns…..nema orðnir 44"





    05.04.2010 at 23:07 #689284
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 58

    Hér er Excel skjalið ef einhver vill leika sér með það.

    Bara breyta tölunni í Breyting dálknum……..

    Maxi





    05.04.2010 at 23:31 #689286
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Held að það sé fullmikil einföldun að setja upp einhverja töflu, og finna það út að bíll yfir 2 sé ónothæfur í snjó…… þó það búi eflaust einhver hugsun á bakvið þetta, en fullmikil einföldun.

    Ef þetta væri svona einfalt, ja þá veit ég ekki hvað.

    Eflaust alltílagi að hafa svona apparat sér við hlið til gamans þegar skoða er verið jeppa.

    Kv, Kristján

    Stór vél, bensín og hestöfl og mikið af því er það sem virkar.





    05.04.2010 at 23:40 #689288
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 58

    Auðvitað er ekkert klippt og skorið í þessu en mér finnst það alls ekki slæmur byrjunarpunktur að skoða bíla út frá þyngd og afli. Eins og kemur fram í fyrstu færslu þráðarins þá eru auðvitað fullt af öðrum þáttum sem skipta máli en þessir tveir eru ansi veigamiklir.

    M





    06.04.2010 at 00:02 #689290
    Profile photo of Agnar Benónýsson
    Agnar Benónýsson
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 3080

    sælir
    þetta eru ágætar og skemmtilega framsettar pælingar hjá þér, man þegar ég var að leita að mínum fyrsta bíl og þá var maður mikið að spá í þessum hlutum eins og þú. Eftir talsverðan tíma og pælingar þá komst ég að því að það var bara þrennt sem sem ég fókusaði á og það var fjöðrun, dekkjastærð vs. þyngd og peningar (sem ég átti ekki mikið af).

    Ég set spurningamerki við sumt í töflunni sem segir manni að maður eigi réttilega aðeins að nota hana sem viðmið en ekki sem endapunkt við drifgetu. Ef ég tala út frá minni reynslu þá er td hægt að komast alveg heilan helling (þó alls ekki allt) á gömlum ólæstum 38" 2.8 lítra Patrol en hann fær 2.1 í stuðul þarna (mat á þyngd eftir breytingar er nokkuð rétt). Á svoleiðis bíl getur þú vel ferðast með 46" Ford/Dodge og hef ég gert það heilmikið en ég set stórt spurningamerki við stuðulinn 1.7 hjá þeim á 44".

    Það er einfaldlega svo margt fleira en þyngd og dekkjstærð sem hefur áhrif á drifgetu, góð fjöðrun skiptir miklu máli, ökumaðurinn sjálfur, færið innan dagsins getur verið breytilegt, sumar dekkjategundir virka betur en önnur í mismunandi færi, stundum virkar ekkert fyrr en í ákkúrat réttum loftþrýsting, stundum er betra að vera á slitnum dekkjum, stundum er betra að vera á grófum osfrv osfrv.

    Þú ert aðeins að ofmeta kraftfaktorinn í drifgetu, vissulega skiptir hann máli í ferðahraða í þokkalegu færi og bröttum brekkum/hengjum en kraftlausir bílar komast vel áfram og enda á sama áfangastað og villidýrin (bara korteri seinna 😉 Þetta doldið meira spurning um funfactorinn og hvað menn vilja fá út úr þessu.

    Læsingar, lolo, aukatankar og leitarljós eru allt aukahlutir og skulu bara teknir sem slíkir, ef þú átt peninga þá er fínt að hafa þetta en hafðu ekki of miklar áhyggjur af því til að byrja með, betra að fá sér solid bíl sem er í lagi, virkar á fjöllum og lágmark 38" …. það er mín skoðun. Eitt af því fyrsta sem ég keypti mér voru góðir kastarar framan á bílinn, mæli með því ef þú ætlar að stunda helgarferðir en ekki bara dagsferðir.

