FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hneyksli

by Haukur Þór Smárason

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hneyksli

This topic contains 66 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of  Anonymous 21 years, 7 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 14.11.2003 at 10:27 #193178
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant

    Ég sá um daginn auglýsingu fyrir BMW „jeppa“. Ég varð svo pirraður yfir þessari auglýsingu að mig langaði helst að fara niður í BMW umboðið og kvarta. Ég ætla bara að deila þessu með ykkur og heyra hvað ykkur finnst.

    „BMW X5 er fjórhjóladrifið orkuver sem nýtur sín hvergi betur en á verstu vegleysum. Háþróaður búnaður lagar aksturslag þessa glæsilega úrvalsjeppa að erfiðum aðstæðum á örfáum sekúndubrotum. Og krafturinn er meira en orðin tóm. Þar með er þó ekki nema hálf sagan sögð.
    X5 úrvalslínan frá BMW snýst um annað og meira en hraðskreiða lúxusjeppa, því til hvers að eiga frábæran jeppa ef aksturseiginleikarnir eru ekki einnig fyrsta flokks? Framúrskarandi aksturseiginleikar, fáguð hönnun, sérhannað sportfjöðrunarkerfi, ABD-X, ABS, CBC, DBC og DSC- allur þessi búnaður og meiri til er sérhannaður til þess að þú upplifir þau ánægjulegu hughrif sem eignuð eru sannkölluðum úrvalsjeppa.“

    Mér finnst nú ekkert jeppalegt við þennan bíl, hann er örugglega ekki með millikassa, og rangt gíraður. Það fer enginn alvöru jeppi yfir 200km hraða nema hann sé að detta ofan af fjalli. Og sportfjöðrunarbúnaður, hefur einhver séð jeppa sem fjaðrar eins og sportbíll? Mér þætti gaman að bera saman Nissan Skyline og Patrol í krappri beygju á 120km hraða! Kjaftæði, mig langar helst til þess að neyða þá sem hönnuðu þennan bíl til þess að aka yfir hálendið. ANDSKOTANS DRASL!!!

    Haukur

  • Creator
    Topic
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 66 total)
1 2 … 4 →
  • Author
    Replies
  • 14.11.2003 at 10:34 #480602
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Á þetta ekki að fara á aðalsíðuna?

    Haukur





    14.11.2003 at 11:12 #480604
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Hefur enginn neina skoðun á þessu?

    Haukur





    14.11.2003 at 12:07 #480606
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Mér finnst þetta vera hreint djók, bíllinn sem er verið að auglýsa er ekki annað en upphækkaður lúxusfólksbíll sem mætti kannski flokka sem úrvals "slyddujeppa" en að þetta verði fjallbíll (án breytinga) er bara grín.

    kv.
    Bergþór





    14.11.2003 at 12:18 #480608
    Profile photo of Eiður Ragnarsson
    Eiður Ragnarsson
    Participant
    • Umræður: 31
    • Svör: 315

    Hvernig er jeppi skilgreindur í íslenkri tungu? Fer þetta ekki að verða spurning um að bæti við nýju orði eins og td. Súper-jeppi eða Snjó-jeppi, yfir þá bíla sem við erum búnir að breyta og bæta þannig að okkur líki?

    Óbreyttur HiLux eða Troper eða Patrol, svo einhverjir séu nefndir, eru nú ekki til neinna gifurlegra stórræða í utanvegaakstri eða hvað?

    Jeppi er einfaldlega ekki það sama og JEPPI, en það er voðalega erfittáð sjá munin bara á prenti.

    kv
    Austmann





    14.11.2003 at 12:20 #480610
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Sonasona, Jeppi er ekki lögverndað atvinnuheiti, og síðast þegar ég vissi var fólk að kalla yfirbyggðar hjólbörur eins og Suzuki Jimny jeppa. Mér finns ólíklegt að fólk kaupi sér svona bíl fyrir mistök út af því að það stóð í textanum að þetta væri jeppi….





    14.11.2003 at 12:20 #480612
    Profile photo of Gísli Sverrisson
    Gísli Sverrisson
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 332

    Ég gæti ekki verið meira sammála þér, en það er alveg óþarfi að vera reiður.
    Ekki láta gráðuga aurapúka í B&L eyðileggja fyrir þér daginn :)





    14.11.2003 at 12:22 #480614
    Profile photo of Gísli Sverrisson
    Gísli Sverrisson
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 332

    Ekki gera lítið úr Jimny.
    Hann er þó á grind og með millikassa og hásingar.
    Það er nú meira en margir "jeppar".

    Engu minni jeppi en gamli foxinn, bara kominn með fleiri ventla í rokkinn og gorma á rörin.





