This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Magnús Guðmundsson 12 years, 10 months ago.
-
Topic
-
Í gærkvöldi 09.01. tók ég bensín á bílinn í Öskjuhlíðinni um kl. 10.30 sem ekki er í frásögur færandi, nema vegna þess að það er eitthvað mikið að hjá Skeljungi. Ég vil taka það fram að þetta er í fyrsta sinn sem ég lendi í þessu og því er ég svona pirraður. Núna í dag kíkti ég svo debetkortareikninginn minn og sá ég þá að Skeljungur hafði tekið út 25.000 kr auk bensínúttektarinnar sem nam rúmlega 6.600 kr. samtals 31.600 kr..
Ég hringdi áðan í þjónustuver Skeljungs og þá var mér tjáð að af því að ég hafði valið “ Fylla “ þá gefi kerfið hjá þeim heimild upp á 25.000 kr. sem á náttúrulega að dekka úttektina. Nú svo hélt hún áfram og sagði, að sökum þess hve seint ég hafi tekið bensín tilheyrði þessi færsla deginum í dag og mundi þessi úttektarheimild leiðréttast af sjálfu sér, „svona vinna staðgreiðslukortin og hafa allatíð gert. Ég var náttúrulega ekki sáttur og því spurði ég hvenar það myndi gerast og sagði hún þá að það myndi, “ vegna þess hve langt er liðið á daginn „, leiðréttast í fyrramálið. Þá var mér nú alveg nóg boðið því þeir eru að halda peningum sem þeir hafa ekkert leyfi til að taka. Hún hringdi síðan í þjónustuver bankans og þar sem svona langt er liðið á daginn er ekki hægt að leiðrétta þetta fyrr en í fyrramálið.
Mér finnst þetta nú einum of langt gengið og getur þetta haft óþægilegar afleiðingar fyrir neytendur.Því spyr ég hvort fleiri hafi lent í þessu?
Svo spyr ég stjórn að því hvort samningurinn við Skeljung hafi eitthvað verið uppfærður? , því maður hefur heyrt að hinir og þessir hópar eru að fá betri afslátt heldur við á eldsneytislítranum. Ég veit náttúrulega ekki um aðra fleti í samningnum.
Einn ekki sáttur,
félagskveðja
Magnús Guðmundsson
R-2136
You must be logged in to reply to this topic.