Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hreinsun á netasíju?
This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Hafþór Atli Hallmundsson 19 years, 8 months ago.
-
CreatorTopic
-
22.09.2005 at 19:23 #196295
AnonymousEins og topic segjir, þá hvernig hreinsið þið netasíjunar, er það bara með lofti eða einhverju efni?
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
22.09.2005 at 19:32 #527362
Ertu búinn að taka hana úr?? Endilega láttu heyra hvaða tæki og tól þarf til og hvar hún er nákvæmlega staðsett.
Ég myndi telja að nóg væri að skola úr henni afturábak (frá verki og að lögn) með isopropanoli eða bremsuhreinsi. Skíturinn hlýtur að sitja í netinu og ætti að fara með því að skola hann frá hinni hliðini í gegnum netið. Svo er spurning hvort hægt sé að kaupa nýja síu í umboðinu.
23.09.2005 at 18:28 #527364
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
það er ekki til ný netasía hjá Heklu!
Ég notaði 14 top til að ná boltanum af, en hann er staðsettur á röri sem þú sérð fer fram hjá hráolíusíunni og liggur meðfram blokkinni og fer í sveig til hægri ofan í olíuverkið að framanverðu (efa þú stendur beint fyrir framan bílinn) best að lísa ljósi ofan í og þá áttu að sjá glita í mjög litla síu ofaní efa hún er þá þar, notar vír sem þú getur gert smá krók á, og dregur fyrst gorm sem liggur ofan á henni og svo síuna (bara vera mjúkhentur þar sem hún er alveg með orlítil göt) svo bara passa að hún detti ekki niður í hlífina/jörðina 😉Bíllinn minn er Pajero "98 2.5 Turbo.
Átt auðveldlega að sjá boltan þar sem hann er kopar og 2 koparskinnur undir.Gangi þér vel
Kv. Ottó
23.09.2005 at 19:00 #527366
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Til að bæta við, þá hreinsaði ég síuna með því að plása lofti í hana, semsagt upp. Pabbi var búinn að lána loftpressuna sína, þannig ég stökk bara upp í löður og henti 100 kalli í, bara passa þig að það getur komið smá vatn með í byrjun og það að þér á eftir að verða hrottakalt að halda á henni og blása
24.09.2005 at 11:22 #527368Leysti þetta vandamálið með ganginn og kraftinn?
24.09.2005 at 21:44 #527370
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Þetta gaf honum meiri kraft og hann hefur ekki mist kraft neitt síðan ég hreinsaði hana
Þegar ég fór í húddið á honum þá sá ég að það var dísill yfir hluta af vélinni, sá svo að það var sprunga á yfirfallsrörinu, en ég tók ekki eftir að það væri samt einhvað að koma úr því þegar ég hafði hann í lausagangi, skipti engu að síður um það. Er einhvað farinn að ýminda mér að hann sé farinn að eyða minna, en ég er ekki búinn að klára tankinn svo ég geti séð það almennilega
24.09.2005 at 22:17 #527372Þarftu að klára tankinn til að geta reyknað út eyðsuna, ég er bara vanur að núlla mælinn í hvert sinn sem ég tanka og skrifa svo það sem fer á hann. Það er ekki sérlega hollt að láta díselbíla standa lengi með ófyllta tanka, þeir sagga að innan.
En annað mál sem mér langar til að spyrja útí: Var að torfærast í hliðarhalla og fór of nálægt tré þannig að lútvarpsoftnetið brotnaði af. Er einfalt mál að skifta um það eða þarf að taka brettið af og skifta líka um mótorinn? Þetta er Pajero árg1999 með rafmagns-loftneti.
24.09.2005 at 22:33 #527374Þú þarft ekki að skipta um mótorinn. þó það þyrfti væri nóg að taka bara plasthlífina innan úr brettinu þá kemstu að loftnetinu. en í þessu tilfelli er hægt að kaupa nýtt loftnet
td múlaradio hafa átt þetta. og geta örugglega skipt fyrir þig á 5 mín ef þú gerir það ekki sjálfur.kv
Pæjulaus
24.09.2005 at 22:48 #527376
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ef ég á að segja þér dagsatt, þá hef ég ekki einu sinni hugsað út í það að gera þetta svona, núlla hann fylli hann og sé eyðsluna eftir nærrum fullan tank hehehe, svona er maður einfaldur.
24.09.2005 at 23:10 #527378ég fór út og skoðaði þetta, ertu að meina að taka plastið innan úr brettinu undir hanskahólfinu? (þá án þess að taka blessað brettið af)
25.09.2005 at 11:43 #527380Þú tekur plasthlífina úr innrabrettinu og kemst þar á milli brettis og hjólskálar þar sem mótorinn og allt gromsið er. Kemur hanskahólfinu ekkert við.
25.09.2005 at 13:55 #527382Það eina sem ég sá innra brettinu (við vélina) var smá gúmmílok sem vírar f. útvarp og fleyra voru í gegn. Eina plastið sem ég sá var UNDIR hanskahólfinu innaní bíllnum, framan við farþegasætið.
25.09.2005 at 14:14 #527384
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Held að hann sé að tala um plast brettið sem er beint fyrir ofan dekkið, þú sérð plast skrúfur sem spenna út einhverjar klemmur í gegnum boddíið ef þú horfir ofan í húddið, allavegana ætti að vera mjög auðvelt að ná því af.
25.09.2005 at 14:55 #527386Ef þú lokar húddinu og hanskahólfinu og ferð útfyrir bílinn og stingur hausnum inní hjólskálina þá sérðu plast sem nær frá framstuðara eftir öllu innrabrettinu að ofanverðu og niður að síls. Þetta plast er fest með skrúfum sem geta verið soldið fastar en þú ættir ekki að þurfa að losa nema 4-5 til að komast að loftnetsmótornum.
P.s
Það getur verið þægilegra að beygja bílnum alveg til hægri þegar þú ferð í þetta.
Ef þú vilt sjá hvað þú ert að fara útí þá vantar þetta plast í bílinn minn og allt sést. Hann stendur í Grænukinn í Hafnarfirði í dag.
25.09.2005 at 15:27 #527388Ef þú vilt sjá hvernig þetta er í mínum þá er hann fyrir norðan þar sem allur snjórinn er, gaman gaman. Ég held að þetta sé mismundandi á milli kynslóða þessara bíla. Þinn er 96árg. en minn er 99árg. Einnig er lítið um skrúfur en slatti af hnoðum sem halda plastinu og svo eru á bílnum 35" brettakantar og ég vill ekki fara að toga í þetta og eiga í hættu á að rífa þá af, er kannski engin hætta á því að það gerist?
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.