    14.11.2003 at 13:13 #480616
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Það var nú einhver einhvern tíma að tala um það að hann hefði lesið í einhverri bók að jeppi væri ökutæki byggt á grind, með millikassa, hátt og lágt drif auk dekkja sem bera hann yfir torfærur.

    Ég verð nú bara að segja að ef BMW X5 er jeppi þá eru Patrol, 4Runner, Hilux og einhverjir Amerískir jeep líka sportbílar. Sjáið til dæmis Pajero, er hann ekki á sportfjöðrun? Eru ekki klafar undir honum eins og er undir öllum bestu sportbílunum. Ekki eru F1 bílar á hásingum og fjöðrum, loftpúðum, eða mjúkum gormum. En hvað ef FIA ákveður að allir F1 bílar skuli vera með 30 cm undir lægsta punkt, eru þeir þá ekki jeppar? Mér finnst bara að BMW, Lexus og Porche ættu að halda sig við lága sport- og lúxusbíla og láta jeppa í friði nema þeir leggi sig virkilega fram og koma með eitthvað sem kannski mætti brúka.

    Með pirraðri kveðju
    Haukur





    14.11.2003 at 13:59 #480618
    Profile photo of Hlynur Snæland Lárusson
    Hlynur Snæland Lárusson
    Participant
    • Umræður: 96
    • Svör: 3059

    Ekki spurning að hringja í þá og lesa þeim pistilinn og nota kröftug örð. Það er skylda okkar jeppamanna að hrauna strax yfir svona kalla og hafa þá að háð og spotti hvar sem í þá næst. Ég er svo hneykslaður að ég get ekki borað í nefið á mér.

    Hlynur





    14.11.2003 at 14:05 #480620
    Profile photo of Einar Elí Magnússon
    Einar Elí Magnússon
    Participant
    • Umræður: 75
    • Svör: 942

    Var ekki einhver Volvo station á 14 eða 15" dekkjum auglýstur fyrir 2 eða 3 árum sem "jeppi fyrir fólk sem vill ekki eiga jeppa"?

    Skítt með það. Fólk má kalla bílana sína það sem það vill.

    kv.
    Einar





    14.11.2003 at 14:28 #480622
    Profile photo of Jóhannes þ Jóhannesson
    Jóhannes þ Jóhannesson
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 2995

    Hvað á þá að kalla fólksbíla með sídrifi?blikk með mikilsmennsku brjálæði.Ég er heilshugar sammála HÞS.
    kveðja.JÞJ





    14.11.2003 at 14:45 #480624
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Ef ekki er hægt að kalla X5 bílinn jeppa þá held að eigendur flestra jeppabifreiða á Íslandi geti bara lagt druslunnu og hætt að jeppast. Þessi grein einkennist af öfund og ég er alveg sannfærður um það að ef einhver hefur fjármagn til að henda aðeins stærri hjólum undir svona bíl að þá væru 50% jeppalúða komnir í ævilanga fílu.
    Ég minni á að 99% jeppalúða nota bílana sína nánast 95% á malbikinu.





    14.11.2003 at 14:49 #480626
    Profile photo of Lárus Elíasson
    Lárus Elíasson
    Participant
    • Umræður: 30
    • Svör: 408

    Jeppi er íslenskun á orðinu Jeep sem varð til þegar menn kváðu að skammstöfuninni JP (hvern anskotan sem það stóð fyrir hjá ameríska hernum). Færðist síðan yfir á léttari fjórhjóladrifs farartæki framleidda af örðum en Ford og Willys. Hefur í raun eingöngu þá merkingu sem menn leggja í það á hverjum tíma. Þannig að þótt mönnunm sárni notkun í auglýsingum, þá er ekki til nein afgerandi skilgreining á orðinu. :)





    14.11.2003 at 15:03 #480628
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Skemmtileg umræða. Hinsvegar er "Jeep" lögverndað vörumerki og menn mega vara sig á að nota það mjög mikið fyrir útlendinga þar sem það á ekkki við. Þeir hjá Daimler-Chrysler gætu átt það til að hitta mann í réttarsalnum út af því.
    Menn greinir á hvernig orðið "Jeep" kom til. Hef lesið lærðar greinar um það. Hinsvegar er algengasta skýringin að þegar smíðin var á sínum tíma boðin út skv. fyrirmyndinni, sem var bifreið að nafni Bantam að mig minni, kölluðu verkfræðingar bandaríska hersins þetta General Purpose Vehicle, skammstafað GPV eða bara GP. Ef við berum þessa skammstöfun fram á ensku, þá kemur e.t.v. skýringin á nafninu. Þetta er nú svipað og með annað hernaðartæki, HMMWV, sem hermenn kölluðu bara "Humvee" og civilian útgáfan síðan Hummer, ef einhver er búinn að gleyma því. Fyrirrennari þessa ökutækis, sem þeir kölluðu Weapons Carrier, eða bara WC hjá óbreyttum soldiers, kölluðum við íslendingar svo "vípon". Sá bíll var reyndar bara með einfaldan millikassa. Tveggja hraða millikassi kom ekki fyrr en 1952 með M 137, eins og sú útgáfa var kölluð þá. Annars er nú þessi herbílafræði ansi skemmtileg ef maður leggst í þau.
    En aftur að fjórhjóladrifna Bimmanum X5, Porsche Cayenne, Volkswagen Touareg og fleiri slíkum. Þeir flokkast í USA a.m.k. undir SUV, en það er nú svo rosalega "opinn flokkur", að þar lenda bæði Suzuki Vitara og GM Suburban, Jimny og Hummer, Tahoe og Guð má vita hvað fleira. Þarna má finna velflesta ef ekki alla þá bíla, sem við köllum jeppa. Reyndar erum við svo flottir á því að kalla líka fjórhjóladrifna Pick-up trucks líka jeppa!
    kv.





