This topic contains 17 replies, has 1 voice, and was last updated by Barbara Ósk Ólafsdóttir 17 years, 2 months ago.
-
CreatorTopic
-
23.08.2007 at 16:02 #200684
Pabbi minn kær ætlaði niður í Setur úr Kerlingafjöllum og festi sig í drullunni við Kerlingafjöll. Hann er á Unimog þannig að það þarf öfluga aðstoð. Veit einhver um félaga þarna á ferð sem gætu hjálpað?
Síminn hjá honum er 854-1282 eða hjá mér 664-1090
Kv. Barbara Ósk
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
23.08.2007 at 16:22 #595246
Fann vörubíl í Kerlingafjöllum sem er að fara á svæðið.
En vel á minnst, þetta er nýja stikaða leiðin í gegnum mýrina og hún er þá væntanlega ófær þar sem rignt hefur mikið uppfrá.
Kv. Barbara Ósk
23.08.2007 at 17:08 #595248Hvað er þetta með ykkur feðgin.
Lítill fugl tjáði mér að þú hefðir líka sokkið í drullu.
Er þetta í genunum.
kv
Grimmhildur.
23.08.2007 at 18:00 #595250Leiðirnar í Setrið eru þá semsagt tómt drullumall…
Leiðin frá Sóleyjarhöfða er líka ófær minni bílum (38" og minna). Ég spilaði tvo 38" bíla upp úr drullupitt við Tjarnarver um verslunarmannhelgina.
Þar þarf virkilega að fara og taka til hendinni ef að menn vilja koma í veg fyrir að nýr slóði verði gerður um móann við Tjarnarver. Vegurinn er ófær og því fara menn að leita nýrra leiða þar.
Lagfæring á þessum pitt sem er aðalfarartálminn er einföld og ódýr, en það þarf einhver (t.d. Klúbburinn) að hafa frumkvæði af því að láta gera það.
Kveðja Benni
23.08.2007 at 18:23 #595252Vörubílnum er ekki treyst niður brekkuna að Unimog þar sem hann er bara á afturdrifinu. Það vantar því enn hjálp en það ætti að duga einn spilbíll og einn ankerisbíll þar sem Unimogginn er ekki með nema eitt hjól alveg niðri og stendur á þurru öðru megin. Ef einhver veit um bíla nálægt þá væri mjög gott að frétta af þeim.
Kv. Barbara Ósk
P.S. Grimmhildur, þegar ég var krakki þá þurfti ég mikið að herma eftir pabba, nú hefur það snúist við
23.08.2007 at 21:06 #595254Hvar er hin rómaða hjálparsveit 4×4 núna ?
Góðar stundir
23.08.2007 at 21:19 #595256ætli það sé ekki meira og minna allt bilað þar eins og vanalega:D
annars er hægt að prufa að hringja í sveitina og sjá hvort einhver eigi ekki toyotu því því það uhumm bilar aldrei:D
Kv Davíð með "ó" biluðu toyotuna:P
annars er ég með Suburban sem ég mundi geta notað í björgunina ef hann væri með startara eða kúlu:P en get kannski bjargað því á morgun ef að enn verður múkki fastur:D
23.08.2007 at 21:47 #595258Ég er til í að vera akkerisbíll ef spilbíll finnst.
Ég á að heita að vera í hjálparsveitinni og bíllinn minn er enn í lagi. Ég á hinsvegar ekki spil og er ekki með búnað sem þarf til að tengja þannig á framenda bílsins.
ef þið viljið aðstoð, hringið þá í mig í 6994858
Hjálparsveitar-Lalli
23.08.2007 at 21:49 #595260Það væri örugglega góð byrjun að hringja í hjálparsveitina.
Þó að Lella hjálparsveitardrottning sé bíllaus þykja það nú ekki nýjar fréttir….Hefur enginn verið þarna á ferðinni…
Togar ekki bara unimok vörubílinn upp brekkuna þegar
vörubílinn er búinn að losa unimokannars erum við Lalli líklega klárir í fjör sýnist mér..
einhverstaðar í geymslunni er svona rykfallið spildótarí 😉
23.08.2007 at 21:53 #595262Hjálparsveitin á spil og kannski kerti.
PS Lella og Þorgeir eiga fulla innkeyrslu af allavega bílum.
23.08.2007 at 22:00 #595264Var að tala við pabba og björgunarsveitirnar ætla að vera hjá honum um kl. hálfellefu.
Ef það bregst, nú þá veit ég ekki hvað.
Takk fyrir hjálparboð
Kv. Barbara Ósk
23.08.2007 at 22:11 #595266Þá er pabbi þinn búin að feta í fótspor Guðmundar Jónassonar og Páls Arasonar.
En sá fyrrnefndi setti trukkinn sinn á syngjandi kaf þarna um 1950 eða þar um bil. Þegar þeir óku um Þjórsárver og síðan Illahraunsleiðina í Kerlingarfjöll. Eitthvað kommentuðu þeir um það að þessi leið væri ófær, það er einsog það sé að koma fram í dag.
23.08.2007 at 22:17 #595268Jasvei, og ég sem var langt kominn með að gíra mig upp í drullu-stuð! gott að þetta er að reddast.
það má samt alltaf hringja í hjálparsveit F4x4… símanr. og fleira má finna á síðu deildarinnar. Síðuna má finna undir "Nefndir" hér til hliðar (fyrir ofan spjallþráðarreitinn)
kveðja,
Lalli
23.08.2007 at 22:47 #595270Það hlýtur nú að hafa verið eitthvað bilað í Unimog fyrst að hann festist með eitt dekk í drullupolli. Það þarf meira en það til að festa Unimog. 😉
Kveðja
Þengill
23.08.2007 at 22:52 #595272Það hlýtur nú að hafa verið eitthvað bilað í Unimog fyrst að hann festist með eitt dekk í drullupolli. Það þarf meira en það til að festa Unimog. 😉
Kveðja
Þengill
23.08.2007 at 23:55 #595274Björgunarsveit Biskupstungna kom og reddaði þessu snarlega og mega þeir eiga þakkir fyrir.
Á meðan karlinn var að bíða eftir björgunarsveitinni þá kom þjóðverji akandi að og fór út í mýrina og pikkfesti sig á slyddujeppa þrátt fyrir að pabbi reyndi að koma í veg fyrir að hann færi útí og varð það því næsta verkefni hjá björgunarsveitinni að losa hann.
Kv. Barbara Ósk
24.08.2007 at 22:35 #595276…og hvenær fáum við svo myndirnar úr þessari svaðilför???
Ingi
09.09.2007 at 02:00 #595278Það voru mjög fáar myndir teknar en ég setti tvær í safnið hjá mér [url=http://www.f4x4.is/new/photoalbum/default.aspx?file=ferdamyndir/5631:1vugr4od][b:1vugr4od]Myndir[/b:1vugr4od][/url:1vugr4od]
Kveðja,
Barbara Ósk
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.