FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hofsjökull

by

Forsíða › Forums › Spjallið › Ferðir › Hofsjökull

This topic contains 93 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Jón Ebbi Halldórsson Jón Ebbi Halldórsson 20 years, 3 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 07.01.2005 at 00:09 #195180
    Profile photo of
    Anonymous

    Nú er lag að fara að kynda undir Hofsjökuls ferðina sem á að fara í byrjum mars. En skipaður hefur verið fararstjóri Elín ( Ella ) þeir sem vita ekki deili á henni hafa sennilega lítið fylgst með jeppamálum síðastliðna öld. En hún er Valkyrja sem ræður léttilega við hóp 100-200 klakabrynjaðra óðra jeppamanna, og fór hún t.d létt með það að hafa hemil á mörg hundruð manns á Árshátíðinni. En henni er kannski ekki algjörlega treystandi einsog glöggir menn ættu að vita, þegar hún reyndi að koma sér upp ólöglegum leðurklæddan skála á Vatnajökli fyrir örfáum dögum síðan. Og varð að senda formann fasteignafélagsins og lögfræðing til þess að tala hana á það að koma skálanum aftur til byggða.
    En þetta er semsagt klappað og klárt Ella ræður.

    Ferðafyrirkomulagið verður einhvernvegin á þá leið.
    100 bíla áhafnir geta tekið þátt í ferðinni og er það gistirými sem ákvarðar þann fjölda
    En ætlunin er að gista í skálum undir Hofsjökli aðfaranótt laugardags og koma þá til greina Setrið, Kerlingafjöll, Páfagarður, Svartárbotnar, Klakksskáli en þessir skálar eru hvað næstir uppgöngu á jökulinn.
    Ekið verður yfir Hofsjökul á laugardeginum og munu Skagfirðingar taka á móti okkur á leiðinni. Síðan verður skrall og gisting fyrir norðan og þá líklega Steinstaðarskóli.

    Ætlunin er að skipta mönnum upp í hópa og verða menn að skrá sig í hópum, minnst 4 saman.
    Skráning í ferðina verður auglýst síðar
    Framvinda þessara mála verður birt í þessum þræði eftir sem þurfa þykir.
    Svo er bara að tjá sig og spyrja um hvaðeina sem mönnum flýgur í hug. Og koma með ábendingar.

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 41 through 60 (of 93 total)
← 1 2 3 4 5 →
  • Author
    Replies
  • 24.01.2005 at 14:43 #512724
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Hvernig er það eru menn farnir að hópa sig saman! Undirbúningsnefnd hefur lagt dæmið þannig upp að menn verða að skrá sig í hópum (að ég held 4-8 saman eða þar um bil). Þetta er vegna þess að í svona fjölmennri ferð verður að skipta niður í litla hópa sem hver um sig ber ábyrgð á sjálfum sér og reynslan sýnt að ekki er sniðugt að svona hópskipting sé með einhverri reglustikuaðferð af hálfu undirbúningsnefndar. Þannig að það er um að gera að fara að finna sér ferðafélaga og vera með hópinn tilbúinn þegar skráning hefst.
    Áfram Hofsjökull ’05
    Kv – Skúli





    24.01.2005 at 15:16 #512726
    Profile photo of Birkir Jónsson
    Birkir Jónsson
    Participant
    • Umræður: 88
    • Svör: 1596

    Hey er þetta helgina sem 4-ferða helgin á að vera eða er önnur dagsetning fyrir rallið?

    Kveðja Fastur





    24.01.2005 at 15:56 #512728
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þetta er 4ra ferða helgin, í staðin fyrir fjórar ferðir kemur ein stór, margt smátt gerir eitt stórt.

