FERÐAKLÚBBURINN 4X4

Menu
  • Ganga í Klúbbinn
  • Innskráning
Ferðaklúbburinn 4x4 Valmynd   ≡ ╳
  • Forsíða
  • Um F4X4
    • Greiða félagsgjald
    • Ferðaklúbburinn
      • Skilmálar vefs Ferðaklúbbsins 4×4
      • Lög Ferðaklúbbsins 4×4
      • Markmið Ferðaklúbbsins 4×4
    • Bókasafnið
    • Vefsíðan
    • Hagsmunamál
      • Öryggismál í ferðamennsku
      • Ferðafrelsi
      • Samstarf við hagsmunaaðila
      • Upplýsingar til ferðafólks
      • Verðlag á búnaði til jeppaferða
    • Umgengni
    • GPS grunnur
      • Sprungukort af jöklum
    • Jöklakort
    • Ferðast á fjöllum
      • Gátlistar
      • Öryggismál í ferðamennsku
    • Afslættir
    • Ganga í Ferðaklúbbinn 4×4
  • Viðburðir
  • Deildir
    • Austurlandsdeild
    • Eyjafjarðadeild
    • Hornafjarðardeild
    • Húnvetningadeild
    • Húsavíkurdeild
    • Skagafjarðardeild
    • Suðurlandsdeild
    • Suðurnesjadeild
    • Vesturlandsdeild
    • Vestfjarðardeild
  • Nefndir
    • Stjórn
    • Ferðafrelsisnefnd
    • Ferlaráð
    • Fjarskiptanefnd
    • Húsnæðisnefnd
    • Hústrukkanefnd
    • Litlanefnd
    • Ritnefnd
    • Skálanefnd
    • Skemmtinefnd
    • Tækninefnd
    • Umhverfisnefnd
    • Ungliðanefnd
    • Vefnefnd
  • Skálar
    • Fjallaskarð
    • Leppistunguskáli
    • Réttartorfa
    • Setrið
    • Skiptabakki
    • Sultarfit
  • Spjall
  • Augl.
  • Ljósmyndir
    • Setja inn myndir

Hleðslujafnari Nissan

by Hjörleifur Helgi Stefánss

Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hleðslujafnari Nissan

This topic contains 6 replies, has 1 voice, and was last updated by Profile photo of Elmar Snorrason Elmar Snorrason 15 years, 4 months ago.

  • Creator
    Topic
  • 07.01.2010 at 13:57 #209640
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant

    Sæl öll.

    Ég er með ónýtan hleðslujafnara undan Nissan Double Cab, Navara, í höndunum. Ég er búinn að taka hann í sundur til að skoða gúmmíin, sem reyndust góð að sjá, en armurinn sem stýrir jafnaranum er ónýtur og stilliboltinn brotinn. Get ég afnumið jafnarann með því að fjarlægja úr honum öll gúmmí nema það sem yst er? Ég geri mér grein fyrir að hann bremsar þá fullmikið að aftan óhlaðinn.

    Kveðja, Hjörleifur.

  • Creator
    Topic
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)
  • Author
    Replies
  • 07.01.2010 at 14:23 #674982
    Profile photo of Kristjón Jónsson
    Kristjón Jónsson
    Participant
    • Umræður: 17
    • Svör: 193

    Ég átti Patrol þar sem var vesen að fá gorminn sem tengist út í hásinguna til að tolla á sínum stað. Að lokum fékk ég mér snittaðan tein sem ég setti milli jafnarans og grindar og gat þannig handstillt hvað bíllinn bremsaði að aftan. Ef ég herti mjög mikið á þessi sýstemi varð bíllinn hættulegur í beigjum ef maður tipplaði á bremsunar. Það var eins og einhver rifi í handbremsuna.
    Þannig að ég held að ef þú gerir jafnarann óvirkann eigi það eftir að virka svipað.





    07.01.2010 at 19:21 #674984
    Profile photo of Elmar Snorrason
    Elmar Snorrason
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 519

    Í apríl á síðasta ári fékk ég endurskoðun á ’91 luxinn minn útaf smotterí, meðal annars ónýt fjaðragúmmí að aftan. Þá kom endanlega hvatningin sem ég þurfti til að drífa 4linkið og gormana undir og í þeirri smíði var hleðslujafnarinn fyrir mér. Hann var orðinn fastur og ég var aldrei með neitt sérstakar bremsur að aftan, þannig að ég sleit hann úr og setti í tunnuna. Svo fór ég með bílinn í skoðun strax eftir það og fékk endurskoðun aftur, þar var sett útá að ég hafi fjarlægt hleðslujafnarann nú og svo þurfti ég líka breytingaskoðun útaf breyttu fjöðrunarkerfi (peningaplokk!). Ég hringdi bálreiður í Karl að mig minnir Sigurðsson, yfirmann hjá Frumherja, átti við hann gott spjall og fékk grun minn staðfestan, skoðunarmaðurinn hafði gert mistök og í kjölfarið fékk ég leiðréttingu á því.
    Þetta er svosem ekki alveg spurningin, en gott fyrir menn að vita ef þeir eru að hugsa um að fjarlægja.

    Á hinn bóginn byrjaði bíllinn að bremsa hjá mér að aftan! Næstumþví óþægilega mikið fyrst en það vandist og í dag er ég mjög sáttur. Á malarvegi nær hann þó að draga hjól að aftan ef ég nauðhemla. Bíllinn er búinn að fara 4 sinnum í gegnum bremsuprófun í skoðun síðan ég breytti þessu (á rúmlega 8 mánuðum sem orsakast af þrjósku í mér til að reyna að sleppa við breytingaskoðun og svo aftur til að fá 11 miða núna í fyrradag). Aldrei hefur verið gerð athugasemd við ójafna hemlunarkrafta.





    07.01.2010 at 20:02 #674986
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Elli!

    Útbjóstu deilistykki eða opnaðirðu deilirinn á einhvern hátt?

    Hjörleifur.

    P.s. Flækjurnar hjá Óla hanga enn…





    07.01.2010 at 20:48 #674988
    Profile photo of Elmar Snorrason
    Elmar Snorrason
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 519

    Sæll Óli, það liggja 2 rör afturí jafnarann, ég gelti annað þar sem það skrúfast í bakvið hægra framhjólið með því að klippa ca 5cm bút úr (öðru röri sem ég átti, vildi eiga þetta langa rör í bílnum til vara) og lokaði endanum á því með því að sjóða í það.





    07.01.2010 at 21:31 #674990
    Profile photo of Hjörleifur Helgi Stefánss
    Hjörleifur Helgi Stefánss
    Participant
    • Umræður: 101
    • Svör: 665

    Hjörleifur, ekki Óli.

    Takk fyrir þetta.

    H





    07.01.2010 at 21:57 #674992
    Profile photo of Elmar Snorrason
    Elmar Snorrason
    Participant
    • Umræður: 33
    • Svör: 519

    Haha já augun mín komu ekki öllum skilaboðum á réttan stað, sorry :)

    Kv, Elli





  • Author
    Replies
Viewing 6 replies - 1 through 6 (of 6 total)

You must be logged in to reply to this topic.

RSS mbl.is – bílar

  • Villa kom upp sem bendir til þess að veitan liggi niðri. Reyndu aftur síðar.