Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › Hitavandamál í 4runner
This topic contains 16 replies, has 1 voice, and was last updated by Jón Hrafn Karlsson 13 years, 10 months ago.
-
CreatorTopic
-
14.03.2006 at 12:33 #197538
Kannast einhver við það að 3,0 turbo sé að hitna, þetta er 35″ bíll, ekki með intercooler, hitnar ekki við venjulegan akstur en hitnar í álagi. hvað er til ráða????
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
14.03.2006 at 13:32 #546350
Ég átti fólksbíl með sömu einkenni, þetta lagaðist við að skipta um vatnskassa. Fékk nýjan vatnskassa á góðu verði hjá Gretti. Stjörnublikk skipta um eliment í gömlum vatnskössum.
Útfellingar og óhreinindi draga úr afköstum vatnskassans við að flytja varma frá vatni til lofts.-Einar
14.03.2006 at 13:53 #546352Patrolinn hjá mér hitnaði alltaf í þungu færi. Vandamálið hvarf þegar skipt var um vatnskassa í honum.
Kv. – Kjartan
14.03.2006 at 14:06 #546354
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Þekki það reyndar ekki af eigin reynslu, en einn sem ég þekki hætti að upplifa sveiflur í hitamálum í brekkum og þess háttar þegar hann setti 5-40 olíu á bílinn. Hann er á Patrol 94-96.
Efa þú ert ekki nú þegar með þannig olíu, þá held ég að það borgi sig að prufa (þá ertu bara þá kominn með betri olíu ef vandamálið hættir ekki),
Kveðjur Ottó
14.03.2006 at 14:22 #546356Þakka góð svör
14.03.2006 at 14:42 #546358Til einhvað efni til að skola kassann, hann lítur mjög vel út að utan, stíflueyðir eða eitthvað álíka
14.03.2006 at 15:04 #546360
Anonymous- Umræður: 0
- Svör: 16404
Þetta hefur komið upp í lc 90 líka, kassinn getur litið út sem nýr að utan en verið orðinn ónýtur að innan og því ekki flutt varman eins og eik benti á. Nýtt element er ekki spurning áður en eitthvað skemmist.
14.03.2006 at 15:24 #546362Skipta menn ekki reglulega um frostlög, svona eins og stendur í bókinni?
bara svona spyr
kv
Rúnar.
14.03.2006 at 18:18 #546364Athugaðu fyrst hvort kúplingin fyrir kæliviftuna sé í lagi hún er næstum heimingi ódýrari og nýtt elimennt í vatnskassann. Er nýbúinn að skipta um bæði hjá mér.
Kveðja Gunnar.
14.03.2006 at 18:52 #546366Svo er líka spurning að skola útúr kerfinu, ég geri það reglulega. Það er nú mjög einfalt tekur efri stútinn úr vatnskassanum úr sambandi og sá neðri líka treður slöngunni í efri stútinn og lætur renna sjóðandi heitt vatn í svona 20 mín eða þangað til það fer í gegnum kerfið setur svo nóg af frostlög á hann þá ætti kerfið að vera hreint
Kveðja Gummi79
14.03.2006 at 20:23 #546368ég var í vandræðum með hitamálin hjá mér… ef ég var að fara upp jökla eða í mjögerfiðu færi þar sem bíllinn þurftir að vera á háum snúning lengi…
Kassinn leit sæmilega út og er í öðrum bíl núna.
En ég bað þá í stjörnublikk um að smíða stærra element fyrir mig. Bíllinn er hækkaður um 8 sm á boddíi þannig að ég fékk 8 sm hærra element.Það er ekki vottur af hreifingu á vatnshitamælinum hjá mér núna… hann fer bara úr köldum í normal og er þar svo.
ég gataði reyndar húddið og setti 2,5" opið púst í leiðinni
ég veit ekki hvað af þessu hjálpaði mest en þetta virkar.
Kveðja Bazzi
27.03.2011 at 23:02 #546370Erum að lenda í smá hitavandmálum með þessa vél í 39,5" hilux undir miklu álagi. Allt nýtt í vélinni og nýr vatnskassi í orginal stærð.
Er orginal kælingin ekki að duga þessum vélum þegar búið er að breyta bílunum svona mikið? Það er reyndar búið að mixa intercooler fyrir framan kassan og síðan eru 2 kastarar fyrir framan þetta litla grill sem hiluxinn og 4 runner bjóða upp á.
Spurning um að prófa þetta, 16" rafmagnsvifta í stað orginal viftunnar.
[img:1xki99kw]http://i286.photobucket.com/albums/ll92/Bigdavegrrr/Car/Cruiser/Build%20Log/10032010265.jpg[/img:1xki99kw]
28.03.2011 at 16:09 #546372Ef ég væri þú, þá mundi ég ath. fyrst með kúplinguna í viftunni.
Var sjálfur í hitavandamálum með minn, prufaði svo að festa spaðan og eftir það hreifði hann ekki hitamæli, sama hvað hann erfiðaðiMæli samt ekki með því að festa spaðan, nema til að prufa hvort annað sé ekki örugglega í lagi.
Get lánað þér fastan spaða ef þú vilt prufa.Kv. Atli E.
28.03.2011 at 21:48 #546374Vel að merkja, þá er algjört möst að hafa trektina á vatnskassanum, bæði efri- og þá neðrihlutan.
Annars gera spaðarnir ekkert annað enn að hræra í loftinu í kringum sig.kv. Atli E.
28.03.2011 at 22:16 #546376[quote="Atli":1lo0iiqv]Vel að merkja, þá er algjört möst að hafa trektina á vatnskassanum, bæði efri- og þá neðrihlutan.
Annars gera spaðarnir ekkert annað enn að hræra í loftinu í kringum sig.kv. Atli E.[/quote:1lo0iiqv]
Já það er væntanlega það sem er að hrjá okkur, vorum greinilega of fljótfærir þegar við vorum að púsla þessu saman, passaði ekki þannig að við hentum henni til hliðar og gleymdist. En niður fer vatnskassinn og vindgöngin í.
29.03.2011 at 10:58 #546378Svona til að segja smá af mínum rönner, sem er á 44" blöðrum þá hef ég ekki orðið var við neitt hitavesen eftir að það fór stærri vatnskassi í. Vindgöngin reyndar brotnuðu af fyrir nokkrum mánuðum en hef lent í þónokkrum átökum síðan þá og ekki orðið var við neitt hitavesen. Held að ég sé með svipaðan kassa og bazzi, c.a. 80mm hærri.
kkv, Samúel Úlfr
29.03.2011 at 11:59 #546380Þetta er allt að rifjast upp fyrir manni, trektin var brotin í partabílnum, þess vegna pældum við ekkert meira í þessu. Ulfr,ertu þá bara að keyra trektarlaus?
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.