    14.11.2003 at 15:17 #480630
    Profile photo of Jón G Snæland
    Jón G Snæland
    Participant
    • Umræður: 58
    • Svör: 4513

    Eigum við ekki að hringja og fá að vita hvað breytingar pakkinn á 38" kosti í BMWinn.





    14.11.2003 at 15:19 #480632
    Profile photo of
    Anonymous
    • Umræður: 0
    • Svör: 16404

    Þetta er auðvitað alveg rétt og orðið (nafnið) Jeep og orðið jeppi er sitt hvor hluturinn, þó það síðara sé dregið af hinu fyrra. Þess vegna er svolítið misráðið þegar við þýðum jeppi sem jeep, t.d. þegar Superjeep er notað yfir Patrol á stórum hjólum.

    En svo má deila um það hvað fær þann heiður að vera jeppi og hvað ekki. Er ekki a.m.k. millikassi skilyrði? Þetta minnir á það þegar asninn hitti Pajeroinn. Góðan daginn jeppi! sagði asninn. Góðan daginn asni sagði Pajeroinn. Þá brást asninn hinn versti við og sagði með grátstafina í kverkunum: Þetta er ósanngjarnt, ég kalla þig jeppa og þá er það minnsta sem þú getur gert er að kalla mig hest!

    Kv – Skúli





    14.11.2003 at 15:43 #480634
    Profile photo of Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Guðbrandur Þorkell Guðbra
    Member
    • Umræður: 78
    • Svör: 2584

    Er ekki rétt að senda þeim í Heklu þennan? eða eigum við að biðja BÞV að sjá um þá hlið mála?





    14.11.2003 at 17:11 #480636
    Profile photo of Baldur Gunnarsson
    Baldur Gunnarsson
    Participant
    • Umræður: 43
    • Svör: 821

    Mér hefur alltaf þótt þetta skemmtileg þýðing hjá þeim mönnum sem hafa atvinnu af því að keyra túrhestum að Gullfossi og Geysi á stórum Datsúnum… Superjeep… Ég kannast nokkuð vel við góðan slatta af fólki þarna útí Kanistan, og þann kom jú þetta orð jeep sem menn breyttu svo í jeppi. En svo skemmtilega vill til að þetta fólk sem ég þekki þarna úti þekkir jeep bara sem vörumerkið Jeep. Veit reyndar ekki hvering þetta er annars staðar í Kanistan, en á þessu svæði eru það sem við köllum jeppa annað hvort ‘SUV’ (Sport Utility Vehicles) eða þá ‘Trucks’. Skiptingin þarna á milli er svo ekki alveg ljós.
    En það sem ég á við að frá mínum bæjardyrum séð er supertrucks miklu betri þýðing en superjeep :)

    En þessi BMW átóban kerra… ég veit ekki hvað á að kalla hana, ég er farinn að kunna ágætlega við þetta jepplings orð sem einhver bjó til. Lúxus jepplingur?
    Ég veit ekki með ykkur, en ég væri alveg til í að eiga svona bíl í snattið :)

    bg





    14.11.2003 at 22:01 #480638
    Profile photo of Haukur Þór Smárason
    Haukur Þór Smárason
    Participant
    • Umræður: 52
    • Svör: 664

    Þessi X5 er kannski ágætis snattari en aldrei þó að ég ætti nóg af peningum myndi ég fara á þessu á fjöll.

    Haukur





    14.11.2003 at 22:01 #480640
    Profile photo of Dagbjartur L Herbertsson
    Dagbjartur L Herbertsson
    Participant
    • Umræður: 118
    • Svör: 547

    Einhverstaðar var ritað að ekki væri jeppi jeppi nema á honum staði JEEP Víbon heitir M37 réttu nafni





  • Author
    Replies
Viewing 20 replies - 1 through 20 (of 66 total)
1 2 … 4 →

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.