Forsíða › Forums › Spjallið › Bílar og breytingar › hitar sig
This topic contains 13 replies, has 1 voice, and was last updated by Kristjón Jónsson 19 years, 3 months ago.
-
CreatorTopic
-
05.01.2006 at 09:48 #196983
sælir felagar eg er með patrol 92 á 38 “ hann hitar sig á keyrslu eðlilegur í hægagangi er þetta kassinn eða vatnsdælan eða
-
CreatorTopic
-
AuthorReplies
-
05.01.2006 at 11:09 #537980
Athugaðu hvort vatnslásinn sé orðinn ryðgaður og opnist illa. (eða réttara sagt, skiptu um vatnslás fyrst af öllu). Annars er líklegast að þetta sé lélegur vatnskassi.
05.01.2006 at 11:14 #537982já prófa það takk
05.01.2006 at 12:46 #537984ef vatnslásinn er farinn þá finnur maður það alltaf með því að þreyfa á vatnskassanum, ef hann er heitur að ofan en kaldur að neðan, þá er það vatnslásinn.
05.01.2006 at 14:26 #537986Kassinn er líka heitur bara efst ef t.d. neðri pípurnar eru stíflaðar, líka ef bíllinn er að byrja að hitna-þá hitnar fyrst efri hlutinn (sá hluti sem næst er inntakinu).Svo þessi fullyrðing er ekki alveg rétt.
Freyr
05.01.2006 at 15:36 #537988Þetta var nú [url=http://www.f4x4.is/new/forum/?file=bilarogbreytingar/5430:3dlbxd1l]sorgarsaga[/url:3dlbxd1l] hjá mér …
En sniðugt gæti verið að tékka á loftbólum í vatnskassanum – setur góða trekkt ofaní áfyllingarstútinn .. bætir við slatta af vatni/frostlegi svona svo það fljóti aðeins í trekktinni og ef það koma loftbólur, þá skaltu lesa sorgarsöguna .. annars slepptu þvíkv. Siggi
05.01.2006 at 15:58 #537990Ég er sammála Ásgeiri. Ef neðri hosan frá vatnskassa að vél er heit þá bendir það til þess að vatnskassinn (eða viftan) séu ekki að standa sig. Ef hún er köld, þá bendir það til það hringrás kælivökvans sé ekki í lagi sem getur stafað af vatnslás eða bilun í heddi eða pakkningu.
Það að miðstöðin hættir að hita bendir til þess að það vanti kælivökva, sem getur m.a. stafað af biliun í heddi/heddpakkningu. Ef það vantar það mikinn kælivökva að það trufli miðstöðina, þá getur það skemmt heddið.-Einar
05.01.2006 at 16:49 #537992fljótlegast finnst mér nú að taka bara slönguna sem fer í affallskútinn og stinga henni í gosflösku með vatni í og sjá hvort að það koma loftbólur, það er miklu erfiðara að sjá loftbólur í trekkt. En hins vegar þætti mér furðulegt að vatnskassar stíflist nema hjá fólki sem skiptir aldrei um kælivökva, ég hef meiri trú á jeppamönnum en það.
Skoðaðu líka viftuna, þetta er kúplingsvifta með silikonfyllingu, þær eru mjög bilanafrekar og endast yfirleitt ekki lengi þar sem silikonið harðnar með tímanum og þá virkar hún ekki neitt. Best er að sjá það með því að sjá hvort hún stoppi alveg þegar hún er á fullum snúningi og þú setur einhverja fyrirstöðu, ég hef yfirleitt bara fórnað hendinni í þetta, hef allavega ekki misst neinar hendur ennþá þannig að þetta ætti að vera nokkuð hættulaust 😉
kv, Ásgeir
05.01.2006 at 17:00 #537994Ef þú ert búinn að útiloka hedd og heddpakkningu (hvorki olía né loftbólur í kælivatni) þá myndi ég þreifa á vatnskassanum. Taktu annað hvort plasthlífina sem umlykur kassann eða viftuspaðann af og skoðaðu kassann vel. Ef þynnurnar molna auðveldlega er engin kæling í þeim, settu nýjan kassa. Þú færð hann á góðu verði í Gretti og Stjörnublikk, þeir taka gamla upp í.
-haffi
05.01.2006 at 21:25 #537996Þegar þú segir að hann hiti sig hvað fer mælirinn þá hátt ? Mig minnir að ég hafi séð einhvarstaðar á netinu að það sé ekki óeðlilegt að hitamælarnir í þessum bílum fari í 2/3 á skalanum. Minn bíll færi örugglega yfir 1/2 skala ef ég stæði hann flatan upp Kambana. Fjótlega eftir ég eignaðist bílinn fór ég að taka eftir þessu og hafði af þessu miklar áhyggur. Eftir að hafa skift um allt sem hægt var að skifta um og látið mæla allt sem hægt var að mæla lærði ég bara að lifa með þessu og fer að slá af ef mælirinn fer uppfyrir 1/2. Svona er ég búinn að keyra hann næstum 100.000 km og er enn á fyrsta heddinu 7,9,13. Það er reyndar ekki rétt að taka sénsa á því hita þessa mótora mikið.
Láttu okkur vita hvernig þetta endar.Kristjón
05.01.2006 at 21:27 #537998að hann er að vera kominn í 260þ
05.01.2006 at 22:09 #538000Ég kíkti aðeins á netið til að reyna rifja upp hvar ég sá þetta með mælinn, það er t.d. hér
http://www.patrol4x4.com/forum/t2878-heating-up-gq.htmlNissan temp guage is overly sensitive. 1/3 on the guage is about 80 degrees, 1/2 is 90 and 2/3-3/4 is 100 degrees. So long as you’re using water/glycol mix it shouldn’t be a problem.
05.01.2006 at 22:33 #538002það er náttúrulega algjörlega ábyrgðarlaust að benda á svona þræði sem enda á viðlíka orðum "…hill climbs well i often think i’ll jump out and meet the patrol up on top of the hill…"
Verðum að fara að hittast og sparka í dekk.
Siggi
05.01.2006 at 22:55 #538004Það var ekki ætlast til að nokkur nennti að lesa svona lengi. Miðað við hvað stafsetningin er léleg hjá mörgum sem skrifa á korkinn þá hélt ég að það tæki flesta marga daga að lesa alla síðuna, en þú býrð sjálfsagt ennþá að því að hafa fengið góða undirstöðumenntun hjá Rúna Bryn í Öldutúnsskóla fyrir aldarfjórðungi eða svo. Kannski við ættum að drífa í því að sparka í dekkin hvor hjá öðrum svo við þurfum ekki að eyðinleggja þennan tækniþráð fyrir manninum.
-
AuthorReplies
You must be logged in to reply to this topic.