Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hlutföll í Patrol?
This topic contains 14 replies, has 1 voice, and was last updated by Júníus Guðjónsson 19 years, 4 months ago.
-
CreatorTopic
-
10.07.2005 at 11:01 #196086
Hvar er hægt að fá hlutföll í þessa bíla?
Þrándur
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
10.07.2005 at 12:52 #524812
sælir
Bílabúð Benna var með 1:5.42 en ég heyrði að framleiðslu á þeim væri hætt (sel það ekki dýrara en ég keypti það -> hvað menn nota þá í 44" Patta veit ég ekki??) en ég veit ekki hvar 1:5.13 voru/eru seld en ég stend nú í þeirri meiningu að fáir séu að nota þau í dag.
Ég hef ekki heyrt um önnur hlutföll í Patrol.
kveðja
Agnar
10.07.2005 at 17:16 #5248145:42 eru menn að nota 38-44" 5:13 eru ekki þess virði að eyða pening í, ekki svo mikill munur á orginal.
10.07.2005 at 20:30 #524816Ætli Benni sé þá að flytja þessi hlutföll inn frá USA eða er þetta nokkuð innlend framleiðsla?
10.07.2005 at 20:57 #524818Held að Benni sé að hætta að flytja þetta inn, vesen með framleiðanda held ég(var að athuga það í feb.) Prófaðu að tala við Arctic trucks.
Hef ekki vitað af innlendri framleiðslu.
11.07.2005 at 09:55 #524820Var að láta framleiða þessi hlutföll síðast þegar ég vissi (fyrir ca 5 árum síðan).
kv
Rúnar.
11.07.2005 at 10:15 #524822Var að skipta um hásingar hjá mér og hef því til sölu Patrol hásingar undan 44" breyttum Patrol. Í þeim eru hlutföll sem passa fyrir 44". Ég er ekki alveg klár á því hvað þau eru, en mér finnst líklegt að þetta séu ca 5:42
11.07.2005 at 12:35 #524824Þrándur ég á 5.42 hlutföll handa þér.
Hringdu í síma 6969541
Kv Júnni
11.07.2005 at 20:16 #524826BB lét framleiða þetta fyrir sig á Spáni held ég. Vissi ekki að IH væri að láta framleiða 1:5.42 fyrir sig. Er það rétt ? Eru það ekki bara hlutföll frá sama framleiðanda og BB notar ?
kv
AB
11.07.2005 at 22:08 #524828Þegar ég var að láta breyta Patta fyrir 5-6 árum síðan, þurftum við að bíða í hátt í eitt ár eftir hlutföllum í stóru afturhásinguna. Þá var Ingvar Helgason að láta einhverja spánverja smíða þetta fyrir sig og gekk það skratti brösulega (spánverjarnir lofuðu og lofuðu og sviku og sviku).
Einhverntímann heyrði ég að Benni hefði verið með í þessu upphaflega. Skiptir svo sem littlu hver og hvar þetta er framleitt. Þessi 5.41:1 hlutföll hafa hinsvegar hvergi verið fáanleg nema hérna á frónni.Artictrucks hafa einnig verið að láta Ítali framleiða fyrir sig hlutföll í Togogítur.
Fyrstu "ástralíu" hlutföllin sem komu í pattana voru í reynd framleidd í japan, og það af sama aðila og framleiðir orginal hlutföllin í millikassana fyrir Nissan (held örugglega að ég sé ekki að ljúga neitt voða mikið hérna…!)
kv
Rúnar.
11.07.2005 at 23:18 #524830Takk fyrir innleggið Rúnar. Bara svo ég hafi þetta á hreinu, þegar þú segir "ástralíu hlutföll", meinar þú þá 5:13 ?
kv
AB
12.07.2005 at 09:32 #524832Með Ástralíu hlutföllum meinti ég víst millikassahlutföllin sem menn hafa verið að setja í Pattana. Hlutföllin sem gera ljónstaða-milligírinn að alvöru milligír.
kv
Rúnar.
12.07.2005 at 11:46 #524834Sælir
Ég veit að Aron og Biggi í Jeppaþjónustunni Breyti fluttu inn eitthvað af þessum hlutföllum – þ.e. 5.42.
Ég myndi allavega hafa samband við þá og tékka á hvort þeir eiga ekki eitthvað til af þessu – þeir eru að keyra út 4 stk af 44" pöttum núna og það kæmi mér ekki á óvart ef þeir hefðu pantað eitthvað aukalega af þessum hlutföllum.
Kveðja
Benni
25.07.2005 at 17:31 #524836Hvernig er það, eru fram og afturhlutfallið alveg eins þar sem framdrifið er "reverse" drif eða high pinion?
-haffi
25.07.2005 at 20:16 #524838Nei þau eru ekki eins. Annar kampurinn er þrengri.
Það sest á því að á innaveru er tekinn flági í kampinn þar sem hann rennur upp á caesinguna.
Man ekki hvor er hvað.Er ekki klár hvort pinoninn sé sá sami.
Kv. Júnni
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.