    Prófaðu bara nógu andskoti marga bíla, það er svo misjafnt hvað menn fíla, sumir vilja power og mikinn léttleika, aðrir bara góða ferðabíla sem eru sjö manna en þyngri og kraftminni osfrv osfrv, hugsaðu bara um að finna gott eintak af þeirri tegund sem þú fílar með sem mestum aukahlutum fyrir þann pening sem þú vilt leggja í þetta.

    kv/Agnar





    06.04.2010 at 00:25 #689292
    Profile photo of Kristjón Jónsson
    Kristjón Jónsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 193

    Það er eitt sem vantar í þessa útreikninga, það er fjöðrun og þyngdardreifing, að mínu mati munar meira um það en að hafa einhver brutal hestöfl. Gamli Patrolinn er talandi dæmi um það, góð fjöðunun og afturhásingin er aftarlega en ekki æðislegur kraftur. Að öðrum ólöstuðum er hann með seigari bílum ef við erum að tala bara um 38 tommu bíla





    06.04.2010 at 00:27 #689294
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    ´Svo er þetta líka stór spurning, hvað ætlarðu að gera??

    Ætlarðu að fara á fjöll til að ;

    hafa gaman,, bensín power drifgeta og skemmtilegur bíll Tacoma 😉
    bara ferðast,,, Tacoma ;), hilux, patrol, musso
    eða bæði hafa gaman og ferðast,, Tacoma 😉

    Þarna fellur Tacoma í alla flokkana, bara sem dæmi, en það gerir patrol, musso eða hilux ekki………

    Annars er mikið til í þessu hjá Agnari, ekkert annað en að fara og prófa. Maður sér mjög fljótlega þegar maður er að prófa bíl hvort þetta sé að höfða til manns eða ekki…..

    Að finna bíl með sem mestum aukahlutum og bíl sem er í góðu lagi og eitthvað sem maður er sáttur með skiptir mestu máli held ég. Annars verður grasið alltaf grænna hinum megin og verður maður að prófa það líka

    Kv, Kristján
    Sem bítur ekki gras





    06.04.2010 at 00:40 #689296
    Profile photo of Magnús Steinþór Pálmarsson
    Magnús Steinþór Pálmarsson
    Member
    • Umræður: 9
    • Svör: 58

    Það er nú meira en að segja það að fara og prófa…..eitt að rúlla á malbiki allt annað að komast á snjóinn.

    Mín hugsun í þessu öllu er "skynsemi"..ekki of mikil eldsneytiseyðsla og ekki of mikið afl svo allt snúist í sundur.

    Mér heyrist á flestum að aflið er ekki stóra málið…þyngd og fjöðrun skipta meira máli.

    Ef við ræðum aðeins fjöðrun og hvað virkar best…. erum við að tala um langa mjúka fjöðrun?

    Maxi





    06.04.2010 at 01:04 #689298
    Profile photo of Kristján Logason
    Kristján Logason
    Participant
    • Umræður: 72
    • Svör: 1100

    Það er alveg rétt að það er eitt að rúlla á malbiki og annað að torfærast, en maður finnur engu að síður hvort þetta sé að heilla mann eða sé ómögulegt.

    Maður er ekkert að snúa í sundur þó það sé kraftur í bílnum, þetta er bara gamaldags hugsanaháttur.

    Auðvitað er ekki kraftur allt, það skiptir allt máli i svona dóti. En þeir sem segja að kraftur skipti litlu máli eru þeir sem ekki hafa prófað það eða eiga musso pg patrol og fleirra sambærilegt og eru að réttlæta þetta fyrir sjálfum sér. Drifmikill bíll drífur miklu meira ef það er kraftur í honum.

    Fjöðrun er náttúrulega alveg kapituli útaf fyrir sig. þar kemur af því hvernig bíll þetta er.

    Málið er nefnilega, ég hef rosalega gaman af því að fara á fjöll, en það er ennþá skemmtilegra að fara á fjöll og getað haft gaman. Það verður rosalega fljótt þreytt að vera á hilux eða patrol eða álíka, það er gaman fyrst tala nú ekki um ef maður er að byrja í þessu, en svo verður það þreytt, nema þú sért bara í þessu til að ferðast, þá geturðu alveg verið á túrbólausum hilux og þarft ekkert að spá í þetta meira, léttur, hægt að smíða fínt fjöðrunarsystem undir hann og málið dautt og gott fyrir budduna.

    Kv, Kristján





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 38 total)
1 2 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.