    Kv – Skúli





    24.01.2005 at 21:53 #512730
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Hofsjökulsferð

    Farin verður stórferð yfir Hofsjökul helgina 4-6 mars næstkomandi. Skráning í ferðina verður einungis tekið við í hópum, hóparnir þurfa að samanstanda af 4-8 jeppum. Fjöldi jeppa í ferðina er takmarkaður við 100 jeppa og er þar gistirýmið sem ákvarðar fjöldann. Lagt verður af stað frá Select á Vesturlandsvegi föstudaginn 4 mars. Og gist aðfaranótt laugardags í skálunum í kringum Hofsjökul og eru það meðal annars Kerlingafjöll-Setrið-Þúfuvatnsskáli og Svartárbotnar sem koma til greina.
    Fararstjórn annast pöntun á gistirýmum. Á laugardagsmorgun verður lagt af stað yfir Hofsjökul yfir að Ingólfsskála og mun Skagafjarðardeild 4×4 mæta ferðalöngum á leiðinni og leiða hópinn norður að Skiptabakkaskála og síðan í Steinstaðarskóla þar sem eru ferðarlok. Ferðalangar munu síðan aka til baka leiðir að eigin vali.
    Skráning í ferðina hefst á mánudagsfundinum 7 febrúar kl 21.00 í síma 6997477 eða 898 7080 eða hjá Elínu Björg Ragnarsdóttur Fararstjóra á fundinum og einnig á netfanginu stjorn@f4x4.is. Ekki verður tekið við skráningum fyrir þennan tíma.

    Fararstjórn.





    24.01.2005 at 22:10 #512732
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Það tók 4 mínútur fyrir þennan pistil að detta úr 1 sæti í það 4 svo ég verð að endurvekja hann, hefði kannski átt að setja þetta inn sem tilkynning frá fararstjórn. en þessi auglýsing kemur einnig í svo kölluðu Súper-Setri sem verið er að leggja síðustu hönd á og á víst að koma út í 90.000 eintökum og dreifast með fréttablaðinu, hún er orðin stórhuga þessi ritnefnd.
    jón Snæland





    24.01.2005 at 23:01 #512734
    Profile photo of Heiðar Steinn Broddason
    Heiðar Steinn Broddason
    Participant
    • Umræður: 113
    • Svör: 839

    það verður gaman að skoða super setur :):)

    kv HSB





    25.01.2005 at 17:23 #512736
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Bara svona að hysja þetta upp svo fleiri sjái auglýsinguna um skráninguna hérna að ofan
    Jón Snæland





    25.01.2005 at 18:05 #512738
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Hvað eru margir hópar sem hafa hugsað sér að mæta ??? Bara fá smá hugmynd um hvort þessir 100 jeppar komi ekki strax.

    P&P kveðja





    25.01.2005 at 21:25 #512740
    Profile photo of Ásgeir Halldórsson
    Ásgeir Halldórsson
    Participant
    • Umræður: 36
    • Svör: 848

    Sælir,

    Ég talaði við spámann áðan sem heitir Línus Gauti, hann sá fyrir sér mikinn krapa og álíka vitleysu. Erum við sem sagt að sjá fram á Krapa 2004?

    En ég ætla að mæta því ég veit hversu mikið fjör þetta á eftir að vera. Ég er allavega búinn fá frí í heila viku eftir þessa helgi því ég býst nú ekki við að ferðinni ljúki fyrr en viku eftir áætlaðan komutíma 😉

    Bensínkveðja, Ásgeir

    ps. Það verður minni hávaði í mér en hefur verið undanfarið(gera við pústið kannski????)





    25.01.2005 at 22:12 #512742
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Það er nú varla að maður þurfi að óttast krapa þótt það rigni á lálendi. Þessi spámaður veit greinilega ekki neitt í sinn haus, enda er árið 2005 núna en ekki 2004. Með hverjum ertu í hóp ???





    25.01.2005 at 22:32 #512744
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Það hafa 7 káraguttar lýst áhuga á ferðinni.
    Hvaða reglur verða settar um fjarskipti innan hópa. Verður rásum úthlutað til hópa? Verður leyft að nota VHF innan hópa, ef svo þá hvaða rásir?

    -Einar





    25.01.2005 at 22:51 #512746
    Profile photo of Björn Þorri Viktorsson
    Björn Þorri Viktorsson
    Participant
    • Umræður: 27
    • Svör: 1380

    til að búa til för eins og í Krapa 2000…

    Ekki veitir af, það verða víst líka Patrolar í túrnum…

    Þá vorum við á 7 bílum (með Patrolum). Endanleg tala liggur ekki fyrir, en ég vona að það verði ca. 6-10 bílar.

    Ella, ég mæti á þorrablótið í Setrinu!

