Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › hjáæpar tjakk
This topic contains 17 replies, has 1 voice, and was last updated by Ásgeir I. Óskarsson 14 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
14.01.2010 at 22:05 #209912
já goðandagin ég er með hilux dc með hrútshorn og vara að spá í að setja svona hjálpatrjakk eru það eihverjir spess tjakkar sem eru notaðir í svona breitingar það væri gott að sjá myndir af svona hjálpartjakks væðingu
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
15.01.2010 at 09:05 #677040
Þú færð tjakkinn í þetta í Landvélum. Þeir eru svo sem ekkert mjög spes en það þarf t.d. að passa að setja ekki of rúmmálsmikinn tjakk svo forðabúrið á stýrisdælunni tæmist ekki þegar tjakkurinn gengur í sundur. Svo þarf hann auðvitað að hafa rétta lengd og hreyfigetu, og einnig þarf að bora stýrismaskínuna á réttum stöðum fyrir nipplunum. Og þú verður að taka hana í sundur til að bora hana svo þú fáir ekki svarfið inn í kerfið.
Kv. Sigurþór
15.01.2010 at 12:18 #677042Þetta fer allt eftir því hvernig þú vilt hafa þetta og hvað það má kosta en ég held að þessi útgáfa sé langbest en líka dýrust og mesta smíðin.
[img:2onqcsmf]http://photos-c.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc3/hs003.snc3/11048_194309028900_587113900_2924218_7096441_n.jpg[/img:2onqcsmf]
15.01.2010 at 12:32 #677044ertu ekki með togstaung ég alla vegana sé hana ekki á myndini og hvar fékstu tjakkin
15.01.2010 at 12:41 #677046Ég er með svona í bígerð, en hvað hefur umferðarstofa ekkert verið að setja sig upp á móti þessu ?
Ég er að setja þetta upp í tölvu til þess að þeir geti samþykkt svona smíði fyrirfram.
Vitið þið um einhvern bíl með svona tjakk sem er á götunni?
kv. Siggi
15.01.2010 at 13:14 #677048Sindri tjakkurinn festis á millibilsstöngina
15.01.2010 at 13:40 #677050Í þessari útfærslu er tjakkurinn millibilsstöngin það er svo stýrismaskína og togstöng alveg eins og alltaf þarf að vera.Stýrismaskínan er notuð sem deilir fyrir tjakkinn.
Þetta er bara millibilsstöng með upphengju og margfalt sterkari en nokkur önnur millibilsstöng.
15.01.2010 at 13:56 #677052Snilld hjá þér jeepcj7.
Of vellt því fyrir mér af hverju einginn hefur gert þetta áður. Tannsstangarstýrin í öllum fólksbílum eru tæknilega séð sama útfærslan, eini munurinn er að í staðin fyrir tanngarðinn á glussatjakknum ertu með venjulega stýrisvél og togstöng.
Veðja reyndar á að Frumherji muni ibba gogg út af þessuRúnar.
15.01.2010 at 14:03 #677054Þetta er ekki mín hugmynd heldur sá ég þessa snilldarútfærslu hjá Kjartani gutta í mosinni en engu að síður er svona dót til hjá mér og stefnt að því að gera þetta svona líka í mínum jeppa.
15.01.2010 at 14:25 #677056Hvers konar liðir eru þetta á endum tjakksins? Gefur þetta eftir þ.s. venjulega færist millibilsstöngin að rörinu við beygju?
-haffi
15.01.2010 at 15:06 #677058Í endann á tjakknum koma kúluliðir oft ættaðir úr ferguson dráttarvélum eru auðvitað til úr hinum ýmsu tækjum,mjög svipaður búnaður einmitt og er við tannstangar stýri í flestum bílum bara sverari.
15.01.2010 at 15:26 #677060
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Ætli að það sé hægt að setja svona búnað í staðin fyrir tannstöngla stýring í klaufabílum?
15.01.2010 at 16:39 #677062If it ain’t broke, don’t fix it…
15.01.2010 at 16:44 #677064en hvar fékkstu t.d Tjakkin
15.01.2010 at 16:54 #677066Svona tjakkar eru smíðaðir td. í landvélum og víðar,einnig eru svona tjakkar í mörgum vinnuvélum bara spurning um að finna þann rétta.
Þetta er ekki búnaður sem gengur í klafabíl í staðinn fyrir tannstöng til að nota á númerum því þá er tjakkurinn orðinn eina tengingin upp í stýri þar sem engin er togstöngin.
15.01.2010 at 17:02 #677068Sælir, þið vitið að stýrismaskínan verður að vera til staðar og eins togstöngin, þá er þetta löglegt, tjakkurinn í stýrismaskínuni er ekki notaður en deilirinn er notaður til að stýra þessum tjakk.
Það gengur ekki upp að vera bara með hyrdo stýri eins og er í torfærubílunum og traktorum því þetta verður að virka þegar bíllin er ekki í gangi til að fá skoðun.
Þetta er held ég upphaflega hannað af óla á Ljónsstöðum, ég var allavegna búinn að heyra það.
Sindri, einfaldast fyrir þig er að hringja í landvélar og biðja um stýristjakk í Hilux dc á fjöðrum að framan og með hrútshorn, fá þér svo stýrisenda í Volvo og snitta uppá tjakkin fyrir honum og þá passar þetta í staðinn fyrir orginal stýrisdemparan á millibilsstöngina. Þetta var alltaf gert við þessa bíla hér í denn, það er allavegna mun mikilvægara að losa sig við blaðfjaðrirnar og þannig en legga í svona kosnaðarsama aðgerð eins og tjakkin með gegnumgangandi stálinu.
Svo það sé á hreinu þá finnst mér þessi lausn snilld með tjakkin í stað millibilsstangar og ætla að skoða þessa lausn í framtíðinni.
15.01.2010 at 18:53 #677070[img:kyxahu9b]http://photos-c.ak.fbcdn.net/hphotos-ak-snc3/hs003.snc3/11048_194309028900_587113900_2924218_7096441_n.jpg[/img:kyxahu9b]
Þessi tjakkur á myndinni er fastur á hásingunni en ég hef séð götuskráðan Econoline hér heima þar sem tjakkstöngin er líka millibilsstöng. Ekkert hægt að setja út á það í skoðun, það er heil stöng á milli hjóla og það er stýrismaskína eins og með hefðbundinni uppsetningu.
Bjarni G.
15.01.2010 at 19:49 #677072Jú ég er með svona í Land Rovernum hjá mér, notaði innri liði úr Ferguson og original liðina úti við hjólin. Þetta kemur mjög vel út núna eftir að ég boraði út magnventilinn í vökvastýrisdælunni því stýrið var svolítið seint. Annars bara frábært.
Athugið samt að dráttarvélaliðirnir eru ekki e-merktir og því skal ekki hafa hátt um þá, en er þó klárlega málið upp á styrk að gera.
Kv. Geiri
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.