This topic contains 0 replies, has 1 voice, and was last updated by Jón Hörður Guðjónsson 15 years, 11 months ago.
-
Topic
-
Ég er að fara að breyta mínum Blazer K5 og er aðeins að pæla. Bíllinn er eins og er með Dana 44/12 bolta með 4.88 hlutföllum og læsingum. Ég á Dana 60 og 14 bolta fljótandi sem eiga að fara undir hann. Þær hásingar eru báðar með 4.10 hlutfalli (ólæstar eins og er).
.
Vél 6.2 dísel
Skipting TH400
Millikassi NP241
.
Upphaflega planið var að setja 4.88 hlutföll í nýju hásingarnar (ásamt læsingum) og láta lága drifið duga þegar maður þyrfti á að halda. Nú get ég fengið í hann skriðgír (2:1) fyrir vinnuskipti sem er mjög freistandi.
.
Þá fór ég að pæla hvort það væri kannski skinsamlegt að halda 4.10 hlutföllunum eða hvort ég ætti að halda mig við planið og fá mér 4.88 hlutföll (á þau reyndar til í 14 boltann).
.
Verkið er enn á skipulagsstiginu svo það væri gott að fá ábendingar og tillögur
You must be logged in to reply to this topic.