    Ferðakveðja,

    BÞV





    25.01.2005 at 22:58 #512748
    Profile photo of Elín Björg Ragnarsdóttir
    Elín Björg Ragnarsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 378

    Flott BÞV ég tek þá spottann með á þorrablótið…
    kv.
    Ella





    25.01.2005 at 22:59 #512750
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Þar sem jepparnir eru 100 og hóparnir 10-20 ?, þá er ljóst að fjöldi rása dugir ekki þar sem þær eru einungis 10 en eitthvað af hópunum er þó með einkarásir sem gætu nýst. Einnig væri kannski hægt að láta fleiri en einn hóp hafa sömu rás. það ætti ekki að koma að sök að ég tel.
    Að notast við CB gæti verið vandamál því svo margir hafa hent því út. Hvað segir Ella " hvað með gjallarhorn " Ella.





    25.01.2005 at 23:06 #512752
    Profile photo of Elín Björg Ragnarsdóttir
    Elín Björg Ragnarsdóttir
    Participant
    • Umræður: 38
    • Svör: 378

    Gjallarhorn og þokulúðrar eru málið. Annars hélt ég að menn ættu að keyra en ekki vera blaðra hver við annann. Þó er vissara að Pajeromenn hafi sér neyðarrás til að þeir geti kallað eftir aðstoð, við hin þurfum bara að hlusta og vera klár með spottann.





    25.01.2005 at 23:07 #512754
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Þeir segja jam, tja, hummm já er ferð á Hofsjökul ? hvenær verður það. Það gæti verið gaman að fara en en en og allir bíða eftir því hvað ÆÐSTI klerkurinn segir og beðið er eftir fagnaðarerindi Mulhans og blessunar. En ef að líkum lætur þá ætlar enginn að mæta en þó má reikan með að við verðum að vera í tveim hópum ef við tökum hefðbundin fósturbörn. T.d Jóa Jeppalausa sem að vísu eignaðist jeppa þann 31 des og vann Whiskey flösku. en sagan segir að flaska hafi verið lögð undir um það hvort hann keypti jeppa fyrir áramót. ég hald að það hafi verið Kalli sem tapaði veðmálinu.





    25.01.2005 at 23:13 #512756
    Profile photo of Vilhjálmur Rist
    Vilhjálmur Rist
    Participant
    • Umræður: 2
    • Svör: 32

    Við erum hérna nokkrir norðanmenn sem vilja aldrei sleppa góðu veseni, sérstaklega ef það er vel skipulagt.
    þá erum við að hugsa um að gista norðan jökuls og slást svo í hópinn á laugardeginum og renna með ykkur í grillið undir bláhimni.
    kv





    26.01.2005 at 09:04 #512758
    Profile photo of Ólafur A. Hallgrímsson
    Ólafur A. Hallgrímsson
    Participant
    • Umræður: 24
    • Svör: 385

    austan ( Austurlandsdeild ) er áhugi á að verða með a.mk. einn hóp. Kemst því miður ekki með sjálfur, verð í ferð á öðrum jökli á sama tíma.

    En Þórir Gíslason ?Hrollur? GSM 894-2026 er tengiliður deildarinnar við ferðina þannig að skráið ykkur sem fyrst hjá Þóri, það veitir ekki af tímanum til skrafs og ráðagerða.

    Óli Hall





    27.01.2005 at 17:32 #512760
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Það eru góðar fréttir að Hrollurinn komi að norðan, enda ókrýnt flaggskip klúbbsins og ótvíræður vitnisburður um að íslenskt hugvit er laaaangt framar vitsmunum asískra tæknifræðinga í bílaverksmiðjunum sem ganga út frá því að malbik og hraðbrautir liggi á alla staði sem vert er að fara á.

    (auk þess vildi ég halda þessum þræði á lofti!!!)

    Kv – Skúli





    28.01.2005 at 10:41 #512762
    Profile photo of Einar Kjartansson
    Einar Kjartansson
    Participant
    • Umræður: 44
    • Svör: 4166

    Er ætlast til þess að hópar skrái sig saman, eða skrá menn sig hver fyrir sig? Ef skráning verður í hópum, hvaða upplýsingar þarf þá að hafa fyrir hvern þáttakanda?

    -Einar





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 41 through 60 (of 93 total)
← 1 2 3 4